09.05.1957
Neðri deild: 94. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

128. mál, tollskrá o. fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseli. Fjhn. flytur eina brtt. við frv., og er hún á þskj. 492. Vil ég gera grein fyrir henni.

Í hv. Ed. voru gerðar nokkrar breytingar á frv., m.a. sú, að verðtollur á svonefndu svampgúmmíi, sem notað er til annars en skógerðar, var hækkaður úr 8% í 30%. Var þetta gert til verndar innlendu fyrirtæki, sem býr til dýnur, stólasetur og fleira úr slíku efni, og var talið, að slík tollvernd fyrir þá framleiðslu væri eðlileg með hliðsjón af tollvernd, er framleiðsla annarra svipaðra fyrirtækja nýtur. En nú hafa komið mótmæli gegn þessari tollhækkun frá húsgagnaframleiðendum, sem telja sér hagkvæmara að kaupa útlent svampgúmmí heldur en innlendu framleiðsluna og telja sér íþyngt óeðlilega með hækkun tollsins. Hefur þannig komið fram, að hér rekast á hagsmunir tveggja iðngreina, þ.e.a.s. þess iðnaðarfyrirtækis, sem býr til margnefnt svampgúmmí, og húsgagnaframleiðendanna, sem telja sér hagkvæmt að geta flutt þessa vöru inn og vilja komast hjá að greiða hærri verðtoll en nú er ákveðinn í lögum.

Eftir að fjhn. hafði rætt við málsaðila, þótti henni rétt að taka til greina að nokkru leyti óskir þeirra beggja, og er það því till. n., að verðtollurinn verði 20%, en ekki 30%. Er það efni brtt. á þskj. 492. Vonandi hefur þar tekizt að finna hinn gullna meðalveg.

Tveir hv. þm. flytja brtt. á þskj. 482, og hefur fyrri fim., hv. 2. þm. Reykv., nú gert grein fyrir henni. Till. er um breytingu á h-lið 3. gr. laganna. Skv. þeim staflið er garn til veiðarfæragerðar nú undanþegið að flutningsgjöldum. Tillögumenn vilja einnig láta undanþáguna ná til véla í fiskiskip og fiskflökunarvéla.

Um þetta er það að segja, að tollur af þeim vélum, sem nefndar eru í brtt., er svipaður og af ýmsum öðrum vélum, sem framleiðslufyrirtæki þurfa á að halda, t.d. eru jafnhá aðflutningsgjöld af öllum öðrum fiskvinnsluvélum og af fiskflökunarvélum, og jafnhár tollur er einnig af mjólkurbúsvélum og ullarverksmiðjuvélum. Ef fallizt yrði á brtt. á þskj. 482, væri ekki hægt að komast hjá að láta undanþáguna ná til fleiri vélategunda, ef nokkurt samræmi ætti að haldast. Er nú líka komin fram brtt. á þskj. 491 frá tveim öðrum hv. þm. um að gera undanþáguákvæðið viðtækara, og yrði þó ekki stefnt til samræmis í þessum efnum með þeirri till. nema að litlu leyti.

Fyrr á þessu þingi, þegar sett voru lögin um útflutningssjóð, var álagningu innflutningsgjalda til tekjuöflunar fyrir sjóðinn hagað þannig, að lægri gjöld voru yfirleitt lögð á helztu nauðsynjar til framleiðslunnar en á aðrar innfluttar vörur. Á þetta m.a. við um ýmsar vélar, þ. á m. þær, sem nefndar eru í brtt., sem hér liggja fyrir. Séu aðflutningsgjöldin tekin í heild, eru þau því tiltölulega lægri á vélunum nú en áður var, samanborið við gjöld af öðrum vörum. Um þetta hefur hæstv. fjmrh. þegar rætt.

Út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um tolla af dráttarvélum og bátavélum, er það að segja, að aðflutningsgjöld í heild af þessum vélum eru nú mjög svipuð.

Um afstöðu fjhn. er það að segja, að meiri hl. n. telur ekki, eins og nú er ástatt, hægt að fallast á brtt. á þskj. 482, sem hv. 2. þm. Reykv. var að mæla fyrir, og ekki heldur á brtt. á þskj. 491, og mælir meiri hl. n. gegn því, að þær verði samþykktar.