16.05.1957
Efri deild: 100. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

128. mál, tollskrá o. fl.

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þegar lög um útflutningssjóð voru sett síðast á s.l. ári, var þar m.a. kveðið svo á, að greiða skyldi 11% útflutningssjóðsgjald m.a. af vefnaðargarni úr baðmull. Hins vegar er í lögunum svo kveðið á, að tilsvarandi gjald af innfluttum baðmullardúkum sé aðeins 8%, m.ö.o., sú framleiðsla, sem hér vinnur úr erlendu baðmullargarni, verður að greiða örlítið hærra útflutningssjóðsgjald af hráefnum sínum en innflytjandi verður að greiða af fullunninni vöru úr sams konar hráefni. Hér mun hafa verið um mistök að ræða við afgreiðslu málsins, eða réttara sagt, að svo flókið sem málið var, mun ekki hafa verið athugað, að hér gerðist það, sem auðvitað var ekki tilætlunin að nokkurs staðar gerðist, að innflutningsgjald væri lægra af fullunninni vöru en af hráefni í tilsvarandi vöru.

Nú eru hins vegar miklir erfiðleikar á að leiðrétta þetta í lögum um útflutningssjóð. Það mundi þýða, að nauðsynlegt væri að bera fram frv. um breytingu á þeim lögum. Þess vegna hefur iðnmrn. í samráði við fjmrn. dottið í hug að gera hér nauðsynlega bragarbót á með því að óska þess, að skotið yrði inn í það frv., sem hér er til umræðu um tollskrá, heimild til fjmrh. til að fella niður eða lækka aðflutningsgjöld af vefnaðargarni úr baðmull og gerviefnum, ef viðtakandi vörunnar rekur dúkaverksmiðju og þess sé getið í aðflutningsskýrslu, að garnið verði einungis notað til framleiðslunnar.

Ég vil leyfa mér að bera fram skriflega brtt. um, að aftan við 2. gr. frv. bætist nýr liður, sem hljóðar að efni til eins og ég gat um áðan. Síðan er það tilætlunin, ef hv. Alþingi vildi á þetta fallast að nota þessa heimild sem því svarar, sem gjaldið á innfluttu fullunnu vöruna er nú lægra en gjaldið á hráefni, sem til landsins er flutt og unninn er úr baðmullardúkur hér á landi. Tilgangur þessarar brtt. er því sá, að fjmrh. jafni þann mun, sem var — að því er ég hygg að megi segja — af vangá látinn verða á, þegar lögin um útflutningssjóð voru samþykkt, þannig að það eigi sér ekki stað framvegis, sem auðvitað er fullkomlega óeðlilegt, að nokkur grein íslenzks iðnaðar þurfi að greiða hærra innflutningsgjald af sínu hráefni en greitt er af sams konar fullunninni vöru.

Ég skal geta þess, að þessi brtt. er flutt í samráði við fjmrn., og eru eindregin tilmæli mín, að hún hljóti afgreiðslu hér í þessari hv. deild, þar sem hér er nánast um leiðréttingu að ræða á smávægilegu atriði í hinni miklu og flóknu lagasetningu, sem samþykkt var á síðustu dögum þingsins fyrir jólaleyfið.