07.05.1957
Efri deild: 95. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)
147. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Björgvin Jónsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur athugað mál þetta á tveimur fundum sínum. Nefndin sendi málið til umsagnar Fiskveiðasjóði Íslands, Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi, fiskimálasjóði, Landssambandi ísl. útvegsmanna og Sölumiðstöð ísl. fiskframleiðenda. Stjórnir fiskveiðasjóðs og Félags síldarsaltenda mæla með, að frv. verði samþykkt óbreytt. Stjórn fiskimálasjóðs mælir með frv., en mótmælir lækkun hlutfallstölu sjóðsins af heildartekjum af útflutningsgjöldum. Stjórn Sölusambands ísl. fiskframleiðenda mótmælir allri hækkun á útflutningsgjöldum af saltfiski, en tekur ekki afstöðu til frv. að öðru leyti. En stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna mótmælir frv. í heild.
Eins og greinilega kemur í ljós í grg. frv. og í frumræðu hæstv. sjútvmrh. þann 4. apríl s.l., er hann hafði framsögu fyrir málinu hér í hv. deild, er höfuðtilgangur þess að auka tekjur fiskveiðasjóðs um tæpar 41/2 millj. kr. á ári. Meginhluta þessa fjár er aflað með því að leggja sama útflutningsgjald á allar útfluttar sjávarafurðir, en lítils háttar er skertur hlutur þeirra annarra aðila, sem tekjur fá af útflutningsgjaldinu.
Við hv. þm. Ak., hv. 8. landsk. og ég getum fallizt á rök hæstv. ríkisstj. fyrir verulega auknum tekjum fiskveiðasjóðs, að þær séu í alla staði réttmætar, og við teljum jafnframt, að eðlilegt sé, að jafnhátt útflutningsgjald sé innheimt af öllum útfluttum sjávarafurðum. Við leggjum því einróma til, að frv. þetta verði samþykkt. — Hv. þm. Vestm. gat ekki mætt á síðari nefndarfundinum, vegna þess að hann er erlendis. Hv. þm. N-Ísf. var fjarstaddur afgreiðslu málsins, en mun hins vegar gera grein fyrir afstöðu sinni hér í hv. deild.