17.05.1957
Efri deild: 101. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1384)
160. mál, húsnæðismálastofnun
Frsm. meiri hl. (Eggert Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. til laga um húsnæðismálastofnun, byggingarsjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygginga, breyt. á I. kafla 1. nr. 30 1952 o.fl. á þskj. 436 er stjfrv. og lagt fyrir hv. þd. 12. apríl s.l.
Við 1. umr. málsins flutti hæstv. félmrh. ýtarlega og greinargóða framsöguræðu um málið, tilgang þess og um fyrri lög, er í gildi hafa verið um húsnæðismál, og þá reynslu, sem af þeim er fengin. Heilbr.- og félmn., sem fékk málið til meðferðar, hefur rætt það á níu fundum sínum. Sá háttur var nú á hafður, að félmn. neðri deildar var með að undirbúningi málsins, og eru 19 brtt. við það nú fram komnar á þskj. 541.
Ég mun í stórum dráttum gera grein fyrir frv. og helztu brtt. meiri hlutans og nál. meiri bl. nefndarinnar, en hann skipa ásamt mér hv. þm. S-Þ. (KK) og hv. 1. landsk. þm. (AG). Hv. fulltrúar Sjálfstfl. í nefndinni, hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ) og hv. 11. landsk. þm. (FÞ), urðu ekki sammála okkur um afstöðu til málsins, en hefur enn ekki unnizt tími til að skila séráliti og hafa nú óskað eftir því, að umr. yrði frestað að lokinni framsöguræðu, sem er að sjálfsögðu forseta að ákvarða. Ekki varð þess þó sérstaklega vart, að ágreiningur væri í n. um einstakar brtt., sem meiri hl. hefur nú lagt fram. Hv. stjórnarandstæðingar töldu hins vegar rétt, þegar málíð var komið á lokastig í nefndinni, að frv. ætti að berast fram sem brtt. við gildandi lög um hið almenna veðlánakerfi, og verður vart séð, hverju sú afstaða á sérstaklega að þjóna. Í öðru lagi voru þeir ósamþykkir meginuppistöðu III. kafla frv., þar sem gert er ráð fyrir skyldusparnaði ákveðinna aldursflokka til tekna fyrir byggingarsjóð ríkisins. Ég mun víkja örlítið nánar að þessari afstöðu minni hl. síðar, og að sjálfsögðu verður gerð grein fyrir henni af þeim sjálfum.
Í upphafi umræðna um þetta mál voru kvaddir á fund nefndarinnar formaður húsnæðismálastjórnar, dr. Jóhannes Nordal hagfræðingur Landsbankans, og framkvæmdastjórn húsnæðismálastjórnar ásamt Jóhannesi Elíassyni lögfræðingi, er var einn þeirra, sem endanlega sömdu frv. fyrir hæstv. ríkisstj. Nefndarmönnum gafst þannig kostur á að spyrja þessa aðila um einstakar greinar frv., er ekki voru taldar nægilega ljósar, jafnframt því sem þeir gerðu sínar atbs. við einstaka liði og þá helzt framkvæmdaatriði. Að öðru leyti var frv. ekki sent til umsagnar. Frv. sjálft og helztu brtt. er rétt að skýra örlítið nánar í helztu greinum.
1. gr. frv. fjallar um skipulag húsnæðismálastofnunarinnar, og þar er jafnframt ákvæði um, að húsnæðismálastjórn, sem skipuð sé fimm mönnum, veiti stofnuninni forstöðu. Fjórir stjórnarmanna eru kosnir hlutbundinni kosningu á Alþ. til þriggja ára í senn, en sá fimmti af Landsbanka Íslands án atkvæðisréttar. Við þessa grein flytur meiri hl. n. brtt., þar sem nánar er kveðið á um skiptingu þess kostnaðar, sem óhjákvæmilegur er af störfum stofnunarinnar og starfsmannahaldi, skiptingu millí ríkissjóðs og byggingarsjóðs.
2. gr. fjallar nánar um einstök verkefni stofnunarinnar og eftir hvaða leiðum unnið skuli. Svo er þar m.a. fyrir lagt, að gerð sé nákvæm grein fyrir raunverulegri þörf landsmanna á íbúðabyggingum, hvernig þörfinni verði á sem hagkvæmastan hátt fullnægt, fylgjast með byggingarkostnaði í landinu og hverjir byggi ódýrust hús, hvaða íbúðarhúsnæði reynist bezt og hagkvæmast. Þá er húsnæðismálastjórn heimilað að láta fara fram í þessu skyni samkeppni um hagkvæmar teikningar og veita þeim lán, sem framangreind skilyrði uppfylla bezt. Þá er og í greininni nánar tiltekið um einstök atriði til framkvæmda því, að slík fyrirgreiðsla geti orðið sem mest og bezt fyrir væntanlega húsbyggjendur. Má þar m.a. benda á leiðbeiningastarfsemi fyrir húsbyggjendur, stöðlun byggingarhluta, tæknirannsóknir, endurskoðun byggingarsamþykkta, hagkvæmari innkaup byggingarefnis og að vinna við íbúðabyggingar verði sem samfelldust árið um kring og jöfnust frá ári til árs.
Það er mikið hagsmunaatriði húsbyggjandans og þjóðfélagsins í heild að eiga jafnan á að skipa vönum og dugmiklum byggingarmönnum, jafnt iðnlærðum sem óiðnlærðum. Engir möguleikar eru til þess, að hægt sé að skapa slíkar sveitir manna, meðan jafnótryggt ástand og árstíðabundið ríkir og hér hefur verið um þessi mál. Það eru ómæld ódrýgindin, sem af þessu leiðir í efnismeðferð og vinnunýtingu. Það er af þessum ástæðum, sem nágrannaþjóðir okkar keppast nú við að gera byggingariðnaðinn sem óháðastan veðráttu og hafa náð í þeim efnum athyglisverðum árangri. Á meðan við Íslendingar getum ekki til fullnustu fært okkur í nyt þessa fullkomnun, er nauðsynlegt að nota þann árstíma, sem bezt er til framkvæmdanna fallinn, þ.e. sumarið, með því að lóðaúthlutun og uppdrættir húsanna liggi jafnan fyrir síðla vetrar, þannig að framkvæmdir geti hafizt snemma á vorin, og að því sé keppt, að húsin verði fokheld, áður en veðrátta versnar á haustin. Þannig vinnst tvennt: Byggingin þarf ekki að stöðvast af þeim sökum og innrétting hússins getur farið fram yfir veturinn. Vinna verður samfelldari og nýting hennar betri, þar sem unnið er við betri aðstæður. Ég fullyrði, að vegna þess, hvað framangreindum atriðum hefur lítið verið sinnt, er byggingarkostnaður nú stórum meiri en hann þyrfti að vera. Nægir í því sambandi að benda á allan þann fjölda íbúðabygginga, sem árlega er verið að byrja á að haustinu til og stendur svo hálfbyggt allan veturinn, án þess að nokkuð sé hægt að aðhafast. Það þarf ekki byggingarfróðan mann til þess að sjá það fjárhagstjón, sem af slíkum framkvæmdum hlýtur að leiða, auk þeirrar áhættu, sem byggingunni er stofnað í, t.d. vegna frosta.
Í síðari hluta 2. gr. er húsnæðismálastjórn falið að beita sér fyrir úrbótum í þessum efnum. Þær brtt., sem við flytjum við þessa grein, eru að mestu orðalagsbreytingar. 4. mgr. þótti þó að athuguðu máli rétt að hafa sem heimild fyrir ráðherra án lagafyrirmæla um, hverjir skipuðu þá ráðgjafarnefnd, sem þar er hugsuð húsnæðismálastjórn til ráðuneytis um tæknileg mál. Í síðustu mgr. greinarinnar er gert ráð fyrir, að húsnæðismálastofnunin geri árlega skýrslu um íbúðabyggingar í landinu, er sýni árangur af framantöldum greinum í framkvæmd.
II. kafli frv. er um byggingarsjóð ríkisins og veðlán til íbúðabygginga. Hér er um algert nýmæli að ræða, þar sem stofnaður verði sérstakur sjóður, er lúti stjórn húsnæðismálastjórnar og ætlað er að standa straum af framkvæmdum hennar, sbr. 2. gr. frv., og annast almenn útlán. Þetta stofnfé er áætlað að verði samtals um 118.2 millj. kr., sem sundurliðast skv. þeim skýringum, er frv. fylgja, þannig skv. 3. gr. frv.:
Í fyrsta lagi varasjóður hins almenna veðlánakerfis, 20.9 millj. Í öðru lagi lán ríkisins til lánadeildar smáíbúða, 32.8 millj. Í þriðja lagi Aflokka bréf ríkisins, er keypt voru fyrir tekjuafgang ríkissjóðs 1955, 11.3 millj. Í fjórða lagi 2/3 hlutar stóreignaskatts, álagðs 1957, áætlað 53.2 millj. kr.
Árið 1958 er áætlað, að tekjur af þessu stofnfé verði 28 millj. kr. Þá er og gert ráð fyrir 7–8 millj. kr. árlegri tekjuöflun samkv. a-d-liðum greinarinnar, en þar er gert ráð fyrir, að innheimta megi 1% aukalega af tekju-, eignarog stríðsgróðaskatti og aðflutningsgjöldum samkv. gildandi viðaukum. Lántökugjald er einnig ákveðið 1% af öllum lánum, sem húsnæðismálastjórn veitir.
Í 4. gr. er gert ráð fyrir, að veðdeild Landsbankans sé heimilað að gefa út bankavaxtabréf, er nemi allt að 100 millj. kr. á ári í næstu 10 ár. Efni frv. er og allt miðað við 10 ára viðreisnaráform í húsnæðismálum, og verður það að teljast einn af höfuðkostum frv., þar sem mjög hefur skort á allt framtíðaröryggi þessara mála, og því hafa skrefin fram á við verið of stutt.
Þær reglur, sem gilt hafa um útlán frá húsnæðismálastjórn, eru, að veitt hafa verið lán í hlutföllunum 2:5, þannig að tveir hlutar lánsins hafa verið vísitölulán, en hinir óháðir vísitölubreytingum. Nú er gert ráð fyrir með sölu fyrrnefndra bankavaxtabréfa, að þau skiptist í tvo jafna flokka, A og B, og B-flokkurinn verði með vísitölukjörum.
Í 4. gr. frv. er og gert ráð fyrir, að meginuppistaða veðlánakerfisins starfi áfram við hlið byggingarsjóðs og tekjur þess verði sala þessara bankavaxtabréfa.
Í 5. gr. er greint frá því, hvert fé kemur til útlána og framkvæmda á vegum húsnæðismálastjórnar, og sú ein brtt. við hana gerð, að útlán annarra aðila en húsnæðismálastjórnar þurfi staðfestingar hennar við, ef krafa er gerð um B-lán á móti samkvæmt 4. gr. Verður það að teljast eðlilegt með tilliti til þeirra reglna, sem 6. gr. frv. setur húsnæðismálastjórn. Þannig ætti að vera tryggt, að lántakendur sitji allir við sama borð, hvar sem lánið er annars tekið. Til þessa hefur búsnæðismálastjórn einungis haft aðstöðu til þess að koma í veg fyrir slíkar lánveitingar, en ætti með þessu að öðlast rétt til að meta lánsfjárþörf viðkomandi aðila, ef hann á að elga kröfurétt til B-lánsins. Þessi gr. eins og sú fjórða á að búa betri og traustari grundvöll undir varanlegri lausn húsnæðismálanna.
6. gr. fjallar um útlánareglur þær, sem farið skal eftir. Helztu nýmæli þar eru þau, að engum einstaklingi skuli veitt lán út á nema eina íbúð. Þá er og gert ráð fyrir, að um lánveitingar til einstaklinga verði farið eftir ástæðum umsækjenda, húsnæði, fjölskyldustærð, efnahag og hámarksstærð íbúða, en um útdeilingu lána til byggðarlaga skuli tekið tillit til jafnvægis í byggð landsins.
Í fljótu bragði virðast þetta sjálfsagðar og eðlilegar takmarkanir, þegar tillit er tekið til þess gífurlega umsóknafjölda, sem upp hefur safnazt hjá húsnæðismálastjórn þau rúmlega tvö ár, sem veðlánakerfið hefur nú starfað, en óafgreiddar lánsumsóknir þar munu nú vera rúmlega 2000, auk þess mikla fjölda, sem fengið hefur örlítil byrjunarlán, allt niður í 20–25 þús. kr. Búast má og við, að umsóknafjöldi þessi aukist nokkuð nú á komandi sumri.
Á meðan slíkt neyðarástand ríkir, er óverjandi að veita einstaklingi fleiri lán en út á eina íbúð og jafnframt nauðsynlegt, að tillit sé tekið til fyrrgreindra ástæðna.
Ég geri fyllilega ráð fyrir því, að þó að ég reyndi hér að draga upp mynd þess raunalega ástands, sem nú ríkir hjá hundruðum fjölskyldna vegna lánsfjárskortsins, þá yrði sú mynd vefengd. Sárust er þessi neyð hjá barnflesta og fátækasta fólkinu. Það er erfitt að sannfæra sjö barna föður, sem býr í hriplekum bragga, en af harðneskju við sig og sína hefur komið upp fokheldu húsi, að hann geti ekki fengið lán, vegna þess að einum einstaklingi hafi verið veitt 10–15 lán.
Framkvæmdastjórn húsnæðismálastjórnar hefur nú með tilliti til þeirra, sem í huga hafa að hefja byggingu íbúðarhúsa, auglýst, hverjar íbúðir muni sitja fyrir um lán, og ákveðið þar 360 rúmmetra takmark. Fyrir allan þorra fjölskyldna er þetta viðunanlegt húsnæði, en séu fjölskyldurnar sérstaklega fjölmennar, er gert ráð fyrir heimild til þess að víkja frá þessu marki og þá jafnframt með fyrrtaldar aðstæður í huga.
Rétt þykir og við útdeilingu lánsfjárins milli byggðarlaga, að tillit sé tekið til jafnvægis í byggð landsins. Það verður að teljast eðlilegt og hagsmunir beggja aðila, að fénu verði á fyrrgreindan hátt dreift sem eðlilegast milli hinna ýmsu landshluta, því að ekki bætir það neyðarástandið við sjávarsíðuna eða t. d. hér sunnan- og suðvestanlands, þar sem ástand þessara mála er verst, að fólk flykkist hingað til búsetu, vegna þess að annars staðar fengjust ekki lán til þessara framkvæmda. Þó að allar fjáraflanir gangi að óskum, er sýnt, að nægt verkefni verður í þéttbýlinu að fullnægja eftirspurn eðlilegrar fólksfjölgunar næstu árin, þó að ekki bætist þar við stórir fólksflutningar.
Við athugun í nefndinni varð samkomulag um að fella síðasta málslið, g-ið, niður, þar sem gert ráð fyrir, sé engu minni, og í mörgum föst veðlán, kæmu ekki til greina við úthlutun lána. Í mörgum tilfellum geta þessi veðlán verið það lítil, að þörfin fyrir lán þau, sem í frv. er gert ráð fyrir, sé engu minni, og í mörgum tilfellum mundi slíkt ákvæði geta komið niður á þeim, sem verst væru staddir fjárhagslega.
Í 7. gr. er heimilað, að tilskildu samþykki ríkisstjórnarinnar, að lána byggingarsjóði Búnaðarbankans og byggingarsjóði verkamanna af því fé, sem frá er greint í 3. og 4. gr. og þá í sömu hlutföllum og til einstaklinga.
8. gr. fjallar um bein framkvæmdaatriði, og brtt. við þessar tvær greinar eru nánast leiðréttingar einar.
Langmerkasta nýmæli frv. verður án efa talinn III. kafli þess með ákvæðum 9. og 10. gr.
Í 9. gr. er gert ráð fyrir sérstakri innlánsdeild á vegum byggingarsjóðs ríkisins, er taki við frjálsum framlögum manna til þess að safna fé til íbúðabygginga, 5 þús. kr. á ári, og öðlast þeir þar með forgangsrétt til lána að öðru jöfnu, sem mega vera allt að 25% bærri en almennt gerist. Ef gert er ráð fyrir, að lántakandi hefði uppfylt framangreind réttindi og ætti auk þess rétt á fullu láni samkvæmt hámarki því, er frv. ákveður, gæti lánið orðið allt að 125 þús. kr. á slíkar íbúðir. Gert er ráð fyrir sams konar rétti þeirra, er í sveitum eða dreifbýli búa, með innlögum í veðdeild Búnaðarbankans. Fé þetta er undanþegið tekju- og eignarskatti sem eign.
10. gr. fjallar um skyldusparnað, 6% af tekjum ungs fólks á aldrinum 16 til 26 ára. Þau forréttindi eru á því fé, sem inn kemur á þennan hátt, umfram frjálsa sparnaðinn skv. 9. gr., að féð er vísitölutryggt og undanþegið tekjuskatti og útsvari og ekki framtalsskylt. Sparnaðarskyldan fellur niður í fyrsta lagi, þegar viðkomandi hefur náð 26 ára aldri, og öðru lagi gengur í hjónaband og stofnar heimili. Þegar skylda þessi fellar niður, á viðkomandi rétt á að fá sparifé sitt endurgreitt að viðbættum vöxtum og uppbót vegna vísitöluhækkunar, sem greidd er af vísitölubundnum verðbréfum á innlánstímanum. Enn fremur skulu þeir, er á þennan hátt spara, sitja fyrir að öðru jöfnu um lán, sem mega vera 25% hærri en almennt gerist. Forgangsréttindi þessi til lána eru þá bundin því skilyrði, að sparnaður þeirra, sem að byggingu hlutaðeigandi íbúðar standa, nemi a.m.k. 25 þús. kr. Þá er og í greinarlokin heimild fyrir alla þá, sem vildu byrja sparnaðinn fyrr en tilskilið er og halda honum áfram lengur.
Auk þess mikla öryggis, sem skyldusparnaður þessi gefur öllum tekjum byggingarsjóðs og þá eðlilega útlánastarfseminni allri, er hann mikið öryggi fyrir alla yngri kynslóðina og knýr á um, að hugsað sé fyrir framtiðinni. Fyrir velflestu þessu fólki liggur að ganga í hjónaband og mynda heimili. Í allt of fáum tilfellum er á unga aldri hugsað fyrir þeim skyldum, sem myndun heimilis hefur í för með sér. Allt þetta fólk vildi gjarnan eiga eitthvert fé til þess að búa sem bezt að sér og sínum, bókstaflega geta lagt grundvöllinn að sjálfri heimilismynduninni, eignazt íbúð. Þau eru ekki fá hjónaböndin, sem aldrei lafa öðlazt aðstöðu til raunverulegs heimilislífs, af því að enginn möguleiki var fyrir mannsæmandi íbúð. Afleiðingarnar þekkja prestarnir, læknarnir og þeir aðrir, sem starfa að mannúðar- og líknarmálum. Á skal að ósi stemma, og þeir, sem kynnzt hafa staðreyndum þessara mála, eru ekki í vafa um, að hér verður skyldan til að koma. Vestur-Þjóðverjar hafa með góðum árangri farið inn á þessar brautir.
Það var í öðru lagi um afstöðuna til þessarar greinar, sem sundur dró í nefndinni. Hv. minni hl. vildi ekki fallast á skyldusparnaðinn, en þess í stað, að upp yrði tekinn samningsbundinn sparnaður með sömu hlunnindum fyrir hvern og einn. Nú verður ekki betur séð en að 9. gr. frv. um frjálsa sparnaðinn uppfylli þessar hugmyndir minni hl. Þar er öllum heimilaður sparnaður með innlögum í sérstaka innlánsdeild með allmiklum hlunnindum, svo sem fyrr er sagt.
Skyldusparnaðurinn gefur hlutaðeigandi meiri og betri möguleika í skattfríðindum og lánsmöguleikum, og tel ég það sanngjarnt. En það, sem er þó höfuðkosturinn við skyldusparnaðinn frá hinu almenna sjónarmiði, er, að hann er stærsta og öruggasta skrefið til þess, að húsnæðismálastofnunin sem slík geti gegnt því hlutverki, sem henni er ætlað samkvæmt öðrum greinum frv., en á það hefur mjög skort.
Ég fæ því ekki skilið röksemdir minni hl. um að losna við skylduna á annan veg en sem þjónkun við það unga fólk, sem nú við fyrstu greiðslur taki þessari tilraun fálega. Ég fullyrði, að það unga fólk, ef til er, kann þessum tillögum eða talsmönnum þeirra engar þakkir að 10 árum liðnum.
Það, sem háð hefur eðlilegri starfsemi húsnæðismálastjórnar til útlána og annarra framkvæmda, er fyrst og fremst fjárhagslegt öryggisleysi, og með flestum ákvæðum gildandi laga var aðeins miðað við tveggja ára samninga við bankana, sem gátu brugðizt. Hins vegar var yfirstjórninni ætlaður 6 ára aldur. Nú, þegar hv. alþm. hafa annars vegar reynsluna af fyrri lögum fyrir sér og svo hins vegar hina knýjandi þörf til úrbóta, virðist alger fjarstæða að ætla að draga úr nokkru því atriði, er til framfara horfir.
11. gr. fjallar um þá, sem undanþegnir eru sparnaðarskyldu. N. þótti sýnt, að þungt yrði í vöfum að fá umsagnir sveitarstjórna um hagi þess fólks, er þar greinir frá, svo sem skólafólk, iðnnema, ómagafjölda, lágar tekjur o.s.frv. Þess vegna þótti réttara að hafa þar aðgang að undirskattanefndum.
Við 12. gr. er með brtt. aukinn réttur reglugerðar til ákvörðunar um innheimtuaðferðir, þar sem ekki þykir enn fullsannað, á hvern hátt innheimtunni verði bezt fyrir komið.
IV. kafli frv. fjallar um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis. Í ákvæðum þessa kafla eru litlar breyt. gerðar frá eldri lögum. Ein brtt. er þar gerð af n. hálfu við 16. gr., þar sem lagt er til, að ef ágreiningur verði í sveitarstjórn um ráðstöfun íbúða, sem reistar eru á grundvelli þessara laga, megi vísa honum til húsnæðismálastjórnar til úrskurðar.
Það verður vart talið óeðlilegt, að sá aðili, sem kemur fram fyrir ríkisins hönd, veitandi helming lánsfjárins, hafi umsagnarrétt, ef sveitarstjórn kemur sér ekki saman um, hverjir skuli hljóta tilteknar íbúðir.
V. kaflinn fjallar um minni háttar breytingar á l. um byggingu verkamannabústaða, nr. 36 1952, og er að mestu breytingar, sem hækkandi verðlag hefur framkallað. Sú breyting er nú lögð til við 6. gr. l., að nú skuli fjárhagsaðstæður hlutaðeigandi miðaðar við þann tíma, sem hann kaupir íhúðina, en var áður þegar hann gerðist félagi. — Aðrar breyt. við þennan kafla eru minni háttar og velflestar orðalagsbreytingar.
Ég hygg, að því verði ekki í móti mælt, að frv. sem heild er til mikilla bóta frá því, sem nú er. Einhverjum kann þó að finnast, að frv. sjálft boði ekki skjótar úrlausnar vandans, sem nú í dag er fyrir dyrum, og sé meira stílað sem varanlegri lausn í framtíðinni. Þegar þessi mál bar að í viðræðum ríkisstj. við efnahagsmálanefnd verkalýðssamtakanna í byrjun apríl, var því lofað, að á þessu ári, 1357, skyldu verða til ráðstöfunar a.m.k. 44 millj. kr. auk þess, sem innheimtist til byggingarsjóðsins. Þessi loforð eru síðan af hæstv. ríkisstj. upp tekin í grg. þessa frv. Gert er þó ráð fyrir, að byggingarsjóður Búnaðarbankans fái þar af sömu upphæð og hann hefur áður fengið árlega frá hinu almenna veðlánakerfi, eða 12 millj. kr. í A- og B-lánum.
Samkvæmt þessum fyrirheitum ríkisstj. er því gert ráð fyrir, að á þessu ári verði um það bil sama upphæð til útlána og lánuð var í stjórnartíð fyrrv. ríkisstj. með veðlánakerfislögunum, en þá var úthlutað 44 millj. og 35 þús. kr. þar til í september s.l. ár. Talið er, að á næstu árum geti árlegt eigið fé byggingarsjóðs til útlána orðið um 40 millj. kr. og að eign sjóðsins í árslok 1966 nemi nær 300 millj. kr.
Í sambandi við tilkomu þessa máls hér á hv. Alþ. er freistandi að fara nokkrum orðum almennt um húsnæðismál, og skal ég þá gjarnan taka fram, að það, sem ég kann að segja þar, er fyrst og fremst mínar persónulegu skoðanir.
Með setningu l. um lánadeild smáíbúða, sem sett voru 1352, og síðan hins almenna veðiánakerfis með l. nr. 53 1355 var gerð tilraun með að koma nokkuð til móts við hina gífurlegu lánsfjárþörf, sem skapazt hafði við byggingu íbúðarhúsa, en um þau virtust væntanlegum húsbyggjendum allar bjargir bannaðar. Veðdeild Landsbankans hafði verið lokuð, og aðrar lánsstofnanir svöruðu ákveðið, að út á íbúðarhúsabyggingar lánuðu þær ekki. Þessi tilsvör voru að heita má alls staðar samhljóða, þegar frá eru teknar örfáar undantekningar einstakra sparisjóða, sem lánuðu lítið og til svo skamms tíma, að ógerlegt var fyrir allan þorra manna að rísa undir húsbyggingu á þeim forsendum. Svo var því komið þessum málum, að daglaunamaður átti þess engan kost að komast yfir íbúð nema hjá byggingarfélagi verkamanna, byggingarsamvinnufélögum eða byggingarframkvæmdum bæjanna, sem allt var þó miklum takmörkunum háð, einnig vegna fjárskorts. Fjárskortur til þessara framkvæmda varð sárari og tilfinnanlegri hér á landi en viða annars staðar, vegna þess að sambærilegar hlutfallstölur um, að einstaklingar eða einstakar fjölskyldur búi í eigin húsnæði eða íbúðum, munu vart finnanlegar hjá nágrannaþjóðum okkar. Þessi stefna í byggingarmálum, sem vaxin er upp með þjóðinni sjálfri og auknu fjárhagslegu sjálfstæði einstaklinganna, hefur sína stóru kostí en einnig sína miklu erfiðleika varðandi óeðlilega útþenslu bæjanna, þegar þess er gætt, að flestir vilja að sjálfsögðu búa í einbýlisbúsum.
Þegar alls þessa er gætt, lá í augum uppi, að ríkisvaldinu var mikill vandi á höndum, á hvern hátt og eftir hvaða leiðum lausn þessara mála yrði fengin.
Ég ætla mér ekki að rekja einstaka liði eða lagaákvæði fyrrv. ríkisstjórna, sem mörkuðu þær leiðir, sem farnar hafa verið frá setningu laganna um lánadeild smáíbúða, þ.e. síðastliðin 5 ár. Það ætti og að vera óþarfi, þar sem reynslan liggur nú fyrir. Persónulega tel ég, að höfuðágalli þessara framkvæmda hafi verið, hvernig túlkun þeirra fyrir almenningi var í upphafi og að kerfinu var ekki tryggt fé nema til tveggja ára með samningum, sem hæglega gátu brugðizt og brugðust. Fyrirsagnir og túlkun stuðningsblaða fyrrv. ríkisstj. urðu vægast sagt ekki í samræmi við þá reynslu, sem nú blasir við. Það var vitað, hve gífurleg neyð ríkti um allt lánsféð til slíkra framkvæmda, og þess vegna ekki þörf á að básúna út, að öllum, sem til íbúðabygginga legðu, yrði tryggt allt að 100 þús. kr. lán. Staðreyndin reyndist svo að sjálfsögðu vera sú, að ekki var hægt að koma til móts við nema takmarkaðan hluta þessa fólks, og eins og ég áður sagði, rúmlega 2000 umsóknir liggja nú bjá húsnæðismálastjórn, er enga fyrirgreiðslu hafa fengið, og rúmlega 1000, sem fengið hafa byrjunarlán allt niður í 15–20 þús. kr. gegn 1. veðrétti í eignum sínum. Það hámarkslán, sem í l. var talið að mætti vera 100 þús. kr., reyndist vegna hinnar gífurlegu ásóknar 70 þús. kr. á íbúð til þeirra, sem í lukkupottinn duttu. Af þessu leiddi svo að sjálfsögðu það, að gífurlega mikið fé liggur nú í ónotaðri fjárfestingu, þar sem hin hálfbyggðu hús eru, eignir hinna hryggbrotnu lánbeiðenda, sem hafa rúið sig og sína öllu fé, sem laust var, í von nm, að lán fengist síðar.
Eru þær leiðir, sem markaðar eru með frv. þessu, þá lausn á öllum fyrri yfirsjónum, og er þar lært af reynslunni? Ekki væri óeðlilegt, að slíkar spurningar kæmu fram.
Ég vil ekki gerast spámaður um framgang þessara mála, en höfuðkosti þeirrar stefnu, sem hér er upp tekin, tel ég vera þá, að í fyrsta lagi er nú öruggari fjárhagsgrundvöllur byggður upp en áður var og nú til 10 ára í stað 2 áður.
Í öðru lagi hefur væntanlegum íbúðabyggjendum verið tilkynnt um, hvaða íbúðarstærð verði látin sitja fyrir um lán, þ.e.a.s. 360 rúmmetrana. Ákvörðun þessi tekur þó að sjálfsögðu ekki til þeirra, sem byrjað hafa framkvæmdir, áður en auglýsingin birtist, og hófu sínar framkvæmdir, án þess að nokkrar slíkar takmarkanir væru settar. Við rúmmetrafjölda þennan er húsnæðismálastjórn þó ekki bundin, ef um sérstakar ástæður er að ræða, t. d. fjölmennar fjölskyldur, eins og ég áðan sagði.
Í þriðja lagi er ungu fólki á aldrinum 16–25 ára gert skylt að leggja til hliðar 6% af launum sínum samkv. því, sem áður er sagt um ákvæði 14. gr. frv.
Í fjórða lagi tel ég, að ákvæði 9. gr. frv. um hinn frjálsa sparnað séu mjög athyglisverð, þó að ekki sé þar um jafnörugga tekjuhlið að ræða.
Í fimmta lagi hefur framlag til verkamannabústaða á fjárl. verið hækkað úr 2 millj. kr. í 4 millj. kr., og auk þess greiðir ríkissjóður til bústaðanna á þessu ári 8 millj. kr. með sömu gjöldum frá bæjarfélögunum og verið hafa. Samtals til verkamannabústaða á því að vera hægt að verja um 12 millj. kr. á þessu ári.
Í sjötta lagi eru til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis nú 4 millj. kr. á fjárl., og 5 millj. kr. munu vera til frá fjárveitingum fyrri ára. Samkv. l. þessum er það skylda viðkomandi bæjareða sveitarfélags að leggja fram jafnháa upphæð á móti ríkisframlaginu. Samtals hefur verið veitt í þessu skyni frá gildistöku þessa kafla í maí 1955 5 millj. 545 þús. kr., þar um helmingur frá því í september s.l. haust. Fjárhæð þessi er veitt til 86 íbúða í 11 byggðarlögum á landinu, þar af til 63 íbúða í Reykjavík einni. Jafnframt er það skilyrði fyrir lánum þessum, að viðkomandi heilsuspillandi íbúð sé tekin úr notkun eða rifin niður í stað hinnar nýju, sem lánið er veitt til.
Þetta tel ég höfuðkost þessa frv. og vænti, að reynslan megi leiða í ljós, að hér er um stórar umbætur að ræða.
Meiri hl. heilbr.- og félmn. óskar svo eftir því, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem lagðar eru fram á þskj. 541, og vísað til 3. umr.