17.05.1957
Efri deild: 101. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1385)
160. mál, húsnæðismálastofnun
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það verður að segja hverja sögu eins og hún gengur. Mér hefur af sérstökum ástæðum ekki unnizt tími til að ganga frá nál. og brtt. minni hl. n., og leyfi ég mér því að fara þess á leit, að umr. verði frestað og málið tekið út af dagskrá til mánudags. Telji forseti ekki forsvaranlegt að fresta málinu svo lengi, mun ég að sjálfsögðu
reiðubúinn að mæta hér á fundi á morgun, enda þótt ég hafi ákveðið að sækja um fjarvistarleyfi vegna brottfarar úr bænum. En ég mun fresta þeirri för, ef forseti sér sér ekki fært að taka lengri frestinn til greina.