18.05.1957
Efri deild: 102. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1398)
160. mál, húsnæðismálastofnun
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég skal nú ekki ónáða hæstv. félmrh. í þeirri trú, að hann sé einn þeirra manna, sem aldrei komast úr jafnvægi, og að hans ummæli styðjist alltaf við hóf og rök. Það er svona enn eitt dæmi um það, hversu raunsætt hann lítur á sig og sín verk.
Hæstv. ráðh. sagði, að ástæðulaust væri fyrir mig að vera að spyrja um það, hvað úr stofnsjóði byggingarmálanna ætti að koma og kæmi á þessu ári. Ég verð þá að segja, að skörin er þá farin að færast upp í bekkinn, ef það skiptir ekki einmitt meginmáli, að þm. fái að vita um það, hvað úr þessum meginsjóði byggingarmálanna á að koma. Þegar sagt var frá þessu frv. í flokksblaði hæstv. ráðh., Þjóðviljanum, var einmitt lögð áherzla á það, að mikið fjármagn væri handbært og kæmi til útlána og fólk gæti byggt á því vonir; nú væri munur að sjá, hvernig félmrh. ynni að þessum málum, heldur en hæstv. fyrrverandi félmrh. og fyrrverandi ríkisstj. hefðu gert. Svo kemur hæstv. ráðh. hér og vantar ekkert nema vængina til þess að vera í dúfulíki og segir, að það sé alger fásinna að vera að spyrja um það, hvað úr þessum sjóði komi til útlána. Ég veit, að það er prentað í skýrslu frá Landsbankanum, sem fylgir frv. Þar er sagt, að á næsta ári muni koma til útlána 13.8 millj. kr., ef ég man rétt. Hæstv. ráðh. var eitthvað að tala um 40 millj. kr. á næstu árum. Það er fyrst eftir langan tíma, sem gert er ráð fyrir því, að sjóðurinn verði þess megnugur að lána svo mikið fé, og er þá að sjálfsögðu reiknað með því, að 15 millj. kr. fáist á ári af skyldusparnaði og 7–8 millj. kr. af stóreignaskattinum. Allt þetta stendur þannig á gersamlegum leirfótum, og hæstv. ráðh. hefur ekki getað fært minnstu rök að því, að í þessu frv. fælist eitt einasta nýmæli, sem gæti haft í för með sér raunverulegar umbætur í þessum málum og á því öngþveiti, sem þau eru komin í, síðan núverandi hæstv. ríkisstj. settist að völdum og hann í sæti hæstv. félmrh.
Það er svo von, að hæstv. ráðh. gremjist það, að á þetta sé bent og hann dreginn til ábyrgðar fyrir það og fram á það sýnt, hvers konar skrípaleik hér er verið að leika, þegar verið er að ásaka þá menn, sem lagt hafa inn á nýjar brautir, gert með þeim stórkostlegt gagn, fyrir svik og dáðleysi, en hins vegar verið að lofa og prísa yfirborðsháttinn, sem engu hefur afrekað.
Ég vil svo spyrja hæstv. ráðh. um það, sem hann var að fjargviðrast yfir, að felldar hefðu verið af fyrrverandi ríkisstj. eða lagzt á till., sem hann flutti um raunhæf úrræði í baráttunni gegn dýrtiðinni árið 1955. Hvernig stendur á því, að þessi hæstv. ráðh. hefur ekki flutt þessar till. núna? Það er alveg merkilegt, að nú, þegar hann er kominn í ríkisstj., skuli hann ekki taka þessar till. upp úr kistuhandraðanum og leggja þær fram og stöðva með því dýrtíðina og kapphlaupið milli kaupgjalds og verðlags. Nei, þær sjá hvergi dagsins ljós. Það eina, sem sést, eru tili. um stórkostlegar nýjar álögur, 9500 kr. álögur á hverja 5 manna fjölskyldu í landinu, og stórkostleg dýrtíðaraukning í landi. Það er það eina, sem sér dagsins ljós, frá manninum, sem segist nú hafa lagt fram frv. og till. árið 1955 um raunhæf úrræði í baráttunni gegn dýrtíðinni. Ég hef aldrei heyrt annan eins hundavaðshátt. Ég skal að vísu viðurkenna, að hann kemur mér ekkert á óvart frá þessum hæstv. ráðh.
Enn endurtek ég, að ég vona, að enda þótt svo ólánlega hafi til tekizt sem raun ber vitni um stjórn húsnæðismálanna undir forustu hæstv. núverandi félmrh., þá vona ég, að það fólk, sem byggt hefur miklar vonir á þeim skynsamlegu nýju leiðum, sem farnar voru fyrir frumkvæði fyrrverandi ríkisstj., verði fyrir minni vonbrigðum en líkur eru til að það verði vegna hins einstaka úrræðaleysis og uppgjafar, sem núverandi hæstv. félmrh. hefur gerzt sekur um í þessum málum.