18.05.1957
Efri deild: 102. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)
160. mál, húsnæðismálastofnun
Sigurður Bjarnason:
Ég bið hæstv. forseta mjög að afsaka, að ég skuli þurfa að þreyta hans langlundargeð og misnota hans mildi, en ég vildi aðeins segja það að lokum, að mig furðar ekkert á því, þó að hv. stjórnarlið kveinki sér nokkuð undan þeirri hirtingu, sem ég hef talið nauðsynlegt að láta fram fara á þeim hér, og þeirri afhjúpun, sem ekki hefur heldur orðið komizt hjá að framkvæma í sambandi við þetta einstæða sýndarmál hæstv. ráðh.
En í sambandi við það, sem hv. frsm. sagði áðan, að ekki hefði verið hugsað nema 2 ár fram í tímann í tíð hæstv. fyrrv. félmrh., sem var nú að vísu framsóknarmaður og þannig stuðningsmaður núverandi vinstri stjórnar, vil ég segja þetta. Það var nú meiri skammsýnin hjá þessari hæstv. fyrrverandi ríkisstj. Hún hugsaði ekki nema 2 ár fram í tímann. Hún tryggði í 2 ár allmikið fjármagn, vegna þess að það er upplýst, að 80 millj. kr. komu beint frá húsnæðismálastjórn til íbúðarhúsalána og samtals 230 millj. kr. í föstum lánum til íbúðabygginga. En hæstv. núverandi ríkisstj.? Hvað hugsar hún langt fram í tímann, hvað hefur hún tryggt í ár, það sem er næst henni í framtiðinni? Hún hefur ekkert tryggt annað en það, að hún segist ætla að semja við bankana um það, að lagðar verði fram 44 millj. kr. á þessu ári.
Ég held, að fyrrv. ríkisstj. þurfi ekki mikið að fyrirverða sig fyrir sína framsýni. Hún byrjaði á því að semja við bankana um að leggja fram stórfé til íbúðarhúsalána, og bankarnir gátu það, vegna þess að fjármálastefna ríkisstj. hafði þau áhrif á almenning í landinu, að sparifjármyndun var mikil og bankarnir höfðu peninga til þess að leggja í þetta. Um leið og hæstv. félmrh. settist í þennan stól, hætti fólkið að spara. Engir peningar til íbúðarlána fengust, og hæstv. ráðh. kemur þess vegna nú og segist ætla að reyna að „semja um það við bankana“, þegar bróðir hans eða einhver kommúnisti annar sé orðinn bankastjóri, að þeir leggi fram peninga í veðlánakerfið.
Þetta er þá munurinn á framkvæmd hæstv. fyrrv. ríkisstj. og núv. ríkisstj. á þessu máli. Varðandi svo hitt, sem hv. frsm. sagði, að stofnfé sjóðsins ætti helzt ekki að hreyfa, vil ég bara benda honum á grg., sem fylgir frv. Þar stendur, að á árinu 1956 sé að vísu ekki gert ráð fyrir neinu úr byggingarsjóðnum. En á árinu í ár er gert ráð fyrir 13.8 millj. kr. og 27 millj. kr. á næsta ári. Fyrir hvað er hv. þm. svo að ásaka mig? (Gripið fram í: Ég sagði aldrei alla upphæðina.) Nei, ekki alla upphæðina, nei, sjálfsagt ekki, en Þjóðviljinn hafði látið liggja að því, að þetta fé væri bókstaflega allt handbært, og mig minnir, að það væri birt mynd af hæstv. félmrh. með til þess að vera nokkurs konar trygging fyrir því, að peningarnir væru handbærir.
Loks vil ég, hæstv. forseti, aðeins segja í sambandi við það, sem hv. frsm. sagði, að öðruvísi væri nú unnið að þessum málum en áður hefði verið gert og miklu lýðræðislegar, nú væri stjórnarandstöðunni tryggt sæti í þeirri húsnæðismálastjórn, sem úthluta ætti lánum, að það var fyrsta verk hæstv. félmrh. að setja bráðabirgðalög á s.l. sumri til þess að útiloka öll áhrif stjórnarandstöðunnar á lánveitingarnar. Ég veit, að hv. þm. man vei eftir þessu, vegna þess að hann á sæti í þessari stjórn. Svo kemur hæstv. félmrh. nú og breytir þessu með nýjum lögum. Annar eins hringlandaháttur hefur ekki sézt.
Ég held, að hv. stuðningslið núverandi ríkisstj. þurfi sannarlega ekki að vera montið af því, hvernig hæstv. félmrh. hefur unnið að þessum málum. Hann hefur keyrt þar allt í strand og kemur með þessu frv. og opinberar algert gjaldþrot sitt og uppgjöf.