07.05.1957
Neðri deild: 93. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)
159. mál, skattur á stóreignir
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Þegar frv. þetta var lagt fyrir d. þann 12. apríl, flutti hæstv. fjmrh. ræðu og gerði grein fyrir málinu. Í aths., sem frv. fylgja, eru einnig skýringar á einstökum greinum þess, og sé ég því ekki ástæðu til að ræða um frv. í heild eða einstakar greinar, en vísa til þeirra skýringa, sem því fylgja.
Frv. hefur verið til athugunar hjá fjhn. Hún hefur farið yfir það og aths., sem því fylgja. Eins og fram kemur á þskj. 470, mælir meiri hl. n. með því, að frv. verði samþykkt. Einstakir nm. í meiri hl. hafa þó áskilið sér rétt til að flytja brtt., en munu ekki leggja neinar till. fram nú við þessa umr., hvað sem síðar kann að verða. Hugsazt getur, að þeir flytji einhverjar till. við 3. umr., ef þeim að nánar athuguðu máli virðist ástæða til þess.