07.05.1957
Neðri deild: 93. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
159. mál, skattur á stóreignir
Ólafur Björnsson:
Eins og kemur fram í áliti okkar, sem vorum í minni hl. fjhn., þá teljum við, að frv. sé óaðgengilegt með öllu í þeirri mynd, sem það liggur fyrir. En þar sem fram hefur komið, að ekki verður nú séð, hverjar lagfæringar kynni að vera hægt að fá á frv., mun ég sitja hjá við þessa umr.