20.05.1957
Neðri deild: 101. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)
159. mál, skattur á stóreignir
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Áður en mál þetta fer út úr þessari deild, vildi ég lýsa afstöðu minni til þess. Hún er í stuttu máli sú, að ég er andvígur frv. í heild sinni og ég er andvígur þessari skattaálagningu og tel hana ekki verða að því gagni, sem talið er.
Það er, eins og gefur að skilja, dálítið óvenjulegt og ekki gert stöðugt að leggja skatt á eignir, og það er rétt í því sambandi að gera sér ljóst, að þessi skattur er lagður á eignir, sem menn eru búnir að borga tekjuskatt af, þegar þeir eignuðust þær, og tekjuskattur á Íslandi er sannarlega ekkert sérstaklega lágur. Ég býst við, að það sé álit allra, að hann sé fyllilega sambærilegur við skatta annars staðar af tekjum. Og það er eitt, sem er alveg sérstaklega vert að gera sér ljóst, að einmitt þær eignir á Íslandi, sem mest væri þörf á að skattleggja, eru þær eignir, sem ekki eru á skattframtölum manna, þær eignir, sem er stungið undan tekjuskattinum. En hérna er verið að skattleggja einmitt þær eignir, sem ekki hefur verið stungið undan tekjuskatti, heldur eru komnar á skattaframtöl manna, og þangað komast þær ekki, nema því aðeins að þeirra hafi verið aflað með tekjum, sem búið er að borga tekjuskatt af. Þetta er vert fyrir okkur að gera okkur ljóst og þá að reyna að gera sér ljóst, hvaða afleiðingar svona skattlagning getur haft.
Ég held, að fyrstu afleiðingarnar af svona skattlagningu séu þær, að menn bera minna traust til hins opinbera en áður, það séu fyrstu afleiðingarnar. Menu telja, að þeir séu ekki frjálsir með eignir sínar, þó að þeir séu búnir að borga tekjuskatt af þeim. Það er ekki einu sinni öruggt að telja þær fram. Það getur komið einhver ríkisstj., sem tekur þær af þeim samt.
Hvað þýðir þetta í framkvæmdinni? Þetta þýðir það, að menn fara miklu meira en raun er á núna að skjóta tekjum sínum og eignum undan sköttum. Og hver er svo afleiðingin af því, ef ágerist það mjög svo sjúklega fyrirbrigði í okkar þjóðfélagi, sem er allt of almennt, — við vitum, að það er svo almennt, að það er bókstaflega eitt af okkar mikla böll? Ef menn fara nú meira en orðið er að skjóta tekjum og eignum undan eðlilegri skattálagningu, þá erum við að stiga skref aftur á bak.
Þegar talað var um stóreignaskatt hér fyrr á árum, — þá átti ég sæti á þingi líka, — var það byggt sérstaklega á því, að það var talið og það með allmiklum rétti, að stríðsástandið hefði skapað einstökum mönnum sérstaklega góða aðstöðu til tekjuöflunar, til gróða, og vegna þess að stríðsástandið var mjög óeðlilegt ástand og því óeðlilegt, að það skapaði mönnum gróða, var talið eðlilegt og sjálfsagt að leggja á stóreignaskatt og hagnýta þannig í almenningsþágu nokkuð af þeim gróða, sem menn höfðu þannig safnað sér. Þetta er sjónarmið, sem er að vissu leyti réttmætt. Og ég held, að það hafi allir, sem sæti áttu á þingi, verið nokkurn veginu sammála um það, að eitthvað slíkt þyrfti að gera, það væri óeðlilegt, að menn sætu uppi með þann ofsagróða, sem þeir höfðu af stríðsástandinu. Og í þeim anda voru sett lögin um stóreignaskatt 1947 í sambandi við eignakönnunina, sem munu svo aldrei hafa verið framkvæmd, en afnumin, þegar stóreignaskatturinn var á lagður árið 1950.
Í öðru lagi má segja, að það séu viss rök fyrir því að leggja á stóreignaskatt, þegar framkvæmdar eru stórfelldar breytingar á hagkerfi þjóðanna, breytingar, sem hafa það í för með sér, að þeir menn, sem eignir eiga, verða venjulega ríkari, miðað við gjaldmiðilinn. Slíkar breytingar er aðeins hægt að tala um, ef um stórfelldar gengislækkanir er að ræða, stórfellda breytingu á skráningu gengis.
Nú hefur ekkert slíkt skeð. Við höfum leyst okkar efnahagsmál með bráðabirgðaráðstöfunum og ekkert öðru en bráðabirgðaráðstöfunum, með því að innheimta stórfellda skatta og það meiri skatta en áður hafa þekkzt, og síðan er þessum sköttum úthlutað til þeirra, sem reka tapatvinnurekstur í sjávarútvegi, eftir ýmsum þar til settum reglum.
Ég gerði grein fyrir því, þegar þessar ráðstafanir voru gerðar í desembermánuði s.l., að ég teldi, að þessi stórfellda skattaálagning, sem framkvæmd var í sambandi við lausn vandamála sjávarútvegsins, hlyti að hafa það í för með sér, að allmikill samdráttur yrði í atvinnulífinu, vegna þess að þeir fjármunir, sem þannig væru dregnir saman, kæmu út yfir rekstrarfé fyrirtækjanna. Og þar sem vitað er, að ástandið í landinu er þannig, að það er ekki hlaupið að því fyrir fyrirtækin að fá að sama skapi hærra rekstrarfé sem skattheimtan verður hærri, var náttúrlega sýnilegt, hver afleiðingin hlyti að verða. Þegar tekið var til að leysa málin með þessum hætti, segir það sig sjálft, að það eru ekki sérstök rök fyrir að leggja slíkan skatt á eignir, eins og hér er um að ræða. Það er alltaf vinsælt að taka eignir af ríkum mönnum, og í því skjóli er þetta boðað, en ég held, að þetta hafi miklu alvarlegri afleiðingar en svo, vegna þess að meginhlutinn af þeim mönnum, sem koma til með að borga þennan skatt, er menn, sem halda uppi atvinnulífinu og alveg sérstaklega atvinnulífinu í þessari borg. Og ef þeir eru neyddir til þess að borga stórfé af lausafé sínu, þá hlýtur það að verða til þess, að atvinnulífið dregst saman, og þá kemur það út yfir þá, sem vinna hjá þeim, það verða færri, sem þeir geta veitt atvinnu, kannske getur svo farið, að þeir hætti rekstrinum, og þá er ég ekki viss um, að ríkið eða samvinnufélög eða nein önnur félög séu tilbúin að taka jafnmarga menn í vinnu. Það eru ýmis merki þess hér í Reykjavík, að atvinnulífið sé að dragast saman. Það má kannske segja sem svo, að það megi nokkuð dragast saman frá því, sem var, en það er ákaflega mikil hætta á því, eftir því sem ég hef frétt af vinnustöðum hingað og þangað, að það sé að dragast saman svo óeðlilega mikið, að það geti orðið beinlínis háskalegt, og þegar samdráttur er byrjaður, getur hann orðið óviðráðanlegur, hann getur velt upp á sig. Tekjumissir eins mann getur valdið tekjumissi og veldur tekjumissi annarra manna, og þannig veltur þetta eins og snjóbolti, sem hleður utan á sig og getur orðið óviðráðanlegur.
Ég tel því, að úr því að svo var farið að, uppbótarleiðin valin, það var valið að leggja á röskar 500 millj. af sköttum, — að vísu var endurálagt eitthvað um 160–170 millj. af því, en annað af því var nýtt, — fyrst sú leið var farin, þá sé ekki rök fyrir því að leggja á þennan skatt, sem hér er um að ræða. Það hefðu verið viss rök fyrir því, ef það hefði verið farið inn á þá braut að breyta genginu. En ég sé engin rök fyrir því, fyrst þessi leið var farin, sem sýnilega hefur þegar í för með sér stórfelldan samdrátt í öllu atvinnulífi þjóðarinnar.
Eitt atriði í þessu sambandi er spurningin um lögmæti þessa skatts. Ég ætla ekkert að fara að spá því, hvað hæstiréttur mundi segja um það, en ég vil bara benda á það: Er hægt að leggja á eignarskatt, ja, við skulum segja t.d. árlega? Væri hægt að leggja skatt á eignir t.d. árlega? Hér er gert ráð fyrir því, að ef menn eiga yfir 3 millj., eins og þær eignir eru útbúnar með þeim reglum, sem í frv. eru, og það þarf ekki að vera stór atvinnurekstur, til þess að það komist upp í 3 millj., þá á ríkið að taka 1/4 af eignunum, sem umfram er. Má þá ekki alveg eins taka helming eða kannske allar eignirnar, sem eru umfram 3 millj. kr.? Hvar eru takmörkin yfirleitt fyrir þessu? Ég var á þeirri skoðun, að stóreignaskatturinn væri sérstakt fyrirbrigði, sem alveg sérstaklega helgaðist af stríðsástandinu, og mér fannst, að ef væri hóflega í það farið, þá væri hægt að helga slíkan eignarskatt aftur núna, ef það hefði verið í sambandi við einhverjar stórfelldar breytingar á gildi peninga í sambandi við gengislækkun. En þegar þetta kemur ofan á stórkostlega skatta, sem eru lagðir á þessi fyrirtæki fyrir, þá sé ég engin heilbrigð rök fyrir því að leggja þennan skatt á.
Það er vitanlega hverjum manni ljóst, að hvert iðnaðarfyrirtæki í Reykjavík, skulum við segja, og raunar hvar sem er um landið, eða verzlunarfyrirtæki þarf núna allmiklu meira fé til rekstrar, það þarf nú að borga þessi innflutningsgjöld, um leið og það leysir út sína vöru, sem það ætlar að selja eða ætlar að framleiða úr, og verður þess vegna að hafa meira fé milli handa til þess að halda uppi sömu starfsemi og það hélt uppi, áður en skattarnir frá því í des. s.l. voru á lagðir. Þetta sem sagt verður til þess, að laust fé í þjóðfélaginu minnkar og minnkar verulega mikið.
Það munar um það, þegar innheimtar eru þarna um 400 millj. kr. Það munar mikið um það, þegar slíkar fúlgur eru innheimtar, og það er enginn vafi á því, að þetta mun valda geysilega miklum örðugleikum í atvinnulífinu. Ofan á þetta bætist svo, að bankarnir eru svo fast keyrðir,að það er ekki einasta það, að bankarnir hafi ekki getað haldið áfram að lána til rekstrarins það fjármagn, sem þeir gátu gert áður, heldur eru þeir allir að reyna að draga inn eins mikið og þeir mögulega geta og þyrftu raunverulega að draga inn meira. Þeir eru komnir í yfirdrátt í seðlabankanum o.s.frv., sumir, eins og vitað er, þannig að þarna verður engin vörn að því að geta fengið lán. Svo kemur þessi skattur, að vísu á ekki að borga hann í einu lagi, það á að borga hann í 10 pörtum, en hann getur líka orðið nokkuð hár, þarna er búið að hækka t.d. fasteignir svo mikið, að þetta verða allmiklar upphæðir. Mér er sagt t.d., að eitt fyrirtæki, sem hefur aðsetur hér í miðbænum og er talið þjóðþrifafyrirtæki og nauðsynjafyrirtæki, muni þurfa að borga um 3 millj. kr. í þennan skatt. Þeir eiga að borga þetta á 10 árum. Það gerir sem sagt 300 þús. kr., þar að auki 6% af 3 millj., eða nærri 1/2 millj. Þetta á þetta fyrirtæki að borga af rekstri sínum á ári, lækkandi örlítið með lækkandi vöxtum, og þetta er fyrirtæki, sem við mundum sennilega allir blygðast okkur fyrir, ef það hætti rekstri sínum, það væri þjóðinni til skammar. Þetta sýnir, að það er dálítið háskaleg braut, sem verið er hér, ja, kannske ekki að byrja á, heldur kannske halda áfram á. Mér finnst skattaálagningin vera orðin of mikil í þjóðfélaginu almennt og að það taki út yfir, þegar menn geta ekki einu sinni verið í friði með sinn rekstur eða með þær eignir, sem þeir eru búnir að telja fram og búnir að borga tekjuskatt af. Ef það væri verið að eltast við þær eignir, sem þeir hefðu stungið undan, væri það kannske sök sér.
Ég held, að jafnvel þó að þessum skatti yrði nú sleppt, þá gæti hæstv. ríkisstj. verið ánægð með afrek sín á þessu sviði, á sviði skattaálagningar. Ég held, að hún sé búin að slá öll met, sem þekkjast hingað til, þó að þessu verði sleppt, og hún geti alveg þess vegna með góðri samvizku lagt þennan skatt á hilluna og geymt hann þá þangað til það verður kannske nauðsynlegt að breyta genginu, sem hver einasti maður hlýtur að sjá, að er óhjákvæmileg nauðsyn þá og þegar og ekki hvað sízt vegna þeirra ráðstafana, sem gerðar voru í vetur.
Ég held, að ein af meginástæðunum fyrir því ástandi atvinnuveganna, að meira og meira af atvinnurekendum landsins er að koma til ríkissjóðs og biðja um framlög úr ríkissjóði, sem innheimt eru svo með sköttum á allan almenning, sé sú, að við erum búnir að ganga of langt í skattaálögum. Við erum búnir að kippa svo fótunum undan öllum, sem eru að reyna að hafa einhvern rekstur með höndum, að þetta er ekki hægt lengur. Og hver verður svo niðurstaðan? Niðurstaðan verður svo sú, að það verður að hækka skatta á allan almenning mjög verulega til þess að halda öllu gangandi. Það þýðir náttúrlega ekkert að neita því, að samfara þessu er svo vitanlega geysilega mikið aukið ríkiseftirlit á öllum sviðum. Það er verið að ráða tugi manna alltaf, það er ekki eingöngu þessi hæstv. ríkisstj., heldur hafa líka undanfarandi ríkisstj. gert þetta. Þróunin hefur verið þessi. Það er alltaf verið að ráða fleira og fleira fólk í alls konar neikvætt eftirlitsstarf í þjóðfélaginu, taka hendur frá jákvæðri framleiðslu í neikvæð skrifstofustörf, og þetta er enn eitt stórt skref á þeirri braut.
Ég hef ekki trú á, að það sé hægt að leysa og að það eigi að leysa alla hluti með nýjum skattaálögum og nýju eftirliti og láta ríkið vera með sitt nef ofan í hvers manns koppi. Ég hef ekki trú á því, að það sé lausnin á þjóðfélagsvandamálinu. Ég held, að þetta auki þjóðfélagsvandamálið og það mjög verulega, eins og þróun síðustu ára hefur sýnt, að aldrei hefur orðið að borga eins mikið úr opinberum sjóðum til þess að halda gangandi atvinnulífinu, sem þó er undirstaðan undir öllu, eins og einmitt núna er gert.
Ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um það, að ein meginástæðan fyrir því, að útgerðin er svo illa komin, að það er ekki hrundið báti á flot nokkurs staðar á landinu, svo að það sé ekki byrjað á því að tala við hæstv. ríkisstj. um það, sé þessir miklu skattar.
1942, í fyrra þinginu, fyrir kosningarnar, var breytt mjög verulega skattalöggjöfinni. Ég kom ekki á þing fyrr en eftir kosningarnar 1942, og þá var skattur á útgerð og útgerðargróða stóraukinn, og það var vitað mál, að útgerðarfélög, sem græddu mjög verulega á stríðsárunum, voru í harðakapphlaupi við ríkisstj. um að eyða sem mestu og á sem heimskulegastan hátt til þess að fá þó eitthvað, að því er þeim fannst, fyrir peninga sína; annars fór það allt í ríkið. En um leið og eitthvað fór að bjáta á eftir stríðið, hvað var þá gert? Þá komu þessir menn og urðu að fá ríkisstyrk, og það hefur enginn flokkur treyst sér að neita slíku. Það getur enginn haldið því fram, að það eigi að stöðva útgerðina. Ætli það hefði ekki verið betra að leyfa þeim að safna þá einhverjum gróða, ef það hefði verið tryggt, að það gengi í varasjóði, sem þeir hefðu getað gripið til, svo að ekki væri verið að taka þetta á opinbera framfærslu?
Nú er verið að segja, að útgerðin sé þjóðnýtt á þann hátt, að töpin séu þjóðnýtt, en gróðinn sé einkaeign. Það er nú síður en svo, að það sé, því miður. Því miður hefur enginn gróði verið í þessu, og er mér vel kunnugt um það og betur en ýmsum öðrum, að enginn gróði er. Ég hef starfað í þeim málum alla vega og meðal annars verið sjávarútvegsmálaráðherra. Því miður er engan gróða þar um að ræða. Og ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um það, að ef það væri gróði fyrir hendi, þá mundu menn ekki kæra sig um að þurfa að leggja sig undir það eftirlit og allt það pex og rex, sem því er samfara að þiggja fémútu úr ríkissjóði til þess að geta haldið atvinnurekstri sínum gangandi. Það mundi áreiðanlega enginn gera það af frjálsum vilja að fara þannig að.
Ég held, að þessi skattur, sem hér er um að ræða, muni leggjast alveg sérstaklega og með sérstökum þunga á iðnaðinn í Reykjavík. Þess vegna verður hann alveg sérstaklega háskalegur fyrir atvinnulíf Reykvíkinga, og það finnst mér það háskalegasta við hann. Þó að maður fari alla ströndina frá Reykjavík og til Reykjavíkur aftur, er ég óviss um, að þar verði nokkur maður, sem verði talinn stóreignaskattskyldur. Ég skal þó ekki fullyrða það, en þeir verða ekki margir. Þetta er sem sagt skattur á Reykjavík. Og þetta er fyrst og fremst skattur á iðnaðinn og verzlunina í Reykjavík, sem vitanlega hlýtur að hafa þær afleiðingar að draga saman rekstur þessara fyrirtækja og minnka það lausafjármagn, sem þau geta haft til rekstrar, og þar með minnka atvinnuna. Og það gæti orðið dýr skattur á fólkið. Það er hægt að borga alls konar skatta, 100%, jafnvel 200%, og eitt og annað, sem menn þurfa að kaupa sér, ef þeir hafa vinnu. En hafi þeir ekki vinnu, þá verður enginn skattur sóttur í vasann hjá því fólki. En þessum skatti framar öllu öðru virðist mér vera beinlínis stefnt að sjálfri uppsprettu þjóðarteknanna, sjálfri vinnustarfseminni, að menn geti fengið að starfa.
Það er líka rétt að benda á í þessu sambandi, að verðlagsákvæði hæstv. ríkisstj. hafa verið það þröng, það hefur verið vitað mál, og þar hef ég umsagnir manna úr öllum flokkum, að þau séu það þröng, að meiri hluti fyrirtækja í Reykjavík sé rekinn með tapi vegna verðlagsákvæða þeirra, sem ríkisstj. hefur fyrirskipað. Það er sýnilegt, að verðlagsákvarðanirnar eru framkvæmdar af fullkomnum óvitaskap. Það er engu líkara en þeir menn, sem stjórna verðlagsmálunum, haldi, að öll álagning sé þjófnaður, þeir geri sér ekki ljóst, að af álagningunni eru borguð vinnulaun til meginhluta til dæmis Reykvíkinga. Og það er vitanlega gersamlega óþolandi, að ráðherra noti sitt vald til að snúa atvinnulífinu þannig við, að það sé rekið með tapi. Meira að segja hefur verið státað af því í Þjóðviljanum og það hefur verið nefnt sem rök fyrir því, hvað sá flokkur á skelegga ráðherra, að ákveðin félög, sem eru nefnd á nafn, séu rekin með tapi og með verðlagsákvæðunum sé búið að taka af þessum félögum stórkostlega fjármuni. Ef þetta er rétt, sem Þjóðviljinn hefur sagt, að félögin hafi verið rekin með tapi og þau hafi orðið að skila stórkostlegum fjármunum þannig, þá er það lögbrot, það eru bein lögbrot. Það er óheimilt að nota verðlagsákvæðin þannig. Það þyrfti engan verðlagsskatt að leggja á, ef það væri hægt að taka það svoleiðis. Það þyrfti engan stóreignaskatt að leggja á, ef þannig væri hægt að gera. En það er vert einmitt að athuga það, að einmitt þessi stóreignaskattur, sem kemur kannske ekki mest við eignir manna, kemur við tekjurnar. Tíundi hluti hans þarf þó að borgast í peningum. Þannig kemur hann þyngst niður. Hann lendir á fyrirtækjum, sem eru harðpínd með — eins og ég segi óvitalegum verðlagsákvæðum.
Ég verð nú að segja það: Hvernig stendur á því, að ríkisstj. kemur ekki auga á neina aðra leið en nýja skatta? Finnst henni þetta vera hægt? Hvað á að gera um næstu áramót? Á að bæta við 200 milljónum eða 300 milljónum þá? Hvað á að gera? Við erum að borga Færeyingum, sem við höfum tekið í vinnu hér, á annað þúsund manns, — við erum raunverulega að borga þeim 50–70% hærra kaup en íslenzkum sjómönnum, af því að þeim er borgað í gjaldeyri og gjaldeyririnn er skráður svona skakkt. Lætur ríkisstj. sér detta í hug, að það sé hægt að halda áfram á þessari braut?
Ég hef verið mikið að velta því fyrir mér, hvernig stendur á þessu ákaflega mikla skattaæði. Ég er ekkert undrandi yfir Alþýðubandalaginu og ráðherrum þess. Þó er ég mjög undrandi yfir hæstv. viðskmrh., af því að við vorum mjög vei sammála um það, þegar við vorum flokksbræður, að það væri komið allt of langt í skattaníðslu á Íslandi. Ég er mjög mikið hissa á hans afstöðu í þessu máli. En viðhorf Alþýðubandalagsins, minna gömlu samherja, er ósköp einfalt. Það er með sköttum, af því að það er á móti einkarekstri. Það er með sköttunum til þess að stöðva einkareksturinn. Það er ósköp einfalt. Þetta er ósköp vel skiljanlegt. Þeir telja allan einkarekstur vera frá hinu illa, það eigi að afnema hann, hver sá maður, sem rekur eitthvað á eigin reikning, sé ekki heiðarlegur maður, það eigi allir að vera á launum hjá ríkinu eða ríkisfyrirtækjum. Það er þeirra viðhorf. En ég hef verið meira hissa á þessu skattaæði Framsfl. Og það er vitanlega ekki komið af þessum ástæðum. Ég held það sé af
þeirri ástæðu, að þeir telji sig vera að brjóta S.Í.S. frekar braut í íslenzku atvinnu- og verzlunarlífi. En ég vil bara benda þessum hv. mönnum á það, að S.Í.S. er nú orðið ekkert lítið fyrirtæki. S.Í.S. er orðið stærsta auðfyrirtæki landsins. Það er hreinn barnaskapur, það er hrein fásinna að vera að tala um kapítalista á Íslandi í samanburði við S.Í.S. Þeir eru allir saman eins og óvitar með leikföngin sín miðað við þetta bákn, sem þarna er um að ræða. Þetta bákn nýtur þar að auki sérstakra skattfríðinda, og þar liggur hundurinn grafinn. Ef þessi skattur ætti að leggjast á S.Í.S. og eignir S.Í.S., þá yrði haldið í spottann frá Framsfl. En hann á ekki að leggjast á S.Í.S. Það er mál út af fyrir sig, sem ég ætla ekki að fara að ræða um hér, um skattaálögur samvinnufélaganna, en það voru víss rök fyrir því, að samvinnufélögin hefðu skattfríðindi, á meðan þau voru smá og veigalítil fjárhagslega og voru samtök fátæks fólks til þess að komast upp úr fátæktinni á þeim árum, þegar afi minn og ýmsir fleiri voru að starfa að þessu. En núna þegar Samband ísl. samvinnufélaga hefur fullkomnustu tæki, sem yfir er bægt að ráða, í hverri grein fyrir sig, hefur betri aðstöðu en nokkur einstaklingur, svo að það er ekki hægt að bera það saman, og hefur haft betri aðstöðu gagnvart löggjafanum en nokkur einstaklingur líka, þegar kaupfélögin eiga þar að auki að vera skattfrjáls, þá er það orðið skakkt að mínu áliti. Þetta hefur líka komið þannig út, að skattarnir á einstaklinga hafa orðið óhóflega háir og eru óhóflega háir, skattarnir á tekjur einstaklinga. Þetta hefur svo aftur valdið því, að ásóknin í kauphækkanir hefur orðið enn meiri vegna þessara óhóflegu skatta, og þannig hefur dýrtíðarskrúfan verið keyrð áfram, þannig að það er verulegur hluti í þessu óeðlileg skattfríðindi samvinnufélaganna, sem ég held að væri bezt fyrir Samband ísl. samvinnufélaga sjálft og alla, sem vilja því vel, að fá leiðrétt, að það tæki sinn þátt í því að leggja fram það fjármagn, sem þarf til almennra mála á Íslandi, eins og aðrir. Og ég verð að segja það, að það hefur vakið mér mikla hryggð að sjá Framsfl. falla alveg í faðma við Alþb. í því skattaæði, sem mér virðist hafa ríkt á þessu þingi, sem nú er að ljúka.
Það verður sagt náttúrlega á eftir, að nú sé Áki Jakobsson óttalegur níðingur, hann vilji ekki lána fólki til þess að byggja sér hús, af því að það á að nota þetta til þess að byggja hús fyrir. En ég vil benda hæstv. ríkisstj. á það, að ef hún telur, að það þurfi skatt eins og þennan og aðra skatta, eins og kemur að víssu leyti fram í tekjuöflunarfrv. til húsnæðismálastjórnarinnar, sem liggur fyrir þinginu líka, þurfi endilega skattaálagningu, þá er það fyrir það, að hún hefur ekki trú á því, að henni takist að stöðva dýrtíðina. Eins og verið hefur, hafa skattarnir verið lagðir á til þess að afla tekna í húsnæðismálasjóð, til þess að það væri hægt að lána. En af hverju þarf skatta til þess að afla fjármuna í þessi útlán? Það er vegna þess, að þegar peningarnir koma til baka frá lántakendunum, eru þeir einskis virði eða kannske ekki nema þriðjungsvirði af því, sem þeir voru. Það er sem sagt dýrtíðin, sem veldur þessu. Ef við hefðum getað stöðvað dýrtíðina, mundi sparifé skapast af sjálfu sér. Þá fengu menn traust á peningunum, og þá þyrfti ekkert húsnæðismálakerfi eða húsnæðismálastjórn, þá gætu bankarnir annazt þetta. Ástæðan fyrir því, að ekki eru til peningar til þess að lána til eðlilegra húsnæðisbygginga, er sú, að dýrtíðarskrúfan hefur gengið. En með þessum ráðstöfunum er verið að hraða ferð dýrtíðarskrúfunnar, en ekki stöðva hana, þannig að það er ekki verið að leysa neitt. Við erum að taka inn með sköttum peninga til þess að byggja húsnæði fyrir, og við vitum, að þessir peningar koma ekki aftur nema örlitill hluti þeirra, af því að dýrtíðarskrúfan heldur áfram að gera peningana verðlausa. Það er engin leið að leysa vandamálið svona. Vandamálið verður að leysast með því að stöðva dýrtíðina, og það hafa allar stéttir þjóðfélagsins jafnan hag af því, að það sé gert. Ég held, að það sé einmitt það, sem hefði þurft á þessu þingi að skapa samtök um, að reyna að stöðva dýrtíðina, og það hefðu allir flokkar átt að geta verið sammála um. En það hefur ekki orðið enn sem komið er, og það er sýnilegt, að þær ráðstafanir, sem gerðar voru í desember, ætla að hafa meiri áhrif til dýrtíðaraukningar en jafnvel menn létu sér detta í hug þá.
Ég vildi gera grein fyrir því, áður en þetta mál færi úr deildinni, hver væri afstaða mín til þess, og því hef ég skýrt þessa afstöðu, en ég er algerlega á móti því, að þessi skattur á stóreignir verði á lagður, eins og nú standa sakir.