20.05.1957
Neðri deild: 101. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1518 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)
159. mál, skattur á stóreignir
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Frsm. minni hl. fjhn., hv. 5. þm. Reykv. (JóhH), sagði í ræðu sinni um þetta mál í dag, að ekki væri hægt að réttlæta þá skattálagningu, sem hér um ræðir, með öðrum ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið í efnahagsmálunum. Sama skoðun virtist mér koma fram í ræðu hv. þm. Siglf. (ÁkJ).
Ég sé ástæðu til að gera aths. við þetta. Vil ég í því sambandi vekja athygli á því, sem greinir í aths., er frv. fylgja. Þar er á það bent, að með l. um útflutningssjóð o.fl., sem sett voru í næstliðnum desembermánuði, voru gerðar sérstakar ráðstafanir í efnahagsmálunum — og þær allviðtækar — til þess að koma þeim málum á traustari grundvöll og jafna halla, sem orðinn var á útflutningsframleiðslunni. Í sambandi við þær ráðstafanir var óhjákvæmilegt að leggja verulegar fjárhagsbyrðar á þjóðfélagsþegnana, og voru þær fyrst og fremst í formi hækkaðra aðflutningsgjalda á útlendum vörum og svonefnds yfirfærslugjalds. Virðist þá eðlilegt, að þyngstu byrðarnar komi á þá landsmenn, sem mestar eignir eiga og mest hafa aukið eignir sínar vegna verðbólgunnar.
Þá er því haldið fram af hv. minni hl. fjhn., að með skattálagningunni sé ekki unnið gegn
verðbólgunni. Ég sé einnig ástæðu til að gera aths. við þetta.
Eitt af helztu einkennum verðbólgunnar um mörg undanfarin ár hefur verið áköf viðleitni manna til þess að koma peningum sínum í aðrar eignir, sérstaklega í fasteignir. Af þessu hafa margir haft verulegan gróða og þó sérstaklega þeir, sem hafa komizt yfir lánsfé og varið því til fasteignakaupa. Fasteignir hafa því vegna eftirspurnarinnar hækkað mjög í verði, og hefur það siður en svo verið þjóðinni til farsældar, þegar á heildina er litið.
Samkv. frv. á að leggja skatt á eignir, sem eru umfram eina milljón hjá hverjum einstökum manni, en sparifé er undanþegið skattinum eftir reglum tekju- og eignarskattslaganna um skattfrelsi sparifjár, og svo er einnig um eignir í ríkisskuldabréfum og skuldabréfum með ríkisábyrgð. Ég get ekki betur séð en að þetta hljóti að vera ráðstöfun, sem vinnur gegn verðbólgunni, að skattleggja á þennan hátt aðrar eignir en spariféð og ríkisskuldabréfin. Hv. 5. þm. Reykv. nefnir það að vísu, að skattinum eigi að verja til fjárfestingar, og telur það til stuðnings sinni skoðun um, að með skattálagningunni sé ekki unnið gegn verðbólgunni. Þriðji hluti skattsins á að fara til veðdeildar Búnaðarbankans, sem veitir lán til stuðnings landbúnaðinum, en tveir þriðju í byggingarsjóð ríkisins. Úr þeim sjóði á að veita mönnum lán til að byggja íbúðarhús til eigin nota. Það, að menn byggi íbúðarhús eingöngu til þess að fullnægja eigin þörfum, er allt annað og ólikt því, þegar menn sækjast eftir að eignast sem mest af slíkum eignum umfram eigin þarfir, en í því skyni að hafa af því fjárhagslegan hagnað.
Hv. þm. Siglf. flutti ræðu um þetta mál og lýsti sig mótfallinn því, að frv. yrði samþ. Mér skildist á hv. þm., að hann teldi það óviðeigandi og jafnvel rangt að leggja skatt á eignir manna, ef þeir hefðu borgað tekjuskatt af þeim tekjum, sem eignirnar hafa myndazt af. Þetta þykir mér mjög nýstárleg kenning hjá hv. þm. Ég veit ekki betur en að það hafi verið gert alla tíð síðan lögleitt var, að greiða skyldi tekjuskatt og eignarskatt til ríkisins, að leggja skatt á eignir manna, þó að þeir hafi borgað tekjuskatt af þeim tekjum, sem myndað hafa eignirnar, og ég minnist þess ekki, að ég hafi heyrt þetta talið óeðlilegt fyrr en nú í dag, þegar ég hlýddi á ræðu hv. þm. Siglf. Hitt er annað mál, sem ástæða er til að vekja athygli á einmitt í sambandi við frv., sem hér liggur fyrir, að margir menn hafa á liðnum árum komizt hjá að borga eignarskatt af eignum sínum nema að nokkru og stundum mjög litlu leyti. Sérstaklega eru það þeir, sem hafa geymt fjármuni sína að mestu í fasteignum. Það er vegna þess, að fasteignamatið, sem eignarskatturinn er miðaður við, hefur verið óbreytt frá því um 1940 og þar til nú 1. maí 1957. Mörgum var það ljóst fyrir löngu, að fasteignamatinu átti að breyta, en aldrei fékkst því fram komið, þar til nú fyrir tveim árum, að samþ. voru lög um svonefnda samræmingu á matinu, en þar var þó of skammt gengið til leiðréttingar á matinu, þar sem það ákvæði var sett í l., að ekki mætti hækka gamla matið um meira en 400%, þ.e.a.s. fimmfalda það. En kunnugt er, að gangverð fasteigna hefur á sumum stöðum á landinn nú að undanförnu verið u.þ.b. 20 sinnum hærra en gamla fasteignamatið. Vegna þess að fasteignamatinu hefur ekki fengizt breytt, hafa menn komizt hjá að greiða eignarskatt af fasteignum sínum nema að nokkru leyti og stundum aðeins greitt skatt af litlum hluta af raunverulegu verðmæti þeirra. Þetta hefur m.a. ýtt undir kapphlaupið um að breyta peningaeignum í fasteignir og þannig átt sinn þátt í verðbólgunni.
Einmitt þetta, sem ég hér hef nefnt, að menn hafa að miklu leyti sloppið við að greiða hæfilegan eignarskatt af því fé, sem þeir hafa átt í fasteignum, gerir það ásamt fleiru sanngjarnt og eðlilegt, að þetta frv. verði samþ. og sá skattur, sem þar um ræðir, verði á lagður.
Ég hef hér sérstaklega nefnt fasteignirnar, vegna þess að gera má ráð fyrir, að þær verði helzti skattstofninn, en um aðrar eignir en fasteignir, sem hér koma til skattlagningar, má einnig segja, að þær hafi yfirleitt verið lægra metnar til eignarskatts á liðnum árum en sem söluverði nemur, þó að munurinn hafi þar ekki verið eins geipilegur og á matsverði og gangverði fasteignanna. En þó hafa menn vitanlega ýmsir haft verðbólgugróða af öðrum eignum en fasteignum. Og það var ekki fyrr en með nýju skattal. 1954, sem ákvæði voru sett um skattfrelsi sparifjár. Miklar eignir eru nú hjá einstaklingum, sem safnazt hafa vegna verðbólgunnar og sloppið hafa undan eignarskatti á liðnum árum vegna ákvæða eignarskattslaganna, og margir hafa aukið eignir sínar með því að stofna til skulda og komast hjá að greiða nema nokkurn hluta til baka af því verðmæti, sem þeir fengu að láni, vegna verðbólgunnar. Þetta gerir ásamt öðru eðlilegt, að þessi skattur á stóreignir verði á lagður.
Víst má gera ráð fyrir því, að ákvæði frv. um, að sparifé og viss skuldabréf séu undanþegin skattinum, eftir sömu reglum og nú gilda við álagningu eignarskatts, verði til þess að örva sparifjármyndunina, og er vel, ef svo tekst til.
Hv. þm. Siglf. lét í það skína í ræðu sinni, að hann teldi nokkurn vafa leika á því, að löglegt væri að leggja á slíkan skatt. Ég held jafnvel, að þetta hafi verið nefnt af öðrum ræðumanni, en er þó ekki viss um það. Þetta sé ég ekki að hafi við nokkur rök að styðjast.
Þegar allar ástæður eru athugaðar, tel ég engan vafa á, að það sé í alla staði löglegt að leggja á slíkan skatt, og læt mér ekki koma til hugar, að nokkur dómstóll muni úrskurða á annan veg, ef það mál kemur einhvern tíma til álita hjá dómara.
Hv. þm. Siglf. helgaði Sambandi ísl. samvinnufélaga og öðrum samvinnufélögum einn kaflann í ræðu sinni, talaði þá um „stórveldi“ og „óeðlileg skattfríðindi“, sem hann sagði að ætti að afnema. Ég vil benda á það, að samkv. frv. á að skipta eignum samvinnufélaga niður á félagsmennina til skattlagningar hjá þeim eins og eignum hlutafélaga niður á hluthafana. Þó segir í 4. gr. frv., að með eignum félaga, sem skiptast samkv. ákvæðum frv., teljist ekki innstæðufé í
sameignarsjóðum, sem samkv. landslögum er óheimilt að skipta milli félagsmanna við félagsslit, en á þá að afhendast því opinbera til varðveizlu, sbr. lög nr. 46 1937. Hér er vitnað í samvinnulögin.
Þegar stóreignaskatturinn var á lagður 1950, var þetta framkvæmt með alveg sama hætti, að innstæðufé í óskiptilegum sameignarsjóðum kom ekki til skiptingar og skattálagningar. Þótti þetta þá sanngjarnt, og er það vitanlega eins enn.
Í brtt. sínum vill hv. minni hl. fjhn. tengja við þetta fyrirmæli um, að fé, sem forðum var lagt í nýbyggingarsjóði útgerðarfyrirtækja, skuli dregið frá eignum. Engin ástæða er til að tengja þetta saman. Nýbyggingarsjóðirnir voru að vísu undanþegnir stóreignaskattinum 1950, en þá voru skip líka talin með vátryggingarverði. Nú á aftur á móti samkv. brtt. meiri hl. að draga 40% frá vátryggingarverði fiskiskipa.
Hv. þm. Siglf. nefndi afa sinn, Jakob Hálfdánarson, í ræðu sinni. Frásagnir um hann eru geymdar og munu geymast, en hann var einn af brautryðjendum samvinnustefnunnar hér á landi. Það er því mörgum ljóst, hvert viðhorf Jakobs Hálfdánarsonar var til þeirra mála og hvernig hann vann að framgangi þeirra. Ekki mundi honum hafa geðjazt vel að þeirri kenningu, sem sonarsonur hans, hv. þm. Siglf., hreyfði hér, að réttmætt væri að skattleggja óskiptilega sjóði samvinnufélaga á sama hátt og um eign eins manns væri að ræða.
Sennilega hefði verið ástæða til að andmæla fleiru af því, sem fram hefur komið frá þeim, sem beita sér móti frv., en ýmsu af því hefur þegar verið svarað af öðrum, og læt ég því hér staðar numið. Ræður þeirra sumra hafa líka að verulegu leyti snúizt um aðra hluti en það frv., sem hér er á dagskránni.