18.05.1957
Neðri deild: 100. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1603 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)
177. mál, Landsbanki Íslands
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Aðrir hv. þm. hafa nokkuð rætt efni þessara frv., og skal ég ekki á þessu stigi málsins víkja að því, sem neinu verulegu skiptir. En að gefnu tilefni í ræðu hæstv. forsrh. langar mig til þess að beina til hans fsp., sem ég tel að sé nauðsynlegt að svarað sé og þm. fái nánari vitneskju um.
Það er af því tilefni, að hæstv. ráðh. rekur aðstöðu sjálfstæðismanná í bönkunum, eins og margir hafa minnzt á hér, og vekur athygli á því, að sjálfstæðismenn séu í meiri hluta af bankastjórum og af bankaráðsmönnum, segir í því sambandi, að áður hafi enginn einn flokkur ráðið óskorað í bönkunum. Hann orðaði það nú að vísu: viðskiptabönkunum, hann hefur sennilega verið minnugur þess sem formaður bankaráðs Búnaðarbankans, að þar hafa framsóknarmenn bæði meiri hluta í bankaráði og einn bankastjóra og samkvæmt þessari kenningu alráðir. En hann orðaði það svo, að enginn einn flokkur hefði áður ráðið óskorað í viðskiptabönkunum og við þetta gæti stjórnin ekki unað.
Nú hafa þm., sem hér hafa talað, bent á, hversu fjarstæðukennt er og eiginlega óskiljanlegt, að hæstv. forsrh. skuli láta sér það um munn fara, að sjálfstæðismenn hafi ráðið óskorað í þessum bönkum, eins og stjórn þeirra er háttað. En af þessu dregur hann þessa ályktun: Það liggur í augum uppi, — ég held, að þetta sé nokkurn veginn eins og hæstv. ráðh. orðaði það, — að þessu getur ríkisstj. ekki unað. Og síðan bætir hæstv. ráðh. við: Og til þess liggja svo augljós rök, að ekki þarf að rekja.
Nú fer ég ekki fram á annað og meira en að hæstv. ráðh. við þessa 1. umr. málsins geri mér og öðrum hér á þingi grein fyrir þessum svo augljósu rökum, sem til þess liggja, að hæstv. ríkisstj. geti ekki unað við þessa skipan.
Um leið og ég beini þessari fsp. til hæstv. ráðh. og vil mega vænta þess, að úr henni verði leyst greiðlega, þá ætla ég að láta fylgja fsp. til hv. þm. N-Þ., af því að það vill svo til, að við höfum sameiginlega átt sæti í stjórn eins bankans, sem hér á hlut að máli, Útvegsbankans, hvort hann geti tekið undir þessar staðhæfingar hæstv. forsrh. og hvenær og hvort það hafi nokkru sinni komið fram í stjórn þessa banka, að hann hafi þurft þar að lúta í lægra haldi fyrir ofríki sjálfstæðismanna eða yfirráðum þeirra, eða auk heldur nokkurn tíma lagt til, að nokkurt mál næði þar fram að ganga, sem síðan hefur strandað á atkvæðamagni sjálfstæðismanna.
Þessari fsp. vildi ég leyfa mér að beina til hv. þm. N-Þ. sem bankaráðsmanns í Útvegsbankanum.
Á þessu stigi málsins skal ég ekki segja meira, en ég hygg, að það kunni nokkuð að vera til upplýsingar í sambandi við þær umr., sem hér fara fram, ef hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn þessara frv., sem hér liggja fyrir, vildu koma til dyranna eins og þeir eru klæddir og með hreinskilni segja frá því, sem þeim í brjósti býr, og hver eru þau augljósu rök, sem liggja að því, að þessi frv. hafa verið flutt.