24.05.1957
Neðri deild: 105. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)
177. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ja, mikið var, að beljan bar. Það kom þá eitt dæmi um þessa ógnarlegu misbeitingu á pólitísku valdi sjálfstæðismanna í bönkunum, sem síðasti ræðumaður nefndi, og hún er sú, að af 112.6 millj. til sveitarfélaganna hafi Hafnarfjarðarbær ekki nema 350 þús. kr. lán. Og svo er spurt í þessu sambandi: Hvað hefur Reykjavíkurbær mikið lán hjá Landsbankanum, sem er viðskiptabanki Reykjavikurbæjar?
Hvað upplýsir þetta um pólitíska misnotkun, þó að nefnt væri, sem ég hef ekki á takteinum, hver lán Reykjavíkurbæjar eru hjá Landsbankanum, því að þetta fer mjög eftir árstíðum og hvernig komið er innheimtu útsvaranna?
Það, sem máli skiptir, er þetta: Hefur Hafnarfjarðarbær orðið fyrir pólitískri misbeitingu sjálfstæðismanna í viðskiptabanka sínum í lánveitingum? Var því haldið fram af hv. síðasta ræðumanni? Nei, því var ekki haldið fram. En það er látið í það skína, að 350 þús. sé lítið, miðað við 112.6 millj. til allra sveitarfélaganna, og það er látið í það skína, að þetta þýði það, að sjálfstæðismenn hafi mismunað Hafnarfjarðarbæ, þar sem hefur staðið svo á, að Alþýðuflokksmenn hafa lengst af haft meiri hluta.
En ég vil þá upplýsa þennan hv. þm. um það, að þetta bæjarfélag hefur engu minni aðstoð haft hjá viðskiptabanka sínum, Útvegsbankanum, eftir að ég kom þar í bankann, heldur en áður, þegar enginn sjálfstæðismaður var í bankastjórninni, og fyrirtæki þessa bæjarfélags hafa ekki fengið minni, heldur sjálfsagt að verulegu leyti meiri fyrirgreiðslu í viðskiptabanka sínum heldur en ýmis önnur einkafyrirtæki, og ég á þar við bæjarútgerðina. Ég nefni það alveg sérstaklega vegna þess, að ég hef heyrt því fleygt, að á fundum Alþýðuflokksmanna hér í Reykjavík hafi staðið upp menn, sem hafi talið, að það væri nauðsynlegt að breyta fyrirkomulagi á stjórn Útvegsbankans, ekki breytingarinnar vegna, heldur vegna þess, að Hafnarfjarðarbær gæti ekki fengið þá fyrirgreiðslu í þessum viðskiptabanka sínum, sem óskað væri eftir. En Hafnarfjarðarbæ hefur aldrei verið meinað um neina fyrirgreiðslu í þessum banka, síðan ég kom í þennan banka, sem hann hefur áður fengið í bankanum. Í einu og öllu hefur þessi banki reynt eftir fremstu getu á hverjum tíma að sinna þessu fyrirtæki eða þessu bæjarfélagi. Og ég spyr: Hvenær hefur nokkur einasta lánbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðar borizt viðskiptabanka sínum, sem hafnað hafi verið með meirihlutaaðstöðu sjálfstæðismanna í viðskiptabankanum? Það væri nokkur upplýsing, ef fyrir hendi væri dæmi um það. Ég get spurt þennan hv. þm., hvort hann viti um nokkurt slíkt dæmi, en ég get um leið svarað honum, að það er alls ekki fyrir hendi.
Ég var að segja áðan, að því er haldið fram í blöðunum, að sjálfstæðismenn fari um landið og noti aðstöðu sína fyrir kosningar og lofi fólkinu gulli og grænum skógum varðandi lánveitingar í bönkunum. Ég bað menn um, hvort einhver gæti bent á nokkurt dæmi í þessu sambandi, sem snertu mig, og ég vil segja það af fullkominni hreinskilni, að einmitt núna síðari árin og fyrir síðustu kosningar er kannske fyrst og fremst erfiði að ferðast um í pólitískum erindum sem bankastjóri, vegna þess að menn freista þess að eiga viðræður við menn um, hvort eitthvað sé hægt að liðsinna þeim, vegna þess að aðstaðan hefur verið þannig, að það er næstum því hver einasta beiðni, sem borizt hefur á slíkum ferðum, sem þarf því miður að hafna. Þetta er sannleikurinn í málinu, og ég hygg, að það sé miklu erfiðara pólitískt fyrir mann að hafa þann feril eftir sig sem bankastjóri, að hann hafi alls ekki getað leyst úr þeim vandamálum, sem menn báru upp fyrir viðkomandi mann.
Ég held naumast, að nokkur af þm. hér trúi því persónulega, að yfirleitt bankastjórar þessara banka hafi misnotað sína aðstöðu pólítískt, og ég hef aldrei í einkaviðræðum við þm. orðið fyrir ásökunum nokkuð í áttina við það, sem hér er um að ræða, eða ekki aðeins ekki í áttina við, heldur neinum slíkum ásökunum eins og hafðar eru í frammi almennt um pólitíska misbeitingu og í blöðum þessara flokka. Þó minnist ég þess að vísu að hafa einmitt átt viðræður við einn þm., sem hefur dálítið verið á þeirri skoðun, að svona hlyti þetta að vera. Og mér hefur gengið nokkuð erfiðlega að vísu að sannfæra hann um, að svona hlýtur þetta ekki að vera og svona gengur þetta ekki, og ég hygg, að það mundi ekki heldur ganga svo, þegar aðrir menn taka við störfum í bönkunum nú og menn af öðrum pólitískum flokkum.
En mér þykir ákaflaga vænt um, að fram hefur komið þetta eina dæmi um Hafnarfjarðarkaupstað, alveg sérstaklega vegna þess, að mér er kunnugt um, eins og ég sagði áðan, að það hefur á flokksfundum á bak við tjöldin verið einmitt haft í frammi sem dæmi þess, að það væri nauðsynlegt til þess að opna fremur en verið hefði lánveitingar til þessa bæjarfélags frá bönkunum að breyta um skipun þeirra mála. En í þessu sambandi liggur fyrir, að það hefur aldrei verið hafnað með meirihlutavaldi sjálfstæðismanna í viðskiptabanka þessum, — og ég hygg, að Útvegsbankinn sé aðalviðskiptabanki þessa bæjarfélags, — lánbeiðnum frá þessu bæjarfélagi.
Ég vil svo að lokum segja það í sambandi við ræðu síðasta ræðumanns, hv. 5. landsk., að það er ekki hægt að skjóta sér á bak við það', að það sé ekki hægt að nefna dæmi, sem innt er eftir, af því að viðskiptin við bankana séu trúnaðarmál. Það eru aðeins starfsmenn bankanna, sem bundnir eru þagnarheiti og trúnaðarmál gagnvart þeim, hvað um er að ræða. Aðrir aðilar og einstakir borgarar og einstakir þm., sem vita um misfellur í lánveitingum bankanna og því um líkt, eru ekki bundnir neinum þagnarskuldbindingum í þessu sambandi.
Hitt er svo alveg rétt, að í þessu sambandi skiptir ekki aðalmáli, eins og kom fram hér við 1. umr., að rekja einstök dæmi, heldur gera grein fyrir þeirri meginástæðu, sem höfð er uppi fyrir flutningi þessara mála, að almenn misbeiting pólitísks valds eigi sér stað og að árekstrar eigi sér stað af þessum völdum innan bankanna — að finna þeim orðum stað — og pólitískir árekstrar milli bankanna og ríkisvaldsins, sem geri ríkisvaldinu ókleift að koma fram sínum málum. Ef svo væri, þá væri auðvitað fullkomin efnisástæða fyrir ríkisvaldið að grípa til ráða eins og hér er um að ræða. En það er með þetta eins og það eina dæmi, sem hér var nefnt, að þessar ástæður eru ekki fyrir hendi, þær eru tilbúnar, þær finnast ekki, og þess vegna er ekki bægt að benda á þær.
Hitt getur maður svo skilið, og það er ómögulegt að mótmæla því, að núverandi stjórnarflokkar telji sínum hag eitthvað betur komið að geta skipað í góð og vel launuð og mikil embætti, sem alltaf eru nú kannske hins vegar hvorki skemmtileg né auðunnin, ýmsum af sínum áhrifamönnum og telji sig standa sterkari fótum fyrir það. Þetta er kannske skiljanlegur og eðlilegur hugsunarháttur. En sjálfur hygg ég, að þeir muni fljótt finna, eftir að þeir hafi skipað sína menn í þessar ábyrgðarstöður, að það verður ekki sótt neitt gull í greipar þeirra manna, sem þar verður falin forsjá, sem ekki var áður hægt að sækja með sanngirni til þeirra manna, sem fram til þessa hafa farið með stjórn þessara mála. Og ég efast um, eins og aðstaðan er í þjóðfélaginu í dag, að það verði, þegar til lengdar lætur eða þegar á reynir, svo sérstaklega mikils virði fyrir þessa stjórnarflokka að taka við þeirri ábyrgð, sem hér er um að ræða.
Ég vil í þessu sambandi alveg sérstaklega laka fram, að þegar slíku er haldið fram af okkur, þá segja andstæðingar okkar: Ja, af hverju láta sjálfstæðismenn þá svona? Af hverju er þeim þá svona sárt um, að þessi breyting er gerð? Það er vegna þess, að hvorki sjálfstæðismenn né aðrir heiðarlegir menn vilja liggja undir jafnsvívirðilegum ásökunum og þeir hafa verið bornir í þessu sambandi, án þess að færð væru nokkur rök fyrir þeim. Það vill enginn heiðarlegur maður og það mundi enginn heiðarlegur maður í stjórnarflokkunum sætta sig við það, að það séu borin fram á Alþingi Íslendinga frumvörp til l. um breyt. á þeim fyrirtækjum, sem þeir eiga að veita forstöðu, og haldið fram, að það sé vegna þess, að þeir hafi á einhvern hátt, ef þeir eru stjórnarmeðlimir þar, misbeitt herfilega og svívirðilega aðstöðu sinni þar, ef sömu menn vita og finna inni á sér með góðri samvizku, að allt eru þetta ósannindi og ekki aðeins ósannindi, heldur vísvitandi ósannindi þeirra manna, sem með þau hafa farið. Það eru vísvitandi ósannindi, og ég leyfi mér að lýsa sök á hendur þeim mönnum, sem standa að baki þessum ásökunum í garð sjálfstæðismanna og sitja hér á þingpöllum og með þögn sinni hafa tekið undir þessar ásakanir. Mig undrar það, að í þessum þremur þingflokkum skuli enginu þm. hafa haft nægjanlega mikinn drengskap til að bera til þess að standa hér upp og mótmæla þessum ásökunum, þessum ósönnu ásökunum, vegna þess að ég veit, að í hópi þm. hér í liði stjórnarinnar eru fjölmargir menn, sem vita ósköp vel, að það, sem hér er á borð borið fyrir almenning, bæði í þingsölunum sem ástæður fyrir flutningi þessara mála og í málgögnum stjórnarflokkanna, eru ekki sannar sakir.
Það eru sannarlega þeir drengskaparmenn í þessum stjórnarflokkum, að þess hefði mátt vænta, að einhver hefði fundið sig knúinn til þess af eigin samvizku til þess með þögn sinni að gerast ekki talsmaður þessara ósönnu ásakana í garð sjálfstæðismanna.