24.05.1957
Neðri deild: 107. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1672 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)
177. mál, Landsbanki Íslands
Jón Pálmason:
Herra forseti. Hv. frsm., þm. V-Húnv. (SkG), vildi telja það mjög athugavert, sem ég nefndi, að hér væri verið að stofna til svipaðs ástands og ætti sér stundum stað á vissu sviði í Ameríku, þegar stjórnarskipti færu fram, að þá væru reknir margir embættismenn. Ég held nú, að þetta eigi sér litið stað í bönkum hjá Bandaríkjamönnum, því að þeir munu vera flestir einkabankar, svo að það snertir ekki þá. En okkar bankakerfi, sem hefur verið undanfarið hér ríkjandi, er mjög sniðið eftir því, sem gerist á Norðurlöndum og jafnvel í Bretlandi. Ef við ættum hins vegar að snúa okkur til austuráttar og fara að miða við það, sem þar gerist, þá þyrfti ekkert að efa um það, hvernig farið væri að, því að þeir væru þá annaðhvort fangelsaðir eða drepnir, sem væru á móti stjórninni, hvort sem þeir væru í bönkum eða annars staðar, ef þeir vildu ekki fara eftir öllu, sem þeim væri fyrirskipað.
Það var nú auðfundið á hv. síðasta ræðumanni, hæstv. forseta þessarar deildar (EOl), að hann er inni á þeirri línu, sem er kannske ekkert undarlegt, að hvenær sem skipt sé um stjórn, þá sé sjálfsagt að skipta um a.m.k. allt vald í seðlabankanum, því að það verði að fara saman seðlabankinn og ríkisstj., það verði að vera allt á sömu línunni. Þetta er í sjálfu sér ekkert undarlegt mál, og það mundi þýða það, að ef t.d. Alþýðubandalagið gæti lagt undir sig svo mikið af Alþfl. og Framsfl., að það næði hreinum meiri hluta, eins og mjög stefnir í áttina til, þá mundi það ekki verða hikandi við það, ef það næði stjórn landsins, að reka þá bankastjóra, sem Framsfl. á væntanlega eftir þessa byltingu í seðlabankanum a.m.k. Það hefur þess vegna þótt mjög áriðandi og varlegra að setja það inn í þetta frv., að aðalbankastjóri seðlabankans, sem er nú víst hugsað að sé einn af máttarstólpum Framsfl., verði skipaður af forseta Íslands, svo að hann eigi það þó a.m.k. víst að hafa laun, þó að Alþýðubandalagið eða aðrir kæmust til valda og vildu víkja honum burt.
Nú skal ég ekki fara meira út í það, en víkja aðeins örfáum orðum að því, sem hv. 5. landsk. (BG) nefndi í sambandi við mína ræðu áðan. Hann sannaði það og viðurkenndi, að það, sem ég upplýsti hér, væri rétt. Það er bara ekki bæjarsjóðurinn sjálfur í Hafnarfirði, sem hefur tekið þetta lán, það er fyrirtæki, sem bæjarsjóðurinn á, og á því geri ég ákaflega lítinn mun. Nú veit ég ekkert um það, ég hef ekkert spurzt fyrir um það, nema Hafnarfjarðarbær og hans fyrirtæki skuldi miklu meira bæði í Landsbankanum og Útvegsbankanum heldur en hér hefur verið upplýst. Það getur vel verið. En ég bara fékk af hendingu upplýsingar um það, að þessi fyrirtæki, sem þm. nefndi og Hafnarfjarðarbær á, fengu bara á einu bretti 31/2 millj. í fyrra, á því ári, þegar var svo mikill lánsfjárskortur, að það var áreiðanlegt, að það voru fleiri en bæjarstjórn Hafnarfjarðar, sem hafa orðið að ganga á milli banka og peningastofnana til að biðja um smáupphæðir og orðið að fara bónleiðir til búðar. Ég held þess vegna, að það sé mjög vafasamt, að það séu mörg dæmi til þess, að það hafi nokkurt fyrirtæki á því ári fengið hlutfallslega slíka upphæð í einu hjá nokkrum okkar banka eins og þetta, sem ég nefndi hér, sem er 31/2 millj. í einu lagi.
Viðvíkjandi því, að hv. þm. hafi í dag eingöngu átt við bæjarsjóðinn sjálfan, þá verð ég nú að segja það, hvort sem er Hafnarfjarðarbær, Reykjavík eða hvaða annað bæjarfélag sem er, að þá er á því ákaflega lítill mismunur, það er mjótt bil þar á milli, hvort það er bæjarsjóðurinn sjálfur ellegar það eru fyrirtæki, sem bæjarsjóður eða bæjarfélagið á. Þess vegna var síður en svo, að það, sem kom fram í ræðu hv. þm., hafi hrakið nokkuð af því, sem ég upplýsti hér, heldur hefur það sannazt við þessa umr., að þetta eina dæmi, sem þessi ungi þm. vildi nú fara að færa til sönnunar fyrir öllu slúðrinu um hlutdrægnina í bankanum, hefur sýnt sig að vera síður en svo til sönnunar því, að bankastjórar bankanna hafi sýnt bæjarfélagi Hafnarfjarðar nokkra hlutdrægni, heldur þvert á móti, enda hefði það ekki verið hæfilegt, ef því bæjarfélagi hefði verið nokkuð mismunað frá því, sem almennt gerist og gengur. Ég held þess vegna, að þó að það sé út af fyrir sig þakkarvert, að einhver maður úr stjórnarflokkunum sýni einhverja viðleitni til þess að færa rök fyrir þeim síendurteknu staðhæfingum, sem fluttar hafa verið bæði á Alþingi og í blöðum og á fundum, þá hefur hann verið óheppinn í valinu á dæminu.
Ég skal svo ekki um þetta fjölyrða meira, nema tilefni gefist til.