24.05.1957
Neðri deild: 107. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (1551)
177. mál, Landsbanki Íslands
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, sem ég vildi segja, og hv. 5. landsk. þm. gaf mér nú tilefni til þess. Hann hefur hér í dag og í kvöld verið að sýna viðleitni til þess að finna fullyrðingum stað, sem hann hefur leyft sér að viðhafa hér. Eins og hv. þm. A-Húnv. (JPálm) sagði hér áðan, er þetta virðingarverð viðleitni, en tekst ekki höndulega, þar sem stoðirnar og rökin vantar fyrir fullyrðingunum. Þessi hv. þm. hefur tekið Hafnarfjarðarbæ upp á sína arma og verið að tala um hann og lánveitingar til hans alveg sérstaklega. Hann hefur viljað gefa í skyn, að Hafnarfjarðarbær væri alveg sérstakt olbogabarn hjá sjálfstæðismönnum, um leið og hann hefur fullyrt, að sjálfstæðismenn væru einráðir í bönkunum og misnotuðu þetta einræði sitt. En hvers vegna skyldu sjálfstæðismenn, ef svo væri nú, að þeir réðu bönkunum einir, vilja níðast á Hafnarfjarðarkaupstað? Hafnarfjarðarkaupstaður á ekkert nema gott skilið, og vissulega búa þar margir ágætismenn. Fyrir síðustu kosningar var þm. frá Sjálfstfl. þm. Hafnarfjarðar, og enn verður keppt um þetta þingsæti á milli flokkanna. Vill hv. 5. landsk. þm. halda því fram, um leið og hann fullyrðir, að sjálfstæðismenn séu hlutdrægir, að þá séu þeir svo illa að sér, svo óklókir, að þeir vilji ekki framvegis halda fylgi í Hafnarfirði? En væri ekki það vísasti vegurinn til þess að tapa fylgi í Hafnarfirði að sýna hlutdrægni og níðingsskap á þessum bæ? Ég fullyrði, að þessi fullyrðing hv. 5. landsk. er gerð af vilja, en ekki mætti, og er leiðinlegt til þess að vita, að ungur þm. skuli fara þessa leið, þm., sem maður að óreyndu gæti trúað til þess að vilja hafa það, sem sannara reynist, það, sem réttara er, en ekki að fullyrða út í bláinn slagorð, sem enga stoð eiga í veruleikanum.
Nú væri fróðlegt að skyggnast dálítið aftur í tímann. Það væri fróðlegt að gera sér grein fyrir því, að sjálfstæðismenn hafa ekki alltaf ráðið miklu í Útvegsbankanum, sem mér skilst á hv. 5. landsk. að sé aðalviðskiptabanki Hafnarfjarðarkaupstaðar, ef þessi kaupstaður er þá ekki svo hamingjusamur að þurfa ekki að skulda eins og ýmis önnur bæjarfélög. Ég mundi segja, að það væri Hafnarfjarðarkaupstað til hróss, ef fjárhagurinn þar væri þeim mun betri en margra annarra kaupstaða, að hann væri ekki sokkinn í skuldir, eins og mörg önnur bæjarfélög eru. En það er nú ekki svo ýkja langt síðan sjálfstæðismenn áttu engan bankastjóra í Útvegsbankanum og réðu þar ákaflega litlu. Hefur verið dregið inn? Hafa skuldir Hafnarfjarðarkaupstaðar kannske lækkað í Útvegsbankanum, siðan sjálfstæðismenn fengu þar bankastjóra? Ekki sagði hv. 5. landsk. það, heldur sagði hann hér áðan, að þrátt fyrir hlutdrægni sjálfstæðismanna hafi Hafnarfjarðarkaupstaður fengið 150 þús. kr. að láni, ég held hann hafi sagt: síðastliðinn vetur; það er að vísu ekki neitt mikið, en reikningurinn er þó ekki lokaður og einhverjir möguleikar virðast fyrir hendi. Ég vil áminna þennan hv. unga þm., sem gæti verið efnilegur og vonandi vill fara hina betri leið, að tileinka sér það, sem er rétt, en ekki rangt. Ég vil minna hann á, að sjálfstæðismenn skipuðu flokksbróður hans fyrir formann bankaráðsins í Útvegsbankanum, og það er hann nú. Hefur flokksbróðir hv. 5. landsk. kvartað undan því, að Útvegsbankinn sýndi hlutdrægni gagnvart flokksbræðrum hans, sem ráða í Hafnarfjarðarkaupstað, og hér er líka að hálfu leyti flokksbróðir hv. 5. landsk., ef hann er það þá ekki að öllu leyti, því að það er dálítið erfitt að gera sér grein fyrir því, hvort hv. 5. landsk. er frekar Alþýðuflokksmaður en framsóknarmaður, svo að það er nú nærtækt fyrir hv. 5. landsk. að spyrja hv. þm. N-Þ. (GíslG) um það, hvort til ágreinings hafi komið í bankaráði Útvegsbankans um lánveitingar til Hafnarfjarðarkaupstaðar?
Það er enginn vafi á því, að ef um slíkt hefði verið að ræða í Útvegsbankanum, að Útvegsbankinn hefði viljað niðast á Hafnarfirði, þá hefði komið kæra frá Alþýðuflokksmönnum í Hafnarfirði til formanns bankaráðs Útvegsbankans, sem vitað er að er Alþýðuflokksmaður, og sá ágreiningur hefði verið gerður að umtalsefni í bankaráðinu.
Hv. þm. N-Þ. getur vitnað í þessu máli, þar sem hann á sæti í þessari hv. deild og þar sem hann sennilega vill hlaupa undir bagga með þessum hálfbróður sínum, skoðanabróður í stjórnmálum, þegar hann nú hér stendur ekki vel að vígi með þær fullyrðingar, sem hann hefur í frammi haft.
Það virðist vera svo, að Hafnarfjarðarkaupstaður hafi ekki sótt sérstaklega fast á undanfarin ár með lán. Eins og sagt hefur verið hér í dag, þá er enginn mælikvarði um það, hvort vel eða illa hefur verið farið með Hafnarfjarðarkaupstað í þessu tilfelli eða ekki, eftir því, hvað bærinn skuldar mikið, því að bærinn vitanlega skuldar ekki meira en hann hefði haft þörf fyrir að skulda. Það mætti lesa það út úr ummælum hv. 5. landsk., að það væri einhver sérstök ógæfa fyrir Hafnarfjarðarkaupstað að vera ekki miklu skuldugri en hann er. — Hann nefndi vatnsveituna, að hann hefði ekki fengið þá úrlausn til hennar, sem hann hefði óskað. En hvað er langt síðan Hafnarfjarðarkaupstaður fór að ræða um það að endurbyggja vatnsveituna? Það var nákvæmlega um sama leyti og Hafnarfjarðarkaupstaður fór að ræða um það að byggja sérstakt fiskiðjuver, því að þá uppgötvuðu þessir menn það, að um leið og þeir byggja stórt fiskiðjuver, þá þurftu þeir á miklu vatnsmagni að halda og gamla vatnsveitan nægði ekki þar til.
Það hefur verið bent á það, að Hafnarfjarðarkaupstaður hafi fengið góða fyrirgreiðslu í sambandi við byggingu fiskiðjuversins, og það er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt. En ef bankastjórar Landsbankans, sem eru tveir sjálfstæðismenn og einn framsóknarmaður hefðu viljað sýna mikla hlutdrægni gagnvart Hafnarfjarðarkaupstað, hefðu þeir vitanlega getað neitað um þetta lán. Ég fyrir mitt leyti taldi eðlilegt, að Hafnarfjarðarkaupstaður fengi fyrirgreiðslu með þetta frystihús, og ég segi eins og hv. þm. A-Húnv.: það er harla lítill munur á því, hvort það er bæjarsjóðurinn sjálfur, sem tekur þetta lán í Landsbankanum, 31/2 millj. á s.l. ári, eða hvort það er fyrirtæki, sem bærinn á að öllu leyti. Það er vissulega lán, sem veitt er til bæjarins. Ég held, að hv. 5. landsk. þm. ætti að hætta þessum orðaleik, sem hann hefur viðhaft hér í því skyni að reyna að finna fullyrðingum sínum stað, þeim fullyrðingum, að sjálfstæðismenn hafi beitt hlutdrægni og rangsleitni, vegna þess að hann kemst ekki undan því, að þetta hittir að nokkru leyti hans eigin flokksmenn og það hittir einnig bankastjóra Framsfl., sem eru stuðningsmenn þessarar stjórnar, því að það þýðir ekki að halda því fram, að bankastjórar Framsfl. í Útvegsbankanum og í Landsbankanum hafi engu ráðið og þeir hafi engu fram komið af því, sem þeir vildu.
Ég held, að hv. 5. landsk. þm. hefði átt að reyna að finna önnur rök fyrir flutningi þessara mála heldur en þau, sem hann hér viðhafði. Hann hefði átt að segja hreinskilnislega: Alþfl.-menn og Alþb.-menn vildu fá embætti í bönkunum. Alþfl. vildi fá einn aðalbankastjóra í viðskiptadeild Landsbankans, Alþfl. vildi fá einn stjórnanda í seðlabankanum, Alþfl. vildi fá aðstoðarbankastjóra í Útvegsbankanum og Alþfl. vildi fá aukin völd, fleiri embætti. Þetta hefði hann átt að segja, og hann hefði átt að bæta því við: það er ágætis lýðræði í þessu landi, að Sjálfstfl., þótt hann hafi 43% af kjósendum, þá hafi hann 3 bankaráðsmenn, þegar Framsfl., sem hefur 15% af kjósendum, fær 6 bankaráðsmenn og formenn bankaráðanna, og það er ágætis lýðræði, að Alþfl. með sín 16% eða hvað það var hafi jafnvel fleiri ráðamenn í bönkunum heldur en Sjálfstæðisflokkurinn.
Þess vegna ætti að segja þetta umbúðalaust: Af því að við höfum tök á því í dag að níðast á Sjálfstfl. og láta hann ekki hafa hlutfallslega hlutdeild í bönkunum, þá gerum við það. — Það er vitanlega alltaf hægt fyrir meiri hl. að nota sitt vald á þann veg að níðast á andstæðingnum, en hvort það borgar sig, hvort það er heiðarlegt, það er svo allt annað mál.
Ég held, að það sé ekki ástæða til að segja öllu meira um þetta. Allir, sem hafa hlustað á hv. 5. landsk. í dag og í kvöld, finna það og vita, að hann er með fullyrðingar, sem ekki styðjast við veruleikann. Af því að hann byrjaði hér á að tala óhugsað, þá reyndi hann að klóra í bakkann, en þau sinustrá, sem hann heldur í nú í þessum umr., hafa slitnað frá bakkanum og hann hefur ekkert til þess að halda sér í lengur.