24.05.1957
Neðri deild: 107. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

177. mál, Landsbanki Íslands

Jón Pálmason:

Herra forseti. Eftir þessa ræðu hæstv. félmrh. gæti það nú kannske komið til mála, að þessar umr. teygðust nokkuð fram á nóttina, og þó að það sé svo, að ég og fleiri sjálfstæðismenn eigum ekki eftir nema athugasemdatíma í þessu máli, þá er hér annað mál á eftir um bankalöggjöfina, sem við getum fengið tækifæri til þess að tala um. En hér komu fram hjá hæstv. félmrh. umbúðalaust og hreinlega þessar fullyrðingar, sem þeir hafa verið að stagast á í blöðunum og sýna ósvífni þessara manna, og það eru þessar fullyrðingar: Það er einn stjórnmálaflokkur alls ráðandi í bönkunum, sagði hæstv. ráðh. Og í annarri setningu talaði hann um einræðisstjórn Sjálfstæðisflokksmanna í bönkunum og það sé þetta, sem þurfi að afnema.

Hvort tveggja þetta er rangt. Það er vitaður hlutur, að í báðum bönkunum eru menn bankastjórar úr öðrum flokki og hafa verið, og það trúir því enginn landsmaður, að þeir bankastjórar hafi verið þar áhrifalausir menu, því að menn eins og Jón Árnason, Vilhjálmur Þór og Valtýr Blöndal eru ekki menn, sem hægt er að segja að mundu starfa í þessum bönkum upp á það, að þeir væru áhrifalausir menn. Og það, hvort þetta fyrirtæki eða hitt skuldar meira eða minna, það er ekki það atriði, sem hér er deila um, heldur er aðalatriðið það: hvenær hafa lán til þessara fyrirtækja, þessara manna, þessara bæjarfélaga verið afgreidd með meirihlutavaldi gegn atkvæðum þeirra bankastjóra, sem annar flokkur á í bönkunum? Það er meginatriðið.

Hæstv. félmrh. var með getsakir um það eða hálfgildings fullyrðingar, að sjálfstæðismenn mundu skulda mest í bönkunum, sjálfstæðismenn og sjálfstæðisfyrirtæki. Ég veit ekkert um þetta, því að ég hef ekki neinar skýrslur yfir það, en ég gæti vel trúað, að þetta væri rétt, og það er eðlilegt, að það væri rétt. Það er vegna þess, að Sjálfstfl. er stærsti flokkur þjóðarinnar og þar að auki er langmest af atvinnurekendum í Sjálfstfl., þeim mönnum, sem hafa haldið uppi atvinnunni í landinu og þurfa þess vegna á meira lánsfé að halda heldur en þeir, sem ekki stunda neina framleiðslu. En það sannar ekkert um, að það hafi verið nokkurri hlutdrægni beitt í úthlutun lána til þessara manna eða hinna.

Af því að ég hef ekki nema athugasemdatíma, skal ég nú ekki fara miklu nánar út í þetta, en aðeins segja að lokum, að það var mjög vel viðeigandi, að hæstv. félmrh. nefndi stráka og stráksskap, því að þessi frv., sem hér liggja fyrir um breytingar á bankalöggjöfinni, eru ekkert annað en stráksskapur.