24.05.1957
Neðri deild: 107. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
177. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég verð nú að segja það, að þessi hv. félagsmála-Hannibal, sem var með rassaköst hér í ræðustólnum áðan, gefur ekki tilefni til þess að lengja umræður um þessi mál fram á nótt. Það er í raun og veru lítið sem ekkert, sem fram kom í þessari ræðu, sem gefur tilefni til þess, að rætt sé um það alvarlega. Ég vil aðeins leiðrétta það hjá hæstv. félagsmála-Hannibal, þegar hann var að tala um, að sjálfstæðismenn hefðu eitthvað linazt í umræðunum um húsnæðismálin og týnt tölunni, að ég vil minna hann á, að það var ekki hægt að koma þessu frv. félagsmála-Hannibalsins út úr deildinni með atkvæðum stjórnarsinna. Það var ekki hægt. Það vantaði stuðningsmenn félagsmála-Hannibalsins, og við urðum hvað eftir annað að greiða atkv. á móti einstökum tillögum, til þess að þær gætu fengið þinglega afgreiðslu, af því að meiri hl. fékkst ekki fyrir tillögunum af hálfu hv. stjórnarliðs.
Það er undarlegt, hvað þessi maður fylgist illa með málum. Og það er kannske skýring á því, hvað hann getur verið mikill á lofti, en lítill í raun.
Þessi hæstv. ráðh. var að varpa fram spurningum, að þó að við sjálfstæðismenn hefðum verið spurðir: Hvað skuldaði Kveldúlfur og hvað skuldar Sigurður Ágústsson í bönkunum? — þá hefðum við ekki getað svarað því. Málið er ekki um þetta. Þeir hafa ásakað okkur fyrir hlutdrægni, og við höfum sagt: Bendið þið á hlutdrægnina. Þið eruð ekki bundnir neinu þagnarheiti. Þriðji maður, sem ekki er sjálfur bundinn þagnarheiti sem ábyrgur aðili í bankanum og þykist vita, eins og þessi hæstv. ráðh. þykist vita, um allt að því glæpi okkar sjálfstæðismanna, — það er ekkert, sem bindur hann þagnarheiti um að segja frá því. Nei, hæstv. ráðh. á ekki að skjóta sér undir það þagnarheit, sem bankastjórarnir hafa sem slíkir, til þess að hann geti talað. Honum er alveg óhætt að tala, enda talar hann, en hann talar ekki um það, sem hann hefur verið inntur eftir að tala um og gera grein fyrir þeim ávirðingum, sem hann og hans flokksmenn hafa borið á sjálfstæðismenn.
Um þessa tvo aðila, sem þarna voru nefndir, þá vill svo til, að annar aðilinn er í viðskiptum við þann banka, sem ég hef verið bankastjóri í, Sigurður Ágústsson. Hann sagði: Þó að spurt yrði um skuldir hans, mundi ég ekki geta svarað því eða ekki mega svara því.
Ég get sagt honum eitt, að skuldir Sigurðar Ágústssonar við Útvegsbankann eru minni nú en þegar ég kom fyrst í bankann, og þá var enginn sjálfstæðismaður bankastjóri í bankanum, og þær eru betur tryggðar þessar skuldir nú heldur en þær voru þá, og þá voru þrír bankastjórar, en enginn var sjálfstæðismaður. Ég hygg, að þetta sé nægjanlegt í sambandi við þetta eina tilfelli.
Reykjavíkurbæ bar nokkuð á góma. Ég hygg, að ef þau mál væru krufin til mergjar, þá mundi það sannast, að Reykjavíkurbær hefur ákaflega lítil lán í bönkunum umfram rekstrarlán í sambandi við innheimtu útsvara. Og ef væri farið að stilla upp því dæmi, hvað bæjarfélögin hefðu af fjárfestingarlánum frá bönkunum, Reykjavík annars vegar og önnur bæjarfélög, þá er mér nærri að ætla, að hlutfallið mundi verða þannig, að Reykjavík hefði þar minna hlutfall en mörg önnur bæjarfélög.
Nú segja hv. stjórnarsinnar: Ja, til þess voru refirnir skornir, að sjálfstæðismenn kæmust til embætta, að misbeita stöðu sinni. — Meina þessir menn raunverulega það? Meina þeir í einlægni það, að sjálfstæðismenn hafi tekið við trúnaðarstöðum í bönkunum og bankaráðinu til þess að misnota stöður sínar í pólitískum tilgangi? Er þessi hugsunarháttur efstur í huga þessara manna? Er það þess vegna, sem þeir leggja svo mikla áherzlu á að komast inn í bankaráðið í ríkari mæli en verið hefur og í bankastjórastöður? Á að trúa því? Ég spyr: Rekur menn nokkurn tíma minni til þess, að önnur eins aðför hafi verið gerð að' bönkum landsins, og þá skal ég taka alveg tiltekinn banka, Útvegsbanka Íslands, á árunum 1938–52, þegar enginn sjálfstæðismaður var bankastjóri þessa banka, að þeir bankastjórar, sem þar voru, enginn sjálfstæðismaður, hafi misnotað sína aðstöðu gagnvart sjálfstæðismönnum og níðzt á þeim, af því að þeir voru sjálfstæðismenn? En það gerðu sjálfstæðismenn ekki. Ég minnist þess ekki, og það má mikið vera, ef einhver man þetta betur en ég eða man öðruvísi en ég. Er það sennilegt, að þó að einn sjálfstæðismaður komi inn í bankann 1952 af þremur og annar sjálfstæðismaður um áramótin 1955–56, að þeir sjálfstæðismenn hafi komið með þeim höfuðásetningi að níðast á mönnum, sem ekki voru sama sinnis og þeir í stjórnmálum? Af hverju eru menn, sem sitja á þingbekk í ábyrgðarmiklum stöðum sem þingmenn þjóðarinnar, að bera slíkt á borð, og af hverju eru menn, sem eru komnir til enn meiri virðingar og valda í þjóðfélaginu, eins og hæstv. ráðherrar, að láta sér slíkt um munn fara?
Hæstv. félmrh. spurði um það, hvort við gætum svarað því, hvort KRON hefði haft jafngreiðan aðgang og aðrir að bönkunum, vegna þess að sjálfstæðismenn hefðu haft þar meiri hluta. Var ekki hæstv. ráðh. hér í deildinni í dag, þegar ég skýrði frá því, að það hefði verið 1945, þegar enginn sjálfstæðismaður var í bankastjórn Útvegsbankans, að rekstrarlán þessa fyrirtækis var lækkað um 40%, og ég skýrði einnig frá því, að þeim hefði verið gefinn kostur á því að ferfalda sína rekstrarlánaheimild á s.l. sumri í ágústmánuði, þegar tveir sjálfstæðismenn voru í bankanum af þremur?
Hafi KRON þess vegna haft of litið rekstrarlán fyrr og nú, þá er það a.m.k. ekki sök sjálfstæðismanna fyrir 1952, þegar þeir höfðu engan bankastjóra í þeim banka, sem þetta fyrirtæki hefur haft viðskipti við. En hitt er annað mál, að strax og innt var eftir því, var þó reynt að sýna lít á því að veita þeim nokkra úrlausn og ferfalda rekstrarlán þeirra, þó að ég efist ekki um, að þetta fyrirtæki telji engu að siður, að það hafi ekki haft nægjanleg rekstrarlán. En þó vil ég segja það, að aldrei hefur verið eftir því loforði gengið að hagnýta sér þetta loforð, sem gefið var í ágústmánuði 1956, að KRON mætti ferfalda rekstrarlán sitt. Allt eru þetta nokkrar upplýsingar í þessum málum.
Ég skal ekki fara inn á fullyrðingar eða sleggjudóma um það, hvort Samband íslenzkra samvinnufélaga hafi meira lán í bönkunum en heildsalar. Við höfum sennilega álíka mikla möguleika til þess að gera okkur grein fyrir því, hæstv. félmrh. og ég, og læt ég það liggja á milli hluta. En um útgerðarmennina sagði hæstv. ráðherra: Það er svipað með þá. — Hvað skyldu það vera margir sjálfstæðismenn, sem eru útgerðarmenn og reka skip, þar sem reyndin er sú, að þeir fá meiri lán út á sín skip, af því að þeir eru sjálfstæðismenn? Hann bauð upp á rannsókn í þessu efni. Ég tek undir þetta.
Og ég skora á hæstv. félmrh. og núverandi hæstv. ríkisstj. að láta fara fram á þessu rannsókn. Ef þessi rannsókn verður ekki látin fara fram hér eftir, þá er það vegna þess, að hæstv. ríkisstj. lætur undir höfuð leggjast að láta þessa rannsókn fram fara. Það er rétt, að töluvert handahóf ríkti um útgerðarlán í þeim banka, sem ég hef verið bankastjóri í, þegar ég kom í þennan banka. Það eru nú tvö ár síðan Landsbankinn og Útvegsbankinn höfðu samráð um að koma upp sérstökum útvegslánadeildum í hvorum banka um sig með algerlega samræmdum reglum um útgerðarlánin. Og það er sérstætt um útgerðarlánin yfirleitt í þessu landi, í hversu ríkum mæli þau fylgja nú orðið fast mótuðum skorðum.
Mér þykir vænt um, að það hefur gefizt tilefni til þess vegna hinna órökstuddu ásakana hæstv. félmrh., að óska beinlínis eftir því, að hæstv. ríkisstj. geri gangskör að því, og þar gæti hún þá kannske fengið eitthvert tilefni til þess að styðja sínar órökstöddu ásakanir við eitthvað, ef hún heldur, að hún finni eitthvað af því, sem þarna er verið að leita eftir.
Menn vinna ekki málstað sínum gagn með því að veifa gleraugunum og tylla sér á tá og vera miklir á lofti í ræðustólnum. Hæstv. félmrh. held ég að hafi gert sínum flokksbræðrum ákaflega lítið gagn með því síðasta innleggi, sem hann lagði í þetta mál.