27.05.1957
Efri deild: 110. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

177. mál, Landsbanki Íslands

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég veitti því athygli, að hæstv. forsrh. óskaði ekki, að málinu yrði vísað til n. Ég leyfi mér að gera það að till. minni, að því verði vísað til fjhn., og það, sem ég beindi til hæstv. forseta þessarar d., var einmitt það, af því að hann er form. n., að hann rannsakaði málið. Hann þarf ekki að hafa mikið fyrir því, það nægir honum dagurinn í dag. Hann gæti kvatt til stjórnendur bankanna, bæði meiri hluta, sem er þar, og minni hluta, og fengið úr því skorið, hvar það er, sem misbeiting hefur farið fram. Það er þetta, sem ég óska eftir. Ég trúi því ekki, að hæstv. forseti hafi ekki lesið blöðin undanfarið og séð, hvernig sakir eru bornar á saklausa menn.