27.05.1957
Efri deild: 110. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)
177. mál, Landsbanki Íslands
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur lagt til, að þessu frv. um Landsbanka Íslands verði ekki vísað til n. Ég verð að segja, að mig furðar mjög á þeim vinnubrögðum, sem ætlazt er til að hafa um slíkt mál.
Hér er um að ræða stofnun eða réttar sagt verulega skipulagsbreytingu varðandi seðlabanka landsins og löggjöf, sem breytir í verulegum atriðum núgildandi skipun á stjórn Landsbankans, sem verið hefur í gildi í nærri 30 ár.
Ég verð að lýsa furðu minni yfir því, að hæstv. ríkisstj. skuli ætla að knýja slíkt mál í gegnum þingið með þeim hætti, að því sé ekki einu sinni vísað til n. í þessari hv. deild.
Ég styð eindregið þá till., sem hv. þm. V-Sk. (JK) flutti hér, að frv. verði vísað til fjhn., og vitanlega hefur þingmeirihlutinn það algerlega í hendi sér að afgr. málið endanlega í tæka tíð, þó að sá sjálfsagði háttur verði á hafður um slíkt stórmál, að viðkomandi n. fái frv. til athugunar og meðferðar.
Annað atriði vildi ég aðeins minnast hér á. Það hefur verið látið liggja að því í orðum hæstv. forsrh. og komið greinilega fram frá ýmsum öðrum úr stjórnarherbúðunum, að ein af ástæðunum fyrir því, að gerbreyta þurfi yfirstjórn bankanna, sé, að Landsbankinn eða stjórn hans hafi ekki úthlutað lánum réttlátlega og megi margt gagnrýna í þeim efnum.
Ég vil aðeins vekja athygli á því út af ummælum hæstv. forsrh., að um margra ára skeið undanfarið hefur Framsfl. haft sinn fulltrúa í bankanum, bæði núverandi bankastjóra og þann, sem í hans sæti var áður, báða hina mætustu menn. Og ég ætla, að það hafi verið um langan aldur starfsregla í Landsbankanum, að hver bankastjóri hefði í framkvæmd synjunarvald, þannig að ekki væru veitt lán, nema þeir gætu allir á það fallizt. Þær ásakanir, sem hér eru bornar fram í garð bankastjórnarinnar, snerta því ekki síður þá bankastjóra, sem verið hafa fyrir Framsfl., tilnefndir af þeim flokki og valdir, heldur en aðra bankastjóra.
Ég vænti þess, að hv. meiri hl. hér í d. endurskoði þá afstöðu sína að ætla að víkja frá svo sjálfsögðum reglum og þeim, að slíkt stórmál fari til n., og fallist á, að fjhn. þessarar d. fái málið til meðferðar.