28.05.1957
Efri deild: 112. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)
177. mál, Landsbanki Íslands
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Ég skil það mætavel, að hæstv. forseti þurfi að reyna að afsaka þá furðulegu meðferð, sem þetta mál hefur sætt hér í d. Því var í gær synjað af meiri hl. í d. að vísa þessu máli til n., og því er borið við, sem hæstv. forseti endurtekur hér, að báðar n. deildanna hafi átt að vinna saman að málinu. Síðan er upplýst og var upplýst í gær, að þessi vinna var sama og engin. Jú, frv. var lesið sameiginlega yfir, og hæstv. forseti nefndi hér, að n. hefðu komið þrisvar sinnum saman, held ég. Meira var það nú ekki. Og hæstv. forseti, sem er þingvanur, veit það, að ekki er mögulegt fyrir fjhn. Ed. að flytja brtt. við frv. í Nd.
En þótt svo hafi verið og sé rétt, að fjhn. beggja deilda hafi átt að vinna sameiginlega á frumstigi málsins, þá er þetta ekkert nýtt meira að segja ekkert nýtt á þessu þingi, sem við sitjum nú á. Það er alveg fráleitt að ætla sér með því að útiloka nefndir deildanna að starfa að málinu. Ég skal nefna hér tvö mál, stórmál, sem hafa verið til meðferðar á þessu þingi og sætt nákvæmlega sömu meðferð. Annað málið er stóreignaskatturinn og hitt húsnæðislöggjöfin. Ég veit ekki betur en þar hafi verið nákvæmlega eins farið að. En var það til þess að útiloka nefndir deildanna til þess að vinna að málunum og koma með till. í þeim? Það veit ég ekki til, enda eru þetta fráleit vinnubrögð og ósæmandi Alþingi. Ég skil ekki í deildarmönnum að fara þannig að eins og þeir gerðu hér á fundi í gær.
Með þau stóru mál, sem ég nefndi, bæði stóreignaskatt og húsnæðislöggjöfina, þá er það rétt, að nefndir beggja deilda unnu sameiginlega á frumstigi málsins. Svo tóku deildarnefndirnar við, og þær báru hvor í sinni deild fram sínar brtt., skiluðu sínum álitum.
En í þessu máll, kannske alstærsta máli þingsins, er látið nægja að halda þrjá fundi, sem þessar samvinnunefndir hafa komið á, siðan ekki söguna meir.
Það er ekki í fyrsta skipti í sambandi við bankamálin, að í ljós kemur, að Framsfl. getur ekki sætt sig við settar leikreglur í þessum málum. Hann getur aldrei unað við leikreglur, sem settar hafa verið, nema hann sjálfur hafi þar einhverja sérstöðu, einhver sérstök hlunnindi fram yfir aðra. Hann þurfti að breyta bankalöggjöfinni 1928, af því að hann þóttist fara varhluta þá í þeim leikreglum, þó að bankalögin hafi að vísu þá ekki gilt nema eitt ár. Hann þurfti að breyta þeim og afnema bankaráðið, sem var skipað nákvæmlega á sama hátt og nú er lagt til að gert verði. Þá var sett á hin fjölskipaða Landsbankanefnd til þess að reyna að tryggja Framsfl. sterkari aðstöðu í bönkunum, ekki til nokkurs annars. Þetta vita hv. þm., svona var það. Og nú er svo komið, að valdaaðstaða Framsfl. er orðin veik aftur í bönkunum. Þá er að breyta til á ný. Framsókn þolir ekki að una leikreglum, nema hún hafi sérstöðu, hún þolir það ekki í nokkru máli. Og nú er tekið upp nákvæmlega sama fyrirkomulagið um kosningu í bankaráðið og fordæmt var á þinginu 1928.
Ég verð að segja, að mikið er haft fyrir því að tryggja Framsókn sérstöðu í bönkunum og koma kommúnistum inn í bankana.