28.05.1957
Efri deild: 112. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

177. mál, Landsbanki Íslands

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Við 1. umr. um þetta mál í gær var fellt með jöfnum atkvæðum að vísa málinu til fjhn. Nú gera þingsköp ráð fyrir því, að vísa megi máli til n. á hverju stigi þess, og vil ég leyfa mér að gera það að till. minni, að málinu verði nú vísað til fjhn.

Eins og ég tók fram hér lítillega í gær, tel ég það óverjandi vinnubrögð að ætla að hespa málið í gegnum þessa hv. d., án þess að því sé formlega vísað til n., þó að það sé rétt, sem hæstv. forsrh. og hæstv. forseti þessarar d. hafa tekið fram, að fjhn.- menn úr Ed. væru á fundum með Nd.-nefndinni. Það hefur oft skeð áður um önnur mál og þótt engu að síður sjálfsagt, þegar málið kom til síðari d., að því væri formlega til n. þar vísað, enda hafa nm. í fjhn. Ed. ekki haft neina aðstöðu til þess að marka brtt., sem þeir kynnu að vilja fram bera.

Ég tel því meiri nauðsyn, að málið fari til n. hér, þar sem margir ágallar eru á frv. og það er bersýnilegt öllum, sem hafa farið í gegnum það, að mjög hefur verið kastað höndum til undirbúnings þess.

Að vísu er það svo, að með nokkrum brtt. í Nd. hafa nokkrir gallar verið sniðnir af, en þó skortir mjög á, að frv. sé komið í það horf, sem það þyrfti að vera til þess að afgr. það sem lög frá Alþingi.

Ég skal ekki fara að telja hér upp á þessu stigi ýmis þau atriði, sem þyrfti að breyta. Ég skal nefna það m.a., sem kannske er þó ekkert höfuðatriði, en er þó visst atriði, vegna þess hve þjóðbankinn hefur mikil viðskipti út á við gagnvart öðrum löndum, að það virðist heldur óljóst, hver eigi að vera heiti þessara banka eða bankadeilda. Hvað á t.d. seðlabankinn að heita? Mér skilst helzt, eftir að ég hef lesið frv., að nafn hans eigi að vera: Landsbanki Íslands, Seðlabanki Íslands, e.t.v. Landsbanki Íslands, seðlabankinn. Ég held, að það ætti með svolítilli athugun að mega finna heppilegra heiti á þessum banka, sem verður okkar aðalbanki út á við.

Heitið á viðskiptabankanum verður einnig ákaflega undarlegt, eftir því sem hægt er að ráða af frv.

Þetta er aðeins eitt lítið atriði, en það eru fjölmörg önnur atriði í þessu frv., sem ég teldi sjálfsagt að lagfæra, og sum, sem eru óljós og geta mjög orkað tvímælis.

Ég skal ekki fara út í þetta frekar að sinni. Ég vænti þess, að hv. þd. geti fallizt á að vísa málinu til fjhn. Till. um að vísa frv. til fjhn. er hægt að bera upp, áður en umr. er slitið. En ef till. yrði felld um að vísa því til n., þá vil ég fara fram á, að umr. sé frestað til morguns, til þess að unnt verði að semja og koma á framfæri brtt. við frv.