11.10.1956
Sameinað þing: 1. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (16)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. minni hl. 3. kjördeildar (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Um leið og ég vísa í meginatriðum til greinargerða Bjarna Benediktssonar og Jóns Pálmasonar, vil ég taka þetta fram:
Þegar tekið var í stjórnarskrá og kosningalög fyrir 22 árum að hafa 11 þingsæti til jöfnunar milli þingflokka, var tilgangur þess sá að stuðla að því, að hver flokkur fengi þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölur sínar við almennar þingkosningar, m. ö. o., að Alþingi yrði sem réttust mynd af þjóðarviljanum.
Þar sem Alþfl. og Framsfl. gengu til alþingiskosninga í sumar sem einn flokkur, stofnuðu til algers kosningabandalags í öllum kjördæmum, eins og þeir orða það sjálfir í kosningastefnuskrá sinni, verður tilgangi stjórnarskrárákvæðisins um jöfnunarþingsæti ekki fullnægt með öðrum hætti en þeim, að atkvæði þessara tveggja flokka séu lögð saman við útreikning uppbótarsæta,
Þessi skoðun ein leiðir til skynsamlegrar túlkunar á ákvæðum stjórnarskrár og kosningalaga, og samkvæmt henni á þessi kosningaflokkur Alþýðu- og Framsóknarflokksins ekki rétt til neins uppbótarþingsætis, og þess vegna leggja fulltrúar sjálfstæðismanna í 3. kjördeild að sjálfsögðu til, að kjörbréf Péturs Péturssonar sé ekki tekið gilt.