16.05.1957
Neðri deild: 98. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)
148. mál, eyðing refa og minka
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Ég held, að það sé skynsamlega ráðið bjá hv. landbn. að gera ráð fyrir því, að að þessum málum verði unnið í samráði við Búnaðarfélag Íslands. Þessi flokkur mála er þess eðlis, að það er mjög eðlilegt, að þau störf, sem þarna er um að ræða og okkur eru harla mikilsverð, sem við landbúnað fáumst, séu unnin í sem nánustu samstarfi við Búnaðarfélag Íslands, enda er gert ráð fyrir því hér, að það verði mjög náið samstarf á milli þessa veiðistjóra, sem hér á að skipa, og Búnaðarfélagsins. Teldi ég þá eðlilegt og einmitt betur lagðan grundvöll að slíku samstarfi með því, að Búnaðarfélag Íslands hefði um það tillögurétt við landbrh., hvaða maður yrði skipaður í þessa stöðu. Ég held, að það væri hyggilega ráðið, að svo væri, því að hér veltur náttúrlega á miklu um það, að þetta starf, sem hér er um að ræða, verði vel rækt.
Þá held ég, að það sé einnig skynsamlegt í tillögum landbn. að hækka verðlaunin bæði fyrir tófur og minka frá því, sem er í frv., eins og hér er lagt til. Það voru að vísu áður komnar fram brtt. um þetta frá hv. þm. N-Þ., og hefur verið gengið inn á hans till. að því er minkana snertir, en ekki alveg jafnlangt og hann leggur til að því er snertir refina. Þar ber þó ekki orðið mikið á milli, enda var svo að skilja, að hv. þm. N-Þ. mundi sætta sig við till. landbn. í þessu efni.
En að því er tekur til breyt. við 11. gr., þá álít ég, að landbn. hafi farið út á mjög hættulega braut, eða a.m.k. virðist mér, að það sé allmikil óvarkárni fólgin í þeirri breyt. Það er vitað af öllum, sem fást við refaveiðar, að það er talið vera langöflugasta ráðið til að balda bitvarginum niðri að eitra og gera það mjög rækilega. Það kunna að vera nokkuð mismunandi aðferðir aðrar til þess að eyða refnum í landinu, eins og með skotum og þess háttar. En ég held, að það séu hvergi þær aðstæður hér, að ekki sé alveg fyllsta þörf á því, að samhliða þessum ráðstöfunum sé viðhöfð eitrun. Það er vitað, að sums staðar hagar svo til, að það er alveg árangurslaust gersamlega með öðrum hætti að ætla sér nokkuð að ráða niðurlögum refsins eða halda honum í skefjum, — alveg gersamlega árangurslaust, — þar sem um er að ræða hraun og aðra felustaði fyrir refinn, sem hann getur dulizt í og ekki verður að honum komizt með neinu öðru móti en að eitra fyrir hann.
Það er alveg rétt, að það eru uppi mjög deildar skoðanir um þetta mál. En ég held, að það blandist engum hugur um það, sem fulla þekkingu hefur á þessum málum, að eitrunin sé alveg nauðsynleg. Að hverfa frá henni er hrein og bein uppgjöf við þessi rándýr.
Svo er annað komið hér til sögunnar, og það er það, að minknum hefur fjölgað mikið í landinu, mjög mikið. Það eru að vísu að sjálfsögðu gerðar ráðstafanir, eins og hægt er, til þess að ráða niðurlögum hans og annað þess háttar, en fyrstu afleiðingarnar af því, hvað minknum hefur fjölgað, eru þær, að fuglastofninn er í mikilli hættu vegna minksins, svo að víða hefur fuglum mjög fækkað af þessum sökum, og menn segja, að á sumum svæðum sé fuglalífið orðið svo fáskrúðugt, að þar, sem fullt var af fugli áður, sé viðburður að sjá fugl nú. En þetta hefur sín miklu áhrif gagnvart refnum, því að refurinn, þó að hann hafi aldrei reynzt fuglalífinu eins skæður og minkurinn, lifði alltaf mikið á fugli. Og eftir því sem fuglalífinu hrakar, fer refurinn að verða æ í meiri og meiri fæðuskorti, og til þess að bæta það má gera ráð fyrir, að hann verði enn nærgöngulli að því er snertir sauðfé, fyrst og fremst náttúrlega unglömbin að vorinu til, þegar refurinn getur sín afkvæmi og er að ala þau upp. Það ber upp á sama tíma sem sauðburðinn hjá okkur hér. Í fyrsta lagi það, og svo líka að því er snertir fullorðið fé, sem allvíða eru nokkur brögð að, að refurinn leggist á og leiki mjög grálega, eins og alkunnugt er.
Þess vegna má fullkomlega taka tillit til þessara breytinga, sem hér eru að verða á um það, að það má gera ráð fyrir því, að ásækni refsins vegna fæðuskorts verði enn meiri og fari vaxandi, eftir því sem minknum tekst að höggva skörð í raðir fuglalífsins í landinu, og við þessu verður að sjálfsögðu að gjalda varhuga.
Það er þess vegna síður en svo, að ástæða sé til að slaka á núgildandi ákvæðum um þetta efni, en það er fullkomlega gert með brtt. landbn., því að þar er það algerlega lagt í vald eins manns, hvort nokkuð skuli eitrað eða ekki. Hann hefur það alveg á sínu valdi, hvort nokkur eitrun skuli viðhöfð ellegar ekki. Mér finnst satt að segja samkv. frv., eins og það liggur hér fyrir, að þá sé veiðistjóra gefið nógu mikið vald, þó að það sé ekki aukið frá því, sem í frv. er, því að þar er gert ráð fyrir því, að hann geti ákveðið, að ekki skuli eitrað á vissum svæðum, eins og þar stendur, og þá með sérstöku tilliti til þeirrar hættu, sem fuglalífinu er talin geta stafað af þessu, þ.e. eingöngu þeim fáu ránfuglum, sem til eru í þessu landi. Það er eðlilegt, að það sé nokkur viðkvæmni fyrir því, að t.d. örninn verði ekki aldauða hér. En hins vegar nær það þó ekki nokkurri átt að leggja lífsafkomu manna þeirra, sem hana eiga undir sauðfjárræktinni í landinn, í stórkostlega hættu af þeim sökum einum. Það getur vitanlega ekki komið til mála, þó að til séu menn, sem máske líti á það þannig, að miklu beri að offra fyrir þær sakir.
Ég las núna í blaði, ég held fyrir tveimur eða þremur dögum, frásögn um það, hvað refurinn er áleitinn hér austan fjalls, í kjördæmi hv. 1. þm. Árn. Þar var sagt frá því, að núna alveg nýlega hefðu fundizt við gren, ég held, að það hafi verið í Grafningi, 27 lambahræ, og nú er sauðburður aðeins að byrja, eins og menn vita. Í Grímsnesi fundust 20 lambahræ við annað gren. Við ýmis önnur greni fundust einnig lambahræ, og þetta er aðeins í byrjun sauðburðar. Nú er þetta á svæði, þar sem e.t.v. mætti nú ætla að hægt væri með skotvopnum að hafa nokkurn hemil á refnum. Ja, hvað skyldi þá vera á þeim svæðum, þar sem er þó enn erfiðara að ráða nokkuð niðurlögum refsins?
Mér er það þess vegna undrunarefni, að hv. landbn. skuli voga sér að leggja til, að svo þýðingarmikið atriði eins og eitrunin er í því að halda þessum varg í skefjum skuli lagt í vald eins einasta manns hér. Það álít ég allt of djarft teflt í þessu efni. Ég held þess vegna, að það sé ekki fært og ekki óhætt að slaka neitt til frá því, sem er í þessu frv. um ákvæðin um eitrunina. Og ég tel, að það geti e.t.v. komið í ljós við framkvæmd þessa máls, að það sé nokkuð djarft teflt að veita einum manni eins mikið vald í þessu máli og þar er gert. Þetta er vitanlega tilfinningamál, það er alveg rétt. Og að svo miklu leyti sem úrskurður þessa manns mundi byggjast á tilfinningum, þá er ekki að vita, hvað mundi verða ofan á í því efni.
Ég vildi þess vegna, ef hv. n. ekki vill, sem æskilegt væri, taka þessa till. aftur til athugunar fyrir 3. umr., að þá yrði þannig snúizt við þessu máli að hætta ekki á svo mikla óvissu, sem í því felst að láta það vera á valdi eins einasta manns, hvort þessu ráði eða þessari aðferð við refavinnsluna verði beitt ellegar ekki. Ég held, að málinu sé teflt í allt of mikla óvissu með því að gera það. Ég sem sagt vildi helzt óska þess, ef n. vildi taka þessa till. aftur til nánari athugunar fyrir 3. umr. málsins.