20.05.1957
Efri deild: 103. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)
174. mál, menningarsjóður og menntamálaráð
Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):
Herra forseti. Menntmn. hv. þd. hefur farið yfir og athugað frv. til laga um menningarsjóð og menntamálaráð, sem hér er á dagskrá til 2. umr. Leggur n. til, að frv. verði samþ. óbreytt. Tveir nm. voru fjarverandi, er n. afgr. málið, þeir hv. 6. þm. Reykv. (GTh) og hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ).
Hæstv. menntmrh. gerði ýtarlega grein fyrir efni og tilgangi frv. í framsöguræðu við 1. umr. og hverjir hefðu það samið.
Ákvæði þau, sem nú gilda um þessi efni, eru lög nr. 7 frá 1928, um menntamálaráð Íslands, og lög nr. 14 frá 1928, um menningarsjóð. Verða þau úr gildi felld, ef frv. þetta verður samþ.
Af eðlilegum ástæðum og vegna breyttra tíma eru lög þessi nú orðin að ýmsu leyti úrelt. Á sínum tíma voru þau að flestra dómi merkileg lagasetning og höfðu mikilvægu hlutverki að gegna.
Æðimörg hin síðari ár hefur þó mikið á það skort, að þessar tvær stofnanir, menntamálaráð og menningarsjóður, hafi getað rækt ætlunarverk sín neitt svipað því, sem þurft hefði og æskilegt hefði verið. Hefur því valdið fyrst og fremst skortur á fé.
Úr þessu er nú ætlað að bæta með því, að í frv. til laga um skemmtanaskatt, sem hér er einnig á dagskrá í dag, er svo kveðið á, að lagt verði einnar og tveggja króna gjald á selda aðgöngumiða að kvikmyndahúsum og dansleikjum og renni í menningarsjóð. Verða það aðaltekjur sjóðsins og gert ráð fyrir því, að þær muni nema á ári hverju um 2 millj. kr. Auk þess renna í sjóðinn sektir fyrir brot á áfengislöggjöfinni, svo sem verið hefur hingað til, og áætlað er, að sú fjárhæð, sem í sjóðinn kemur árlega í sektum, muni nema um 1/2 millj. kr. Verði ákvæði frv. um skemmtanaskatt lögfest, má því gera ráð fyrir, að sjóðurinn fái árlega fé til ráðstöfunar, sem nemi um 21/2 millj. kr. Þannig mundi menningarsjóður væntanlega verða að þýðingarmiklu liði fyrir margvíslega menningarstarfsemi í landinu.
Í 1. gr. frv. er ákveðið hlutverk menningarsjóðs, en það er að styrkja íslenzka menningu með því að efla listir og vísindi.
Í 4. gr. er þetta nánar skýrt, og eru þar greind í höfuðdráttum þau verkefni, sem sjóðnum er ætlað að hafa, þ.e. hvernig tekjum sjóðsins skuli varið. Er það greint í níu liði, stafliðina a–i.
Í fyrsta lagi á sjóðurinn að leggja fram fé í vísindasjóð, sem svo er kallaður. Hér í hv. þd. hefur verið lagt fram frv. um sjóð þennan og hlutverk hans, og er þar kveðið svo á, að upphæð sú, sem hann árlega skuli fá úr menningarsjóði, verði a.m.k. 800 þús. kr.
Í öðru lagi skal fé varið úr menningarsjóði til bókaútgáfu. Hingað til hefur það verið eitt af hlutverkum menningarsjóðs að gefa út bækur, og hin síðari ár hefur sjóðurinn haft samvinnu um það við Þjóðvinafélagið gamla, sem eins og kunnugt er hefur gefið út margar góðar bækur, sem allir kannast við, svo sem Almanakið og Andvara, sem komið hafa út allt frá árinu 1875. Vafalaust ætti að vera unnt að auka og vanda betur útgáfustarfsemi menningarsjóðs með auknum fjárráðum, enda mun það fyrirhugað.
Í þriðja lagi er eitt af hlutverkum sjóðsins að kaupa listaverk til handa listasafni ríkisins, en hingað til hefur slíkt verið gert í allt of smáum stil, vegna þess að fé hefur skort til þeirra hluta. Er því hér mikið verkefni að vinna bæði um öflun nýrra listaverka og gamalla, innlendra og e.t.v. útlendra, en a.m.k. einkum innlendra.
Næsta verkefni, sem talið er í 4. gr., er stuðningur við gerð íslenzkra menningar- og fræðslukvikmynda, en til slíkrar myndgerðar hefur verið fjár vant hingað til. Menningarsögulegt gildi slíkra kvikmynda er óumdeilt.
Næsti stafliður er um eflingu þjóðlegra fræða og athugun á náttúru landsins. Er hér gert ráð fyrir, að hóflegri upphæð verði varið til þess að úthluta til ýmissa fræðimanna, er ekki njóta styrks úr vísindasjóði. Nokkur upphæð hefur hingað til verið á fjárl. í þessu skyni, og hefur menntamálaráð úthlutað því.
Þá á að verja fé til styrktar íslenzkri tónlist og myndlist, til kynningar íslenzkri menningu innanlands og utan, svo sem með listsýningum, bæði hérna í höfuðstaðnum og úti um land og jafnvel erlendis.
Að síðustu er í 4. gr. rætt um úthlutun fargjalda, er komið geti í stað ókeypis fargjalda, sem Eimskipafélag Íslands lét í té á sínum tíma, en nú er niður fallið, er skattfrelsi Eimskipafélagsins var afnumið fyrir nokkrum árum. Slíkt hefur löngum komið sér vel fyrir fátæka námsmenn og menntamenn.
Um tekjur sjóðsins er rætt í 3. gr., og hef ég áður gert grein fyrir þeim.
Ætlazt er til samkvæmt 5. gr., að 5% af tekjunum verði lögð í sjóð og ekki ráðstafað. Sjóður þessi er í greininni kallaður stofndeild menningarsjóðs. Miðað við 21/2 millj. kr. tekjur á ári mundi safnast í sjóðinn 125 þús. kr. árlega. Fé þessu má verja til húsbygginga eða húskaupa fyrir sjóðinn og starfsemi hans, t.d. bókaútgáfuna, sem þarf á ærnu húsnæði að halda. Þegar tímar líða, ætti hér að myndast með þessum hætti myndarlegur sjóður, sem gæti orðið menningarsjóði stuðningur, þegar fram líða stundir.
Samkvæmt 2. gr. frv. er stjórn sjóðsins falin menntamálaráði, svo sem verið hefur.
6. gr. fjallar um, hvernig menntamálaráð er skipað, og er þar engu breytt um reglur þær, sem þar um hafa gilt hingað til, að öðru leyti en því, að nú skal kjósa varamenn á sama hátt og aðalmenn hafa verið kosnir.
Hlutverk menntamálaráðs er greint í 7. gr. Fyrst og fremst er það yfirstjórn menningarsjóðsins og skipting á tekjum hans til þeirra, sem njóta eiga.
Þá hefur menntamálaráð á hendi stjórn bókaútgáfunnar, og það á einnig að hafa yfirumsjón með listasafni ríkisins.
Enn er ætlazt til, að hér eftir sem hingað til úthluti menntamálaráð námsstyrkjum og námslánum svo og þeim styrkjum öðrum, sem fé er veitt til í fjárl. og ráðinu er falið að úthluta.
Forstjóri menningarsjóðs hefur hingað til verið ráðinn af menntamálaráði, en nú er gert ráð fyrir í 8. gr. frv., að ráðh. skipi hann að fengnum till. menntamálaráðs.
Þetta er í stuttu máli aðalefni frv. Menntmn. telur, að hér sé gott mál á ferðinni, og væntir þess, að aðrir hv. þdm. séu sama sinnis og að frv. fái greiða för í gegnum hv. þd.