20.05.1957
Efri deild: 103. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)
176. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér mikið inn í umr. um þetta mál, en það er eitt atriði í því, sem mig langar til að biðja n. að athuga á milli umr., hvort ekki sé rétt að breyta.
Lögin um skemmtanaskatt og þjóðleikhús eru frá 1927. Þá var gróflega mikið öðruvísi umhorfs í landi hér en nú er. Þá áttum við ekki nokkur þúsund bíla, og þá þutum við ekki um landið þvert og endilangt, hvenær sem okkur bauð svo við að horfa. Þá var líka sett í 1. gr. í lögunum um skemmtanaskatt, að hann skyldi einungis þar á lagður, sem íbúarnir væru fleiri en 1500, og annars staðar ekki. Byggðist þetta fyrst og fremst á því, að það var litið svo á, að aðsóknin að skemmtunum á fámennum stöðum yrði svo lítil, að það væri ekki rétt að íþyngja þeim með skemmtanaskatti. Nú er þetta viðhorf breytt. Nú fara menn um landið þvert og endilangt á skemmtanir. Nú eru mörg félög hér í Reykjavík og einstaklingar, sem fá að halda skemmtanir uppi í Mosfellssveit eða uppi á Kjalarnesi eða Kjós, sem á koma eingöngu Reykvíkingar, aðrar, sem á koma aðrir menn líka. Þess munu meira að segja dæmi, að menn héðan úr Reykjavík hafa fengið að halda skemmtun lengra burtu. en þessu nemur, og þá eru þeir allir lausir við skemmtanaskattinn.
Þegar haldin er skemmtun austur við Ölfusá, þá koma þangað nokkurn veginn jafnmargir menn héðan úr Reykjavík og Hafnarfirði eins og úr Selfossþorpinu o.s.frv. Jafnvel þegar haldin er skemmtun austur í Vik, kemur þangað heill hópur af mönnum annars staðar að.
Þess vegna er það ákaflega mikil spurning, hvort þetta ákvæði um 1500 íbúa, sem eiga að vera til staðar í því hreppsfélagi eða bæjarfélagi, þar sem skemmtunin er haldin, sé orðið réttmætur mælikvarði til að undanþiggja núna. Hvað ætlið þið að gera, ef eitthvert bíóið héðan úr Reykjavík flytur hérna út á Seltjarnarnes? Á það að vera undanþegið skemmtanaskatti? Það mundi fá nákvæmlega sömu aðsókn þar eins og þó að það væri inni í bænum, svona rétt fyrir utan mörkin. Eða ef Hafnarfjarðarbíó flytti í Bessastaðahreppinn, rétt í jaðarinn á kaupstaðnum. Ég skil ekki þessi mörk lengur, og ég held, að það sé ástæða til að breyta þeim.
Þetta vildi ég biðja n. að athuga, því að þau eru ekki raunhæf lengur. Hvort sem því er haldið á pappírnum eða ekki, þá eru þau ekki raunhæf lengur, og þær ástæður, sem voru til þess, að þetta mark var sett 1927, eru horfnar núna.