28.05.1957
Neðri deild: 111. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)

176. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki fara að ræða almennt hér um þetta mál og sé ekki ástæðu til þess að vera að endurtaka þær röksemdir, sem fram hafa komið gegn þeirri nýju skattlagningu, sem hér er á ferðinni. Það var aðeins eitt atriði, sem ég vildi minnast á, og þykir nú raunar leitt, að hæstv. menntmrh. skuli ekki vera hér viðstaddur, þegar þessi mál eru rædd. (Gripið fram í.) Nú, er hann þarna inni? Það var nánast atriði, sem ég hefði gjarnan viljað heyra hans álit á. Það er í sambandi við undanþágur þær, sem um er að ræða í 1. gr.

Undanþágur frá þessum skatti eru vitanlega alltaf nokkuð varhugaverðar, en þó tel ég, að það sé ekki annað hægt vegna ýmissa aðstæðna en að veita þær undanþágur, sem hér er um að ræða, og er því ekki ágreiningur út af fyrir sig um það efni. En það er eitt atriði í sambandi við þessar undanþágur, sem er mikilvægt atriði, vegna þess að það gefur auga leið, að t.d. kvikmyndahús, sem er rekið með undanþágu sem þessari og þarf ekki að greiða skemmtanaskatt, hefur miklum mun betri aðstöðu en önnur kvikmyndahús, því er sköpuð forréttindaaðstaða. Slík forréttindaaðstaða er þó á engan hátt hættuleg, ef þannig er frá málum gengið, að það er gert að tvímælalausri skyldu fyrir slíkt hús að leggja skemmtanaskattinn til hliðar. Það er í rauninni það, sem allt veltur á. Ég álít, að undanþágurnar séu mjög hæpnar, ef þeir, sem húsin reka, geta notað sér þessa bættu aðstöðu til þess t.d. að undirbjóða önnur kvikmyndahús í sambandi við öflun kvikmynda eða réttara sagt yfirbjóða þau í sambandi við leigu mynda og annað þess konar, enda er það auðvitað ekki hugsun löggjafans, þegar þessi undanþáguheimild er veitt, heldur beinlínis er það gert til þess að afla fjár til nytsamlegra hluta. Ég vil því leyfa mér að spyrjast fyrir um það, áður en til þess komi, hvort ég telji ástæðu til að flytja um þetta sérstaka brtt., hvort eftirlit sé með því haft eða hvort hæstv. ráðh. hafi hugsað sér að hafa með því eftirlit, að þessi kvikmyndahús, — það eru aðallega þau, sem hér koma til greina, — leggi til hliðar til þeirra þarfa, sem ætlað er að ráðstafa fénu til, fé, sem svarar skemmtanaskattinum. Það tel ég vera mjög mikilvægt atriði og þarflegt og nauðsynlegt aðhald fyrir þá aðila, sem þessara hlunninda njóta. Er tryggt, eða hugsar ráðuneytið sér að tryggja það, að þessi fjárhæð, sem hér er eftir gefin, skemmtanaskatturinn, verði lögð til hliðar til þeirra þarfa, sem um ræðir hverju sinni, en geti ekki orðið eyðslueyrir í rekstri viðkomandi fyrirtækis? Þetta langaði mig að biðja hæstv. ráðh. að upplýsa.

Það er, eins og fram hefur verið tekið, ákaflega erfitt um vik að gera sér til hlítar grein fyrir þessum frv., sem grípa hvert inn í annað, á þeim mjög skamma tíma, sem er til undirbúnings og athugunar, vegna þess að þau eru einmitt fram lögð, þegar mesti annatími þingsins er að hefjast, og þess vegna alls ekki kostur á að athuga þau sem skyldi. Af þessu leiðir, að það kunna að vera ýmis atriði í þessum málum öllum, sem ekki eru tök á að gera athugasemdir við vegna þessa nauma tíma. Hins vegar virðast allar horfur á, að það sé ætlunin að knýja þessi mál nú þegar í gegnum þingið.

Það er eitt lítið atriði, sem er að segja má lögfræðilegs eðlis, að mér finnst það dálítið óviðkunnanlegt í frv. að orða eins og er í e-lið 1. gr.: kvikmyndasýningar í Reykjavík á vegum sáttmálasjóðs, kvikmyndasýningar bæjarsjóðs Akraness og Hafnarfjarðar, enda sé tekjunum varið á sama hátt og nú. Það er dálítið hæpið að orða þetta á þann veg, að það þurfi að fara að kanna, hvaða reglur hafi gilt um ráðstöfun þessara tekna, þegar þessi lög voru sett, en ákveða það þá ekki, að tekjunum sé varið til þeirra hluta, sem þar er um rætt. Það ætti ekki að þurfa að lengja greinina mikið frá því, sem þar segir. En þetta er auðvitað minni háttar atriði og skiptir ekki efnislega máli. En hitt atriðið vona ég, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að upplýsa um, hvað hann hefur hugsað sér í því sambandi.