24.05.1957
Efri deild: 107. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1735)

175. mál, vísindasjóður

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Þetta mál mun vera undirbúið af n., sem fyrrverandi menntmrh., Bjarni Benediktsson, skipaði í marz 1956. Í þeirri nefnd áttu sæti 5 ágætir menn, þeir Birgir Kjaran hagfræðingur, Ármann Snævarr prófessor, dr. Björn Sigurðsson, formaður rannsóknaráðs ríkisins, dr. Júlíus Sigurðsson prófessor og Pálmi Hannesson rektor. Það segir ekki berum orðum neins staðar í grg. fyrir þessu frv., hvort frv. sé efnislega samhljóða því frv., sem þessir nefndarmenn sömdu. Mér þykir sennilegt, að svo sé a.m.k. að mestu leyti.

Eins og hv. frsm. menntmn. tók fram, er nefndin sammála um að mæla með frv., og hún flytur sameiginlega brtt. á þskj. 619. Hins vegar flytjum við hv. 2. þm. Árn. og ég brtt. á þskj. 612 við b-lið 5. gr., þess efnis, að stjórn hugvísindadeildar verði skipuð þannig: tveir eftir tilnefningu heimspekideildar Háskóla Íslands og tveir eftir tilnefningu laga- og hagfræðideildar.

Samkv. frv. á tilnefningin að vera þannig: tveir tilnefndir af heimspekideild Háskóla Íslands, einn af laga- og hagfræðideild og einn af Félagi ísl. fræða.

Háskólaráð, sem fékk þetta mál til umsagnar, lagði með því, að sú breyting yrði gerð á frv., sem við förum fram á í okkar brtt. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að lesa hér stuttan kafla úr umsögn háskólaráðs. Hann hljóðar þannig: „Um einstök ákvæði frv. vill háskólaráð gera þá athugasemd, að það telur ekki eðlilegt, að Félag ísl. fræða sé aðili að tilnefningu í deildarstjórn. Með fyrirhugaðri aðild heimspekideildar virðist hér nægilega séð fyrir hlut íslenzkra fræða. Félag íslenzkra fræða hefur ekki neina sérstöðu meðal íslenzkra félaga, sem sinna vísindum, er réttlæti, að það sé tekið fram yfir þau öll að þessu leyti. Í stað þess leggur háskólaráð til, að stjórn hugvísindadeildar, sbr. 5. gr. b, verði skipuð 2 mönnum af hálfu laga- og hagfræðideildar í stað eins, sem frv. gerir ráð fyrir, enda er þess að vænta, að eigi líði á löngu, áður en deild þessari verður skipt í tvær deildir, laga- og viðskiptadeild, er þá tilnefni hvor sinn mann.“ – Undir þetta álit skrifar rektor háskólans, dr. Þorkell Jóhannesson.

Ég hef veitt því eftirtekt, að í grg. fyrir frv. hefur einmitt verið gert ráð fyrir þeirri skipan, sem við leggjum til. Þar segir svo um 5. gr., hugvísindadeild, að tilnefning fari fram þannig, að tveir séu samkv. tilnefningu heimspekideildar háskólans og tveir samkv. tilnefningu laga- og hagfræðideildar. Þetta stendur í grg. Það er þess vegna ekki alveg áreiðanlegt, sem hv. frsm. sagði, að þetta hafi verið vei íhugað, áður en þessi breyting var gerð. Mér er ekki kunnugt um, hvers vegna hæstv. ráðh. hefur sett þessa breytingu inn, en látið svo standa í athugasemdum það, sem hann hefur verið búinn að selja inn, eða sú nefnd, sem samdi frv. Ég veit ekki, hver ástæðan er. Mér virðist, að gagnvart hæstv. ráðh. sé miklu hyggilegra að hafa þá skiptingu, sem við leggjum til. Mér sýnist, að hann hafi þá miklu frjálsari hendur um tilnefningu formanns. Ef sú skipting verður eins og gert er ráð fyrir í frv., þá skilst mér, að hæstv. ráðh. verði tilnefndur að skipa formann úr laga- eða hagfræðideild til þess að hafa ekki misræmi á milli. En verði hins vegar tveir og tveir, þá hefur ráðh. alveg frjálst val. Ég tel það því miklu hyggilegra í alla staði hans vegna, að þessi skipan verði á höfð.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en vænti, að hv. dm. sjái sér fært að samþ. þessa brtt. okkar hv. 2. þm. Árn.