08.04.1957
Efri deild: 84. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1839 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)
157. mál, Háskóli Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þessar athugasemdir hv. 1. þm. N-M. eru að vissu leyti eðlilegar, vegna þess að þessi frv. eru ekki komin til umræðu hér í hv. deild og þess vegna ekki fram komnar þær skýringar á þeim, sem ég hugðist gefa, þegar þau kæmu til umræðu.
Um fyrra frv., sem hann nefndi, er það að segja, frv. til laga um breyt. á lögum um menntun kennara, eins og kemur fram í heitinu sjálfu, að það er ekki verið að breyta þar lögum um háskólann, heldur er verið að breyta lögum um menntun kennara. Hitt er svo annað mál, að í lögum um menntun kennara voru ákvæði um kennslu í uppeldisfræði við Háskóla Íslands, og þeim ákvæðum er breytt með þessu frv. Það var rætt um sérstaklega í menntmrn. og við háskólann, hvort til greina gæti komið að fella þennan kafla í lögum um menntun kennara algerlega niður og taka hliðstæð ákvæði inn í háskólalögin, en lögfræðingar á báðum stöðunum töldu eðlilegra og heppilegra að hafa þennan hátt á. Ef nefndin kemst að annarri niðurstöðu um þetta efni, skal það ekki sæta neinum andmælum af mínni hálfu. Hér er um fullkomið formsatriði að ræða. Mergurinn málsins var sá, að lögfræðingarnir töldu óviðkunnanlegt að taka inn í frv. til laga um Háskóla Íslands breytingu á lögum um menntun kennara. í þessu er fólgin skýringin, og hana vona ég að hv. 1. þm. N-M. geti fallizt á. Ef það hefði verið gert, hefði þessu frv. farið að svipa nokkuð til bandormanna frægu, sem stundum hafa verið hér á döfinni, hafa stundum verið hér á dagskrá og ekki hafa þótt til sérstaks sóma fyrir vinnubrögð þingsins, þ.e. mörgum lögum um sitt hvert efni sé breytt með einum og sömu lögum.
Varðandi hitt frv., sem beint snertir háskólann, þ.e. um stofnun dósentsembættis í eðlisfræði við verkfræðideildina og rannsóknarstofu til geislamælinga, er það að segja, að venjan hefur ávallt verið sú, þegar stofnuð hafa verið alveg ný prófessorsembætti, að það hefur verið gert með sérstökum lögum. Þeirri reglu töldu lögfræðingar menntmrn. og háskólans rétt að fylgja nú enn. Það er sá munur á stofnun þessa eðlisfræðidósentsembættis og stofnun embættis í lyfjafræði, sem gert er ráð fyrir í háskólalögunum sjálfum, að stofnun lyfjafræðiprófessorsembættisins er í raun og veru formbreyting ein, vegna þess að lyfjafræði er þegar kennd við háskólann og kennd af aukakennara. En hér er um stofnun alveg nýs embættis að ræða, sem auk þess á að vera í tengslum við alveg nýja stofnun, sem sagt rannsóknarstofu til geislamælinga. Ég vona, að hið háa Alþingi fallist á þetta frv. Hér er um alger nýmæli að ræða, en ekki um endurskoðun á gildandi skipan, eins og er kjarninn í frv. um háskólann.
Nýmæli, sem fólgin eru í frv. til laga um dósentsembætti í eðlisfræði og starfrækslu rannsóknarstofunnar eru sama eðlis og þau nýmæli, sem hingað til hefur þótt rétt og sjálfsagt að kveða á um með sérstökum lögum. Að því leyti er þetta nýja dósentsembætti í eðlisfræði ólíkt öðrum prófessorsembættum, a.m.k. í verkfræðideildinni, að gert er ráð fyrir því, að sá prófessor sé jafnframt forstöðumaður sérstakrar stofnunar, sem nauðsynlegt er að kveða á um í lögum og rétt hefur þótt að hafa ákvæði um í sérstökum lögum, en ekki í lögum um háskólann. Hins vegar mundi ég ekkert hafa á móti því, ef nefndin treystir sér til þess, að hafa ákvæði um þetta allt saman í einu lagi í lögum um háskólann. Ég taldi aðeins rétt að fylgja við flutning þessara mála þeim ráðum, sem sérfræðingar menntmrn. og háskólans gerðu að sínum till.