10.05.1957
Efri deild: 97. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1767)
157. mál, Háskóli Íslands
Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):
Herra forseti. Frv. til l. um Háskóla Íslands, sem hér er á dagskrá til 2. umr., er stjfrv. Þegar frv. var til 1. umr. hér í hv. þd., gerði hæstv. menntmrh. grein fyrir efni þess í megindráttum og skýrði frá undirbúningi þess. Er því ekki efni til að endurtaka neitt af því.
Menntmn. hv. d. hefur farið yfir frv., athugað það og rætt. Þá hefur sama n. einnig athugað frv. til laga um stofnun prófessorsembættis við verkfræðideild Háskóla Íslands og starfrækslu rannsóknarstofu til geislamælinga og frv. til l. um breyt. á l. nr. 16 12. marz 1947, um menntun kennara. Hæstv. menntmrh. hefur einnig gert grein fyrir frv. þessum í framsögu.
Þegar mál þessi voru til 1. umr. hér í hv. þd., benti hv. þm. N-M. á, að vert væri að athuga, hvort ekki mætti steypa saman þessum frv. í eina heild, þar sem þau öll, háskólafrumvarpið og einnig hin tvö, er ég nefndi, fjölluðu um Háskóla Íslands. Menntmn. athugaði þetta sérstaklega og þóttist komast að raun um, að skynsamlegt og heppilegt væri að fella frumvörpin saman í eina heild. Miðast tillögur n. við þetta, þannig að efni hinna tveggja frv., er ég nefndi, felst í brtt. nefndarinnar við frv. til l. um Háskóla Íslands, sem hér er á dagskrá. Leggur menntmn. til, að frv. verði samþ. í því formi. Skylt er þó að geta þess, að einn nefndarmanna, hv. 4. landsk., var ekki viðstaddur, er málið var afgreitt endanlega á nefndarfundi, en mér er kunnugt um, að hann er sammála n. í þessu.
Í nál. menntmn. á þskj. 502 er þess getið, hverjir hafa sent umsagnir um frumvörpin, háskólafrumvarpið og hin tvö fylgifrumvörp þess, ef svo mætti að orði komast. Allir þessir aðilar mæla með því, að frumvörpin verði samþ., en koma með nokkrar till. til breytinga sumir hverjir.
Í 1. mgr. 7. gr. frv. segir, að menntmrh. skipi háskólaritara að fengnum tillögum háskólaráðs. Háskólaráð telur hins vegar rétt, að ráðherra skipi ritara samkv. till. háskólaráðs. Í þessari till. háskólaráðs feist það, að ráðh. er bundinn við till. háskólaráðs og hefur ekki heimild til að veita öðrum háskólaritaraembætti en þeim, sem meiri hluti háskólaráðs leggur til. Hins vegar bæri hann embættislega ábyrgð á veitingunni engu að síður.
Þessari till. háskólaráðs vorum við hv. þm. Barð. andvígir, en hv. 6. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Árn. gerðu ráð fyrir að flytja brtt. í þessa átt.
Í 1. mgr. 11. gr. segir, að ráðherra skipi dósenta að fengnum tillögum háskóladeildar. Háskólaráð vill hins vegar haga þessu á sama veg og um háskólaritara að sínu leyti, að dósentsembættin verði veitt samkv. till. háskóladeildar.
Við hv. þm. Barð. vorum einnig andvígir þessari till. háskólaráðs, en þeir hv. 6. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Árn. gerðu einnig ráð fyrir að flytja brtt. í samræmi við óskir háskólans.
Þá eru í il. gr. frv. ákvæði um það, að skipuð skuli dómnefnd þriggja manna til þess að dæma um hæfi umsækjenda um prófessorsembætti og jafnvel önnur kennaraembætti við háskólann. Skal háskólaráð skipa einn dómnefndarmann, deild sú, sem kennarinn á að starfa við, annan, en menntmrh. hinn þriðja. Dómnefndin á að láta uppi rökstutt álit um vísindastörf umsækjanda, námsferil og störf og kveða á um, hvort hann sé hæfur eða ekki hæfur til að gegna embættinu. Álitsgerð nefndarinnar skal höfð til hliðsjónar, er embættið er veitt, og má engum veita prófessorsembætti, nema meiri hl. dómnefndar telji hann hæfan til þess.
Háskólaráð telur hins vegar rétt, að þessu sé hagað með þeim hætti, að ráðherra sé skylt að veita umsækjanda embætti, ef dómnefnd er sammála um að telja hann hæfastan og meiri hluti deildarmanna er á sama máli.
Þeir hv. 6. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Árn. ráðgerðu að flytja brtt. í samræmi við þetta. Við hv. þm. Barð. vorum andvígir þessu af sömu ástæðum og fyrr, að hér er ætlazt til þess, að veitingavaldið verði raunverulega tekið úr höndum æðsta handhafa framkvæmdavaldsins, en ráðh. beri eftir sem áður ábyrgð á veitingunni.
Þá fellst háskólaráð á, að frv. verði sameinuð, og nokkrar fleiri aths. setur það fram, sem n. hefur tekið upp í brtt. sínar sumar hverjar.
Skylt er að geta þess, að háskólaráð leggur áherzlu á, að enda þótt skoðanamunur sé um fáein atriði frv. og þá fyrst og fremst þau, sem ég nú hef nefnt, sé málið í heild sinni það mikils virði, að það vill fyrir sitt leyti ekki láta ágreining um þessi atriði tefja framgang þess. Í þessu felst það, að háskólaráð unir frv., eins og það er, og leggur áherzlu á, að það verði samþ. á þessu þingi, enda þótt örfá atriði séu þar á annan veg en það hefði helzt kosið.
Þá hefur stúdentaráð háskólans ýmislegt við frv. að athuga. Í fyrsta lagi óskar það eftir, að stúdentar fái hlutdeild í stjórn háskólans, þannig að þeir eigi fulltrúa í háskólaráði og einnig á deildarfundum með atkvæðisrétti. Í frv. er hins vegar það nýmæli í 4. gr., 3. mgr., að heimilt sé að kveðja fulltrúa stúdenta á fundi háskólaráðs, einn eða fleiri, sem stúdentaráð nefnir til, þegar mál eru þar til meðferðar, sem varða sérstaklega stúdenta. Hafa fulltrúar stúdenta þar málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Samsvarandi ákvæði eru í 3. mgr. 14. gr. frv. um deildarfundi.
Nefndinni þótti eftir atvikum skynsamlegt, að ekki yrði lengra farið að sinni, enda er háskólaráð því andvígt. Sýnist vel mega reyna, hversu vel þetta gefst, áður en lengra er haldið til móts við óskir stúdenta að þessu leyti.
Þá telur stúdentaráð frv. skerða nokkuð akademískt frelsi, sem kallað er, m.a. þannig, að ráðgert er í 23. gr. frv. að setja í reglugerð háskólans ákvæði um eftirlit með námsástundun stúdenta; enn fremur séu í 30. gr. frv. of ströng ákvæði um, að stúdentum sé óheimilt að ganga undir próf, hafi þeir fallið tvísvar áður, er þeir þreyttu sams konar próf. Nokkur önnur atriði í svipuðum anda gera þeir athugasemdir við.
Menntmn. hefur viljað koma til móts við óskir stúdenta um heimild til endurtekningar prófa. Felst það í 4. brtt. nefndarinnar á þskj. 542 um, að stúdent sé heimilt að þreyta próf tvívegis að nýju, hafi hann ekki staðizt það.
Rök fyrir þessu eru þau, að vera kann, að jafnvel efnilegir menn vanræki nám af einhverjum ástæðum á tímabili, en taki sig á síðar. Gæti verið tjón að, ekki aðeins fyrir stúdent þann, sem í hlut á, heldur þjóðfélagið, ef slíkir menn væru útilokaðir frá prófi.
Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara fékk til umsagnar frv. um breyt. á l. um menntun kennara, sem menntmn. leggur til að fellt verði inn í háskólafrumvarpið. Óskar stjórn þess félagsskapar eftir, að ekki verði felld úr gildi 14. gr. laga nr. 16 1947, um menntun kennara. Grein þessi hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Rétt til að stunda nám í uppeldisvísindum við stofnun þessa og taka þar próf hafa allir þeir, sem lokið hafa almennu kennaraprófi, svo og stúdentar.“
Að athuguðu máli, telur menntmn. rétt að verða við þessum tilmælum. Er því ætlazt til, að kennaraprófsmenn hafi heimild til að stunda nám í uppeldisfræðum við háskólann, svo sem ráð hafði verið gert fyrir í lögum um menntun kennara.
Enn er ástæða til að nefna eitt atriði úr umsögnum um frumvörpin. Það er um orðið lyfsölufræði í 41. og 43. gr. frv. Lyfsölufræði er á erlendum málum pharmacia, en hefur í daglegu tali verið kölluð lyfjafræði hingað til. Stjórn Lyffræðingafélags Íslands óskar eftir, að fræðigreinin fái að halda því nafni, og er slík ósk ekki óeðlileg. Hér er þó sá hængur á, að í læknadeild háskólans er önnur fræðigrein, sem einnig ber nafnið lyfjafræði, heitir á erlendum málum pharmacology. Nú er gert ráð fyrir því í 43. og 41. gr. frv., að pbarmacia verði kennd í háskólanum. Ekki er viðhlítandi, að tvær fræðigreinar háskólans heiti sama nafni. Höfundar frv. hafa tekið upp nafnið lyfsölufræði. Enga hef ég fyrir hitt, sem eru ánægðir með það orð. Háskólinn leggur til, að í stað þess verði tekið upp orðið lyfefnafræði eða lyfgerðarfræði. Menntmn. hefur valið þann kost að leggja til, að orðið lyfefnafræði verði tekið upp í stað lyfsölufræði. Þess er þó vart að vænta, að lyffræðingar verði ánægðir með það heiti á fræðigreininni. Þeir munu ekki ánægðir með neitt nema sitt gamla heiti: lyfjafræði. Menntmn. vonar þá, að þeir sætti sig betur við orðið lyfefnafræði en lyfsölufræði.
Hér vil ég geta þess, að þegar ég tók saman brtt. á þskj. 502 fyrir menntmn., hefur mér láðst að taka upp brtt. um fyrirsögn IX. kafla, en fyrirsögn þess kafla er í frv.: Kennsla í lyfsölufræði. Menntmn. mun því bera fram skriflega brtt. um þetta atriði, sem ég mun afhenda forseta og fara fram á við hann, að bann leiti afbrigða um, þannig að till. geti komizt að nú við þessa umr.
Þá vil ég til þess að koma í veg fyrir hugsanlegan misskilning geta eins atriðis í sambandi við kennara í lyfefnafræði. í 11. gr. frv. segir svo m.a.:
„Menntamálaráðherra skipar dósenta að fengnum tillögum háskóladeilda, en háskólaráðið ræður lektora, aukakennara“ o.s.frv.
Í grg. um 43. gr. á bls. 26 í frv. segir um kennara í lyfsölufræði:
„Yrði kennarinn ráðinn til þessara starfa af háskólaráði skv. tillögu læknadeildar.“
Hér er gert ráð fyrir því í grg., að kennarinn í lyfsölufræði eða lyfefnafræði, eins og menntmn. vill kalla það, verði lektor eða aukakennari. Lektorar og aukakennarar eru ráðnir um takmarkaðan tíma skv. frv. um háskólann. Hins vegar hefur menntmrh. tjáð mér, að setning sú, er ég vitnaði til í grg, hafi í hana komizt fyrir vangá þess starfsmanns ráðuneytisins, sem tók grg. saman. Hún hafði verið tekin úr grg. við frv. um kennslu í lyfefnafræði, sem samin var, áður en háskólafrumvarpið var samið.
Kristinn Stefánsson forstöðumaður lyfjaverzlunar ríkisins og kennari við háskólann í lyfjafræði, þ.e. pharmaeology, sem væntanlega hefur yfirumsjón með kennslu í lyfefnafræði, hefur sent mér grg. um þetta mál, sem ég tel rétt að lesa, svo að þetta verði ljósara. Grg. er örstutt og er á þessa leið:
„Það fyrirkomulag um ráðningu kennara í lyfsölufræði, sem gert er ráð fyrir í greinargerðinni,“ þ.e. grg. við háskólafrumvarpið, „er ekki í samræmi við anda frv. og eðli málsins, þar sem óhugsandi er, að maður, sem á bæði að annast kennslu í lyfsölufræði og vera eftirlitsmaður með lyfjabúðum„ verði ráðinn til stutts tíma í senn. Bæði eru störfin þess eðlis, að þá fyrst, er hlutaðeigandi hefur rækt þau í nokkur ár, má vænta þess, að hann hafi aflað sér þeirrar reynslu og náð þeim þroska, sem nauðsynlegur er, til þess að slík störf séu vel rækt. Í þessu sambandi má geta þess, að sá maður, sem haft hefur störf þessi með höndum undanfarin rúm níu ár, var í upphafi skipaður af ráðherra sem aðalkennari við Lyfjafræðingaskóla Íslands og eftirlitsmaður lyfjahúða og þá sem fastráðinn starfsmaður ríkisins. Nú má gera ráð fyrir, að þessi sami maður komi til með að gegna umræddu kennslustarfi í lyfsölufræði og hafi jafnframt eftirlit með lyfjabúðum, og væri þá ósanngjarnt að ætla honum ótryggari kjör en hann hefur haft sem starfsmaður ríkisins til þessa, en slíkt yrði óhjákvæmilegt, ef farið yrði eftir því ráðningarfyrirkomulagi, sem gert er ráð fyrir í grg. við 43. gr. frv. Má raunar telja vonlítið, að hæfur maður fáist til þessara starfa, nema því aðeins að hann verði fastráðinn kennari háskólans. Af því leiðir aftur, að væntanlegur kennari í lyfsölufræði við háskólann hlýtur að verða ráðinn sem dósent, sbr. 10. og 11. gr. frumvarpsins, en ekki sem lektor eða aukakennari.“
Þetta var grg. Kristins Stefánssonar. Ég tel skoðun hans á fullum rökum byggða, og samrýmanleg er hún því, sem hæstv. ráðh. hefur tjáð mér um þetta efni.
Um brtt. menntmn. á þskj. 502 þarf ég ekki margt að segja umfram það, sem ég þegar hef rætt.
1. brtt., við 3. gr., er hugsuð sem varnagli við því, að þriðji hluti prófessora geti komið í veg fyrir lögmætt rektorskjör með því að taka ekki þátt í atkvgr.
2. brtt., við 9. gr., 2. málsgr., er aðeins orðalagsbreyting. — 3. brtt. er það nánast líka, en þar er fellt niður orðið eiturlyfjaneyzla. Nefndinni þótti réttara, að um slíka óreglu og einnig áfengisneyzlu væri kveðið á í reglugerð, en að almennt orðalag væri viðhaft um þetta í lögum.
Um 4. brtt., við 30. gr., hef ég þegar rætt. 5., 6., 7. og 8. brtt. fjalla allar um atriði þau, sem fólust í þeim tveim frv., sem n. leggur til að felld verði inn í háskólafrumvarpið með þessum hætti. Þarf ekki frekar um það að ræða.
Að endingu vil ég fara örfáum orðum um brtt., sem við hv. þm. Barð. flytjum á þskj. 503. Brtt. er við 2. gr., 3. mgr. Málsgrein þessi hljóðar svo í frv.:
„Háskólaráð hefur úrskurðarvald í öllum málefnum háskólans og háskólastofnana, nema lög mæli öðruvísi. Háskólaráð fer með undirbúning þeirra mála, er leggja á fyrir stjórnarvöld eða löggjafarvöld og varða háskólann.“
Háskólinn er ríkisstofnun, eins og kunnugt er. Hann rekur að vísu tvö fyrirtæki, happdrættið og Tjarnarbíó, sem talsverðar tekjur eru af, en meginið af því fé, sem hann fær til umráða, er framlög úr ríkissjóði. Sýnist okkur flm. brtt., að því sé eðlilegra, að löggjafarvaldið ákveði berum orðum þau málefni, sem háskólaráð hefur úrskurðarvald um. Þau málefni eru mörg og margvísleg, eins og allir sjá, sem lesa frv. og þær reglugerðir, sem nú gilda, og líklegt er, að málefnum þessum fjölgi við setningu nýrra reglugerða. Slíkt finnst mér líka eðlilegt og sjálfsagt. Háskólinn hefur sérstöðu í þjóðfélaginu að þessu leyti og á að hafa sérstöðu. Hitt finnst okkur flm. brtt. óeðlilegt, að setja þurfi sérstök lög um, að háskólinn hafi ekki úrskurðarvald um þau málefni, sem ætlazt er til að ráðh. úrskurði. Þetta hefur að vísu verið á þennan hátt í núgildandi háskólalögum. Engu að síður sýnist okkur flm. brtt. ástæða til, að þessu verði breytt í það horf, sem við leggjum til, að háskólaráð hafi úrskurðarvald í málefnum háskólans og háskólastofnana, svo sem lög mæla og nánar segir í reglugerðum.
Þá ætlumst við flm. brtt. til þess, að niður falli setningin: „Háskólaráð fer með undirbúning þeirra mála, er leggja á fyrir stjórnarvöld eða löggjafarvald og varða háskólann.“
Þessi setning er að vísu í núgildandi háskólalögum. Engu að síður sýnist okkur hún óþörf og jafnvel villandi. Það er tekið fram á öðrum stöðum í frv., meira að segja í næstu mgr. á eftir 4. mgr. 2. gr., að áður en lögum, er snerta háskólann eða háskólastofnanir, verði breytt eða við aukið, skuli leita umsagnar háskólaráðs svo og um nýmæli.
Þá eru ákvæði í frv. um það, að reglugerðir um háskólann og stofnanir hans verði settar að fengnum tillögum háskólaráðs. Fleiri ákvæði svipaðs eðlis eru í frv. Þetta eru vitanlega eðlilegir og sjálfsagðir hlutir. En í setningunni: „Háskólaráð fer með undirbúning þeirra mála, er leggja á fyrir stjórnarvöld eða löggjafarvald og varða háskólann,“ — felst það, að ég ætla, að alþingismenn mega ekki bera fram frv. um nein málefni háskólans, nema háskólaráð hafi undirbúið málið. Ef einhverjum okkar yrði á að gera það á okkar eindæmi, ætti forseti líklega að vísa frv. frá, vegna þess að undirbúningur þess væri ekki samkvæmur þessu lagaboði. Sama eða svipað gilti, ef einhver áhugamaður um málefni háskólans vildi leggja fram einhverjar tillögur fyrir ráðherra um háskólann eða stofnanir hans. Ef einhver vildi t.d. gefa háskólanum gildan sjóð eða arfleiða hann að eignum sínum, mætti sá sami ekki semja skipulagsskrána, heldur yrði hann að fá það mál í hendur háskólaráði. Væntanlega tekur þó enginn eða mun taka þessa setningu bókstaflega, þó að áfram verði í lögum. og yrði því vonandi ekki tjón að henni. En óprýði er að henni í frv., og því leggjum við flm. brtt. til, að hún verði niður felld.