28.05.1957
Neðri deild: 111. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1894 í B-deild Alþingistíðinda. (1790)
157. mál, Háskóli Íslands
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs fyrst og fremst til þess að leggja áherzlu á óskir háskólastúdenta í sambandi við þetta frv. til nýrra háskólalaga, sem hér liggur fyrir.
Óskir stúdenta í þessum efnum varða fyrst og fremst tvö atriði: annars vegar aðild stúdenta að stjórn háskólans og hins vegar vernd hins akademíska frelsis, sem hv. síðasta ræðumanni virtist standa talsverður stuggur af.
Að því er fyrra atriðið varðar er þess að geta, að annað aðalhlutverk háskólans er að veita stúdentum fullkomna fræðslu, og þessir stúdentar, sem stunda nám við Háskóla Íslands, eru nú um 800. Mestur hluti þeirra hefur náð lögræðisaldri, eru yfir 21 árs gamlir, og er að því leyti ólíkt farið íslenzkum stúdentum og stúdentum í háskólum margra annarra landa, sem útskrifast mun yngri, allt frá því þeir eru 17 ára gamlir.
Ákvæði um þátttöku stúdenta í stjórn háskóla hefur nú nýlega verið sett í norsk lög að því er varðar háskólann í Osló. Fyrirkomulagið þar er þannig, að stúdentar eiga fastan fulltrúa í háskólaráði, en undanskildir aðild stúdenta eru tilteknir málaflokkar. Sú brtt., sem menntmn. þessarar hv. d. hefur lagt fram um þetta efni, gengur ekki alveg svona langt, þar eð hún gerir ráð fyrir, að stúdentar eigi aðild að háskólaráði, þegar til umræðu eru mál, sem varða stúdenta háskólans almennt.
Það hefur komið fram í ræðum þeirra, sem hér hafa talað, að á því leiki nokkur vafi, hvaða mál eiga að heyra þarna undir. Hins vegar er ákvæði n. þannig orðað, að túlka má það á þann hátt, sem Oslóar-menn gera. En persónulega fyndist mér skýrara og full ástæða til að haga þessu heldur á þann veginn, að almenna reglan væri sú, að stúdentar ættu fastan fulltrúa í háskólaráði og málaflokkar, sem þeir skyldu ekki eiga aðild að eða taka þátt í úrlausn um, væru sérstaklega undanskildir með reglugerð. Bæði er það, að mál háskólans almennt hljóta að varða stúdenta líka, þótt þau varði ekki stúdenta háskólans almennt sérstaklega, og þar eð stúdentar háskólans eru mun yngri en kennarar háskólans, ætti það alls ekki að vera til baga fyrir kennara háskólans að fá sjónarmið eins stúdents fram um þessi mál, þar eð sjónarmið hinna yngri manna eru um mörg af þessum málum nokkuð önnur en hinna eldri.
Hv. 1. þm. Skagf. (ÓJ), sem er prófessor við lagadeild háskólans, sagði nokkur orð um brtt. n. um þetta efni. Hann spurði, hvernig skilja bæri, að mál snerti stúdenta háskólans almennt, hvort mál, sem snerti stúdenta einnar deildar, teldust snerta stúdenta háskólans almennt; einnig hvort mál eins og það, hvort heimilt væri að halda dansleik í anddyri háskólans á gamlárskvöld, teldust snerta stúdenta almennt eða hvort stúdent skyldi eiga hlut að úrlausn þess máls. — Ég tel alveg tvímælalaust, að stúdentar ættu að eiga aðild að úrlausn slíkra mála. Mér dettur í hug í þessu sambandi eitt mál, sem mjög var á döfinni fyrir nokkrum árum í háskólanum, en það var, þegar sett var ákvæði í reglugerð háskólans um íþróttaskyldu stúdenta. Einn hv. nm. í menntmn. minntist einhvern tíma lauslega — að mig minnir — á það, að það væri alls ófært, að stúdent ætti að fara að skipta sér af því, hvort lögð yrði íþróttaskylda á háskólastúdenta eða ekki. Það eru einmitt þess konar mál, sem er full ástæða að stúdentar hafi heimild til að fjalla um, og mjög til skaða, ef þeirra álits gætir ekkert um slík mál. Það eru fyrst og fremst mál, sem varða beinlínis vísindaleg efni og jafnvel persónuleg mál hinna ýmsu háskólakennara, ýmislegt varðandi prófverkefni, einkunnir og þess háttar, sem eðlilegt er og sjálfsagt að stúdentar komi ekki nálægt. Þetta viðurkenna háskólastúdentar, og þess vegna væri það sennilega öllu betra, að norska reglan í þessu efni væri látin gilda, þ.e.a.s. að brtt. n. um þetta efni væri túlkuð á þann veg, að almenna reglan væri sú, að stúdent ætti sæti í háskólaráði.
Sama er að segja um aðild stúdenta að stjórn deilda. Þar er ráðið til lykta eða rætt um mál, sem yfirleitt eru enn nær stúdentum en þau, sem rædd eru í háskólaráði, og það væri vissulega mjög til góðs, ef nemendur deildarinnar ættu kost á að koma sjónarmiðum sínum þar á framfæri.
Ég hef orðið þess vör, að nokkur ótti hefur komið fram við það, að þarna mundu hin ólíku pólitísku sjónarmið háskólastúdenta verða mjög hættuleg. En sannleikurinn er sá um pólitíkina í háskólanum, að raunverulega kemur hún alls ekki til greina um hagsmunamál stúdentanna sjálfra, þar standa þeir yfirleitt sem einn maður, hvaða pólitísku skoðun sem þeir hafa.
Ég mun svo láta þessi orð nægja um aðild stúdenta að stjórn háskólans, en víkja nokkuð að hinu atriðinu: vernd hins akademíska frelsis. Þá held ég væri ekki úr vegi að gera sér grein fyrir, hvað felst í hugtakinu akademískt frelsi. Það mun í fyrsta lagi vera, að háskólakennara er í sjálfsvald sett, hvaða rannsóknum hann sinnir, hvaða kenningar hann lætur koma fram í kennslu sinni og hvaða skoðunum hann gerir grein fyrir, og það eru engin yfirvöld bær um að fyrirskipa háskólakennurum neitt um þetta. Að því er stúdenta varðar, þá er þeim heimilt að notfæra sér kennslu háskólans eftir vild, og þeim er að öllu leyti í sjálfsvald sett, á hvaða hátt þeir notfæra sér hana. Þetta eru meginatriðin, sem felast, í hugtakinu akademískt frelsi.
Það hefur komið hér fram, að hið akademíska frelsi skapi hjá mörgum stúdentum hneigð til að slá algerlega slöku við nám sitt og verða — að því er mér skilst helzt — óhæfilega dýr baggi á þjóðfélaginu, sem kostar kennsluna við háskólann. Ég vildi benda á, að laun prófessoranna eru nákvæmlega jafnhá, hvort sem 3 stúdentar hlusta á fyrirlestur hjá þeim eða 30. Þess vegna kemur það að þessu leyti á sama hátt út fjárhagslega fyrir þjóðfélagið, hvort stúdentar sækja tíma sína eða ekki. Það, sem máli skiptir, er, að þeir stúdentar, sem hafa hæfileika og dug til þess að ljúka háskólanámi, fái að gera það óhindraðir af reglum ríkisvaldsins.
Stúdentar, sem stunda nám við Háskóla Íslands, þar sem enn þá ríkir akademískt frelsi, fá tækifæri til að þroska sína einstaklingslegu, persónulegu hæfileika, ala upp með sér sjálfsaga, og þeir venjast á að taka ábyrgð á sínum eigin gerðum. Það má segja, að þegar stúdent hefur náð tvítugsaldri, sé sannarlega tími til kominn að reyna það, hvort hann er maður til að rísa undir sínu eigin persónufrelsi. Skólakerfi okkar er í svo föstum skorðum að segja má, að námsmenn njóti ekki frelsis við nám sitt, fyrr en þeir koma í Háskóla Íslands, og oft er það svo, að þeir, sem hafa vei dugað í menntaskólum eða skyldunámsskólunum, heltast úr lestinni í háskólanum, því að þeir hafa ekki viljastyrk til þess að rækja nám sitt vel, þegar þeir stjórna gerðum sínum að öllu leyti sjálfir. Hins vegar er það oft, að margir þeir, sem hafa verið linir við námið í almennu skólunum, leggja hart að sér í háskóla, þegar nær alvöru lífsins dregur, og verða þar oft með beztu mönnum.
Þá er á það að líta, að högum fjölda stúdenta hér á landi er svo háttað, að þeim er fjárhagslega nauðsynlegt að geta stundað vinnu jafnframt námi sínu, og dugir þar ekki sumaratvinna ein. Hér er ekki aðeins um að ræða einhleypa stúdenta, sem þurfa að standa straum af uppihaldi sínu yfir vetrartímann, heldur hefur á síðari árum þróunin gengið æ meira í þá átt, að fjöldi háskólastúdenta er fjölskyldumenn. Af skiljanlegum ástæðum þurfa þeir meira fé til lífsins og leggja þá jafnframt meira að sér við nám sitt, en jafnframt er dregið úr þeim skilyrðum, sem þeir hafa til að sækja tíma við Háskóla Íslands. Þeim þarf að vera í sjálfsvald sett, hvort þeir sækja tíma um tiltekið skeið og sleppa því á öðru tímabili. Ef þessum mönnum væri ekki kleift að ljúka háskólanámi á þann hátt, sem nú er með akademísku frelsi, væru þeir annaðhvort útilokaðir frá háskólanámi eða þá að þeir yrðu að steypa sér í stórskuldir til þess að ljúka því, og þykir mér ólíklegt, að margir fjölskyldumenn mundu binda sér þann skuldabagga í upphafi búskapar.
Það hefur verið gerð athugun á því, a.m.k. varðandi eina deild háskólans, lagadeild, hve stór hluti af stúdentunum er giftur, og það kom í ljós, að hin síðari ár hafa um 30% íslenzkra lagastúdenta verið giftir. Það liggur í augum uppi, að það væri þjóðfélaginu ekki til góðs, að fjöldanum af þessum mönnum væri fyrirmunað að ljúka háskólanámi. Það yrði, ef hið akademíska frelsi yrði skert til muna. Sama er að segja um þá menn, sem falla fyrir freistingum hins akademíska frelsis, leggjast jafnvel í óreglu, — þeir taka sig oft á síðar og verða mjög dugandi og nýtir menn. – Það væri sannarlega þjóðfélaginu til lítils góðs, ef þeim væri meinað að halda áfram námi og ljúka háskólaprófi. Enn fremur væri vafasamt gagn að því að knýja það fólk í gegn, sem ekki hefur dug og skynsemi til að fara með frelsi við eigin vinnu.
Hið akademíska frelsi er það fyrirkomulag, sem kynslóð flestra þeirra hv. þm., sem hér eru inni, hefur átt við að búa, og ég á erfitt með að trúa því, að hv. þdm. telji árangur menntunar þeirrar kynslóðar slíkan, að sporna beri við því, að haldið sé áfram á sömu braut. Einhverjum kann nú að þykja þetta nokkuð mörg orð og djúpt í árinni tekið um þær greinar, sem líta svo meinleysislega út eins og t.d. 23. gr. þessa frv., sem hér liggur fyrir. En hún er alls óþörf, ef beita á henni aðeins á þann hátt, sem hv. 7. þm. Skagf. gat hér um, því að í 26. gr. frv. er ákvæði um, að stúdent skuli falla út af stúdentatali skólans, hafi hann ekki sótt tíma um tiltekið skeið, og þá hlýtur það að leiða af sjálfu sér, að hið upptekna fyrirkomulag — að láta miða ganga um kennslustofurnar og láta stúdentana skrá sig þar á — hlýtur að halda sér, til þess að unnt sé að sjá á einhvern hátt, hvort stúdent hefur einhvern tíma sýnt sig í háskólanum á því tímabili, sem 26. gr. ræðir um. Hins vegar er stúdent að öllu leyti í sjálfsvald seít, hvort hann skrifar nafn sitt á slíkan miða. Það er ekki bægt að skylda hann til þess, ef hann er því mótfallinn. Sömuleiðis er ekki heldur hægt að skylda kennara til að láta slíkan miða ganga. En ég held, að þetta ákvæði sé algerlega hættulaust. En hins vegar getur verið hægt að beita 23. gr. á þann hátt, að hún skerði hið akademíska frelsi, og ég vil eindregið biðja hv. þdm. að skoða hug sinn gaumgæfilega, áður en þeir ákveða, hvort rétt sé að lögfesta ákvæði, sem getur haft í för með sér skerðingu á hinu akademíska frelsi og þar með orðið spor í áttina til kinverskra fræðsluhátta, sem hv. síðasti ræðumaður ræddi um.