15.02.1957
Sameinað þing: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (180)
Varamenn taka þingsæti
Frsm. meiri hl. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Þá er mál þetta enn komið á dagskrá eða kjörbréf varaþingmanns Alþýðuflokksins í Reykjavík, Eggerts Þorsteinssonar.
Ég ætla ekki að fara að rekja gang málsins fram að þessu, en vil aðeins hér lesa upp, með leyfi hæstv. forseta, úr gerðabók yfirkjörstjórnar í Reykjavík fundargerðir yfir fundi, sem haldnir voru, eftir að samþykkt var á mánudaginn var sérstök þingsályktun í máli þessu, og hún hljóðar svo:
„Ár 1957, þriðjudaginn 12. febrúar, kom yfirkjörstjórnin saman á fund á skrifstofu formanns.
Á fundi yfirkjörstjórnar 27. okt. s.l. ákvað yfirkjörstjórnin að fresta að taka ákvörðun um varaþingmannssæti Alþýðuflokksins í Reykjavík. Ráðgerður fundur 30. s.m. var ekki haldinn. Aftur á móti kom yfirkjörstjórnin saman á fund og varð sammála um það að gefa ekki Eggert Þorsteinssyni kjörbréf sem varaþingmanni fyrir Alþýðuflokkinn, þar sem hún taldi skorta lagaheimild til þess. Tjáði formaður yfirkjörstjórnarinnar formanni Alþýðuflokksins þessa niðurstöðu. Þann 22. jan. s.l. átti skrifstofustjóri Alþ. tal við formann yfirkjörstjórnar og spurðist fyrir um afgreiðslu þessa máls. Næsta dag, 23. s.m., ritaði yfirkjörstjórnin því næst Alþ. svo hljóðandi bréf.“ — Ég ætla ekki að lesa það upp, af því að það bréf hefur legið fyrir þingmönnum og lá hér fyrir, þegar málið var upphaflega rætt í Sþ.
„Þann 12. febr. 1957 barst yfirkjörstjórninni svo hljóðandi bréf frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu ásamt neðanskráðri þingsályktun, er samþykkt var á Alþ. 11. þ.m.:
„Ráðuneytið framsendir yfirkjörstjórn Reykjavíkur hér með þingsályktun um kjörbréf varaþingmanns. Þál. var samþykkt á Alþ. 11. febr. 1957. Óskar ráðuneytið þess, að yfirkjörstjórnin gefi út kjörbréf til handa Eggert G. Þorsteinssyni sem varaþingmanni A-listans í Reykjavík.“
Umrædd þál. fylgdi með bréfinu, og er hún svo hljóðandi.“ — Mun ég sleppa henni. „Yfirkjörstjórnin ræddi málið og ákvað að fresta afgreiðslu þess til síðari hluta næsta dags.
Fundi slitið.
Kristján Kristjánsson, Steinþór Guðmundsson, Hörður Þórðarson.“
Miðvikudaginn 13. febr. kom yfirkjörstjórnin aftur saman á fund kl. 5 síðdegis í skrifstofu formanns. Var þá bókað eftirfarandi í sambandi við útgáfu kjörbréfs til Eggerts Þorsteinssonar:
„Yfirkjörstjórnin lítur svo á, að Alþ. hafi með framangreindri ályktun tekið Eggert Þorsteinsson gildan sem varaþingmann fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík fyrir þetta kjörtímabil og að þingseta hans hljóti nú að byggjast á þeirri ályktun.
Með bréfi til Alþ., dags. 23. jan. s.l., taldi yfirkjörstjórnin afskiptum sínum af máli þessu lokið, en Alþ. hefur með fyrrgreindri þál. einnig lagt fyrir yfirkjörstjórnina að gefa Eggert Þorsteinssyni kjörbréf, og dómsmálaráðuneytið hefur með bréfi, dags. 12. þ. m., óskað eftir, að svo væri gert.
Hörður Þórðarson biður bókað: Yfirkjörstjórnin hefur synjað beiðni um útgáfu kjörbréfs til Eggerts Þorsteinssonar sem varaþingmanns Alþýðuflokksins í Reykjavík, af því að hún taldi til þess skorta heimild í lögum. Ég álít, að við þessa ákvörðun sína eigi yfirkjörstjórnin enn að standa og synja beri því enn um útgáfu kjörbréfsins, og mun ég því ekki undirrita það.
Meiri hluti yfirkjörstjórnar, Kristján Kristjánsson og Steinþór Guðmundsson, lýsa því yfir, að þeir vilji virða ályktun Alþingis, og gefa út til handa Eggerti Þorsteinssyni svofellda yfirlýsingu:
Undirrituð yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi gerir kunnugt: Með vísun til þál., samþykktrar á Alþingi 11. febr. 1957, um kjör varaþingmanns, veitum vér hér með Eggert G. Þorsteinssyni múrarameistara, Bústaðavegi 71, Reykjavík, kjörbréf þetta sem varaþingmanni Alþýðuflokksins í Reykjavík fyrir yfirstandandi kjörtímabil.
Síðan var gengið frá kjörbréfi og orðað eins og að framan greinir. En þar sem Hörður Þórðarson neitaði að undirrita það, var það aðeins undirritað af tveimur yfirkjörstjórnarmönnum. Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Kristján Kristjánsson, Steinþór Guðmundsson, Hörður Þórðarson.
Rétt endurrit staðfestir
Yfirkjörstjórnin í Reykjavik, 14. febr. 1957.
Kristján Kristjánsson.“
Hér liggur sem sagt fyrir gerðabók yfirkjörstjórnarinnar í þessu máli, eftir að þingið var búið að gera sína samþykkt.
Það hafa að vísu spunnizt nokkuð langar umr. um þetta mál hér í þinginu, en ég býst við því, að þeir af þingmönnum, sem hafa nennt að hlusta á þær allar, muni vera mér sammála um það — og það úr hvaða flokki sem þeir eru, að þessar umr. hafa alls ekki snúizt um varaþingmann Alþfl. í Reykjavík, — alls ekki snúizt um það. Þær hafa snúizt um allt annað, og stjórnarandstaðan hefur reynt að gera þessar umr. að nokkurs konar eldhúsi yfir ríkisstj. og hefur sérstaklega reynt að nota sér það, að hún hefur orðið vör við, að það hefur skort eindrægni meðal stjórnarflokkanna í sambandi við þetta mál.
Ég ætla að sjálfsögðu ekki að fara að taka þátt í slíku eldhúsi. Það er nýlega búið að hafa slíkt eldhús hér í útvarpinu, og ég held, að stjórnarandstaðan þurfi ekki að vera neitt sérstaklega kát og ánægð yfir frammistöðu sinni þar. Hún getur sennilega við hvaða mál sem er fengið útvarpsumr., ef hún óskar eftir því, til þess að tala almennt um stefnu stjórnarinnar og lausnir hennar á hinum ýmsu málum, sem að kalla. Þess vegna er gersamlega ástæðulaust og út í hött að vera að reyna að draga inn í umr. um þetta mál, sem er hreint lögfræðilegt atriði, sem þm. þurfa að úrskurða um, almennar umr. um stjórnmálaviðhorfið.
Eins og ég benti á í ræðu minni, þegar þetta mál lá hér fyrst fyrir, snýst þessi deila um það, hvernig beri að skilja 3 eða 4 orð í stjórnarskránni, í 31. gr. Þar stendur: „Jafnmargir varamenn skulu kosnir, samtímis og á sama hátt“ Deilan snýst um það, hvernig beri að skoða þessi orð, og ekki um neitt annað. Allt annað, sem hefur verið dregið inn í þessar umr., er hreint pex, sem skiptir engu máli, og þetta eru einu ákvæðin, sem til eru um ákvörðun varamanna af listum í Reykjavík, — þessi eina setning: „Jafnmargir varamenn skulu kosnir, samtímis og á sama hátt.“
Nú er það svo, að þessi setning segir ekki það mikið, að hún skýri til fulls hvert einasta tilvik, sem fyrir getur komið, og þar á meðal það tilvik, sem hér liggur fyrir, að af lista Alþfl., sem fær einn mann kosinn, er 1. varamaðurinn, sá varamaður, sem hefði átt að vera varamaður samkvæmt orðalagi þessarar greinar, fallinn út af listanum, vegna þess að hann er orðinn landskjörinn þm., Gylfi Þ. Gíslason. 3. maður á listanum, sem ætti þá að vera 2. varamaður, hefur sagt sig af listanum, Rannveig Þorsteinsdóttir. Og þá liggur fyrir næsti maður á eftir á listanum. Það er Eggert Þorsteinsson, sem liggur fyrir að afhenda varamannskjörbréf, af því að þannig var listinn skipaður, þegar yfirkjörstjórn tók til starfa.
Það er alveg augljóst mál, að hver listi, sem fær kosinn mann, á rétt á einum varamanni, og það er engin heimild til þess að neita nokkrum lista um slíkt. Ég vil bara benda á ákvæði um það, að fyrstu varamennirnir af listum í Reykjavík, listunum þremur, lista sjálfstæðismanna, lista Alþb. og lista Alþfl., voru teknir út af listunum sem landsk. þm. og komu ekki til greina sem varaþingmenn fyrir Reykjavík. En það er ekkert ákvæði í stjórnarskrá um það, að þessir menn eigi að vera annað en varaþingmenn. Það er ekkert ákvæði, sem heimilar það, að þá sé gripið til annarra manna sem varaþingmanna. Þetta skiptir kannske ekki höfuðmáli fyrir Sjálfstfl., sem er með 5 menn kjörna. En samkvæmt þessu, ef við ætluðum að leggja sama skilning í þetta orðalag eins og Bjarni Benediktsson hefði viljað vera láta, ætti Sjálfstfl. að fá 4 varamenn, en ekki 5, af því að einn varamannanna er tekinn út af listanum sem landsk. þm. Á sama hátt ætti Alþb. að fá einn varamann, en ekki tvo, af því að annar varamaðurinn er tekinn út af sem landsk. þm. Og á þennan sama hátt ætti þá Alþfl. af þessari sök ekki að fá neinn varamann, af því að Gylfi Þ. Gíslason átti að vera varamaður samkvæmt stjórnarskránni, ef hún er skilin á þann hátt, sem Bjarni Benediktsson vill vera láta og vill setja sinn fræðimannsheiður að veði við. Þá ætti heldur ekki að úthluta neinum varamanni til þessa lista og ekki einu sinni Rannveigu Þorsteinsdóttur.
Það er engin heimild í stjórnarskránni til að ganga þannig fram hjá fyrsta varamanninum. En það hefur þó verið gert. Og það hefur enginn flokkur mótmælt því, vegna þess að það er heilbrigð skynsemi, sem mælir með því að leggja þann skilning í það. Það er á nákvæmlega sama hátt heilbrigð skynsemi, sem mælir með því að skilja þessa setningu, sem ég hef lesið hér áður, á þann hátt, að Eggert Þorsteinsson eigi að fá varamannskjörbréf fyrir Alþfl. í Reykjavík.
Það er verið að tala um, að það sé verið að ganga fram hjá kjósendum, það sé verið að blekkja kjósendur o.s.frv. Það eru til ákvæði í kosningalögunum, sem beinlínis gefa flokkunum vald til þess að skipa menn á lista. Ef einhvern flokk vantar nógu marga menn á landslista til þess að geta notað þau uppbótarsæti, sem hann hefur eignazt í kosningunum, þá má miðstjórn flokksins skipa menn á lista, menn, sem alls ekki hafa verið í kjöri, — en þarna er maður, sem hefur verið í 4. sæti á listanum. Það er vitanlega svo mikil fásinna að halda slíku fram, að það er alveg furðulegt, enda hafa umr. alls ekki snúizt um þetta mál, heldur um allt mögulegt annað pex, sem þm. hafa talið sér sæma að draga inn í þessar umr.
Þess vegna er allt tal um skilninginn á þessari setningu stjórnarinnar: „Jafnmargir varamenn skulu kosnir, samtímis og á sama hátt“ — vísvitandi útúrsnúningur, og allt þetta stapp verður út af því, að kjörstjórn Reykjavíkur hefur brugðizt þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að horfa á málið af raunsæi, en láta ekki pólitík hlaupa í það, láta ekki afstöðu sína til pólitískra flokka blinda sér, hvað rétt er og hvað er rangt. Hefði kjörstjórnin gegnt hlutverki sínu eins og henni bar, hefði sennilega engum meira að segja hugkvæmzt að gera þetta að rifrildismáli hér á Alþ. En það hefur ekki orðið, og þess vegna hefur farið sem fór, og stjórnarandstaðan hefur talið sér alveg sérstaklega kærkomið tækifæri að hefja stórárásir á Alþfl. í sambandi við þetta mál og Eggert Þorsteinsson persónulega, sem er vitanlega hin mesta fásinna og Alþfl. mun vitanlega vísa algerlega á bug, vegna þess að hann stendur hér á þeim rétti, sem er sjálfsagður, þeim rétti, sem er svo óhjákvæmilegur, því að ef ekki væri farið eftir þessu, væri stofnað til meiri mistúlkunar og raunar ofbeldis í sambandi við skilning á kosningalögum og ákvæðum stjórnarskrárinnar um kosningar heldur en dæmi eru til áður. Lýðræðisreglur í þjóðfélaginu eru í háska, þegar þm. láta það henda sig að láta pólitískt ofstæki sitt blinda sig í máli eins og þessu. En það er það, sem Sjálfstfl. hefur gert. Hann hefur látið pólitískt ofstæki blinda sig og ekki getað séð, hvað rétt er og rangt, vegna þess að hann hafði hag af því að reyna að skaða pólitískan andstæðing. Og það er einmitt þetta, sem er mjög háskalegt, vegna þess að hættulegustu brestirnir, sem geta orðið í lýðræðisskipulagi, eru einmitt þeir, þegar mönnum missést vegna ofstækis, vegna flokkslegra sjónarmiða.
Það hafa allir flokkar hag af því. að fylgt sé reglum. Og þó að þetta hitti Alþfl. í dag, skuluð þið muna, að það getur hitt Sjálfstfl. á morgun. Þess vegna er það skynsamlegast og hyggilegast, að það sé fylgt réttum reglum, en menn séu ekki að túlka á víxl ýmis orð stjórnarskrár og kosningalaga, eftir því sem passar þeim í hina pólitísku leiki, sem þeir eru að leika á hverri stundu. Og það er sérstaklega illt til þess að vita, að fyrrv. eða jafnvel núverandi fræðimenn á þessu sviði, menn, sem hafa verið kennarar í háskóla okkar í þessari grein, skuli leyfa sér að taka þátt í svona ljótum leik.
Ég leyfi mér svo að leggja fyrir kjörbréfið, og að till. um samþykkt kjörbréfsins stöndum við, ég og hv. þm. N-Þ. (GíslG) og hv. 1. landsk. þm. (AG). Ég ætla að lesa þá upp aftur kjörbréfið :
„Undirrituð kjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi gerir kunnugt:
Með vísun til þingsályktunar, samþykktrar á Alþ. 11. febrúar 1957, um kjörbréf varaþingmanns, veitum vér hér með Eggert G. Þorsteinssyni múrarameistara, Bústaðavegi 71, Reykjavík, kjörbréf þetta sem varaþingmanni Alþfl. í Reykjavík fyrir yfirstandandi kjörtímabil.
Í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis, 13. febrúar 1957.
Kristján Kristjánsson. Steinþór Guðmundsson.“