22.02.1957
Efri deild: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

116. mál, félagsheimili

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Í tilefni af tilkomu þessa máls hér á hv. Alþingi nú get ég ekki látið hjá liða að færa hæstv. ríkisstj. og þó sérstaklega hæstv. menntmrh. þakkir mínar fyrir þann skilning og velvilja í garð verkalýðsfélaganna, sem lýsir sér í því, að þetta frv. er nú komið hér fram um aðild verkalýðsfélaganna að félagsheimilasjóði og er nú flutt sem stjórnarfrv.

Eins og hæstv. menntmrh. gat um, hef ég nú á undanförnum þrem þingum flutt frv., sem gekk mjög í sömu átt og það frv., sem hæstv. ríkisstj. hefur nú flutt hér. Lengst komst málið til 3. umr. í hv. Nd. Eins og nú hefur komið fram hér hjá hv. þm. V-Sk., var höfuðröksemd þeirra, sem andmæltu frv. á þessum þingum, sú, að félagsheimilasjóður gæti ekki gegnt skyldum sínum við þá, sem þegar væru aðilar að sjóðnum, vegna fjárskorts, af þessum ástæðum væri ekki unnt að bæta við nýjum aðilum.

Nú hefur hæstv. ráðh. upplýst um hag sjóðsins, og mér skildist á ræðu hans, að það væri fullkomin viðurkenning stjórnarinnar á því, að úr fjárhagserfiðleikum félagsheimílasjóðs yrði að bæta, og hann lauk ræðu sinni með því, sem ég tel rétt að undirstrika hér einu sinni enn út af ummælum hv. þm. V-Sk., að hann vonaðist til, að ekki liði langur tími, þar til ríkisstj. legði fram till. um auknar tekjur til félagsheimilasjóðs.

Ég vil einnig vænta þess, að hæstv. ríkisstj. ráði bót á þessum fjárhagsvandræðum sjóðsins, þannig að hann megi sem bezt gegna sínu göfuga starfi, og efast ekki um, að við alþm. getum tekið undir þá ósk allir.

Að öðru leyti í sambandi við grg. fyrir málinu sjálfu vísa ég til þeirrar grg., er ég gerði fyrir málinu á undanförnum þrem þingum, um leið og ég undirstrika þakklæti mitt. Ég færi fram f.h. verkalýðsfélaganna allra þakkir til ríkisstj. fyrir að taka málið upp nú sem stjórnarfrv., því að á þann hátt ætti nú að vera tryggður sigur þeirra í málinu.