05.03.1957
Efri deild: 64. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1810)

116. mál, félagsheimili

Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Menntmn. hv. deildar hefur haft til meðferðar frv. það, sem hér er á dagskrá, og leggur n. til að athuguðu máli, að frv. verði samþ. Hv. G. þm. Reykv. hefur þó áskilið sér rétt til að flytja brtt. við frv. eða fylgja brtt. og skrifaði undir nál. með fyrirvara. Annar nefndarmaður, hv. 2. þm. Árn., var fjarstaddur vegna veikinda, þegar n. afgreiddi málið.

Í frv. felst sú ein breyting frá þeim lögum, sem nú gilda um þetta efni, að auk þeirra félaga, sem nú eiga rétt á fjárframlögum úr félagsheimilasjóði til byggingar félagsheimila, skuli verkalýðsfélög og búnaðarfélög einnig öðlast þennan rétt. En þau félög, sem talin eru upp í 1. gr. laganna, eins og þau eru nú, eru ungmennafélög, íþróttafélög, lestrarfélög, bindindisfélög, skátafélög og kvenfélög. Stjórn félagsheimilasjóðs hefur úrskurðað, að ég ætla, að undir þessi ákvæði falli ekki verkalýðsfélög og búnaðarfélög. Mér sýnist sá úrskurður að vísu nokkuð vafasamur, þar sem ég fæ ekki betur séð en hann hljóti að byggjast á því, að verkalýðsfélög og búnaðarfélög séu ekki talin menningarfélög í þessum lögum. Sú skýring er æði þröng, miðað við orðalagið í 1. gr. l., sem talar um hvers konar önnur menningarfélög en þau, sem upp eru talin, og það orðalag sýnist gefa tilefni til nokkuð rúmrar skýringar á því, hvað séu menningarfélög. En hvað sem því líður, þá sýnist n. sjálfsögð réttlætiskrafa, að þessi félög, sem eru allveigamikill þáttur í félagslífi þjóðarinnar, njóti jafnréttis við þau félög, sem upp eru talin í 1. gr. l., en það jafnrétti hafa þau ekki fengið viðurkennt að þessu leyti.

Nú kann að verða á það bent sem mótbáru gegn frv., að fjárkröfur á hendur félagsheimilasjóði aukist, ef þetta frv. verður samþykkt; félagsheimilasjóði hafi verið fjárvant hingað til og hann hafi ekki getað innt af hendilögákveðin framlög til félagsheimila eins ört og þurft hefði. Þetta kann að vera rétt, en hæstv. ríkisstj. hefur gefið fyrirheit um, að hún muni þegar á þessu þingi hlutast til um, að félagsheimilasjóður fái aukið fé, enda ekki vanþörf á. Er því þess að vænta, að sú hlið málsins standi til bóta. En það er kunnugt, að á ýmsum stöðum á landinu eru þau félög, sem farið er fram á að öðlist aðild að félagsheimilasjóði, þannig sett, að þau hafa ekki getað haldið uppi eðlilegri félagsstarfsemi vegna húsnæðisskorts. og á sumum stöðum eru engin önnur félög, sem gætu haft forgöngu um byggingu slíkra félagsheimila. Þeir erfiðleikar, sem þarna er við að stríða, verða ekki leystir, að talið er, nema þessi félög fái jafnrétti við þau félög, sem nú þegar njóta styrks eða geta notið styrks úr félagsheimilasjóði. N. sýnist því einsætt, að öll rök liggi að því, að eitt eigi yfir þessi félög öll að ganga í þessum efnum.