07.03.1957
Efri deild: 65. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)
116. mál, félagsheimili
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Við 2. umr. hér um daginn, eða fyrri hluta hennar, skýrði ég frá því, að ég mundi flytja brtt. við frv., og liggur sú brtt. fyrir á þskj. 317. Ég tók þá fram, að ég hefði út af fyrir sig ekkert við það áð athuga, að þeim félögum yrði við bætt, sem stjórnarfrv. fer fram á, en ef það ætti að ná fram að ganga, teldi ég eðlilegt að taka inn fleiri aðila. Í þeirri umsögn, sem meiri hluti íþróttanefndar og fræðslumálastjóri gáfu um svipað mál árið 1954, er gert ráð fyrir því, að ef t.d. verkalýðsfélög yrðu tekin inn sem styrkhæfir aðilar, sjálfstæðir, þá væri eðlilegt, að fylgdu á eftir félög verzlunarfólks, starfsmannafélög ríkis og bæja o.fl., o.fl.
Till. mín fer fram á það, að á eftir orðinu „verkalýðsfélög“ komi: starfsmannafélög ríkis og sveitarfélaga, verzlunarmannafélög“. Ég ætla, að þurfi ekki rökstuðnings við, að ef þessi félög vilja byggja félagsheimili, þá sé réttmætt og sanngjarnt, að þau komi einnig til greina sem styrkhæfir aðilar.
Aðra brtt. flyt ég á þskj. 316 ásamt hv. þm. V-Sk. Hún fjallar um það, að á eftir 1. gr. komi ný gr.: „Ríkissjóður leggur félagsheimilasjóði 700 þúsund krónur árlega, í fyrsta sinn árið 1958.“
Í upphafi var það svo, að félagsheimilasjóður fékk samkv. lögum 50% af skemmtanaskatti. Þannig mun hafa staðið til ársins 1952, að ég ætla, en þá var þetta fært niður í 35%. Þetta hefur orðið til þess, að sjóðurinn befur haft allmiklu minna fé til umráða en ella, en þörfin hins vegar ákaflega mikil, eins og öllum hv. þdm. er kunnugt, að byggja félagsheimili víðs vegar úti um land.
Nú hefur hv. þm. V-Sk. flutt frv. um það hér að hækka hlut félagsheimilasjóðs aftur upp í 50% af skemmtanaskatti. Ég hef aflað mér upplýsinga um, hvað skemmtanaskatturinn hefur verið undanfarin ár, og bæði árin 1954 og 1955 nam hann um það bil 5 millj. kr. Endanlegar tölur fyrir 1956 liggja ekki fyrir. Það lætur nærri, að 15% eða hækkun úr 35 upp í 50% af þessari upphæð, sem skatturinn varð 1954 og 1955, mundu vera um 750 þús. kr., og er það með hliðsjón af því, sem sú tala er sett inn í brtt.
Hins vegar þótti okkur sjálfsagt, þar sem búið er að afgreiða fjárl. fyrir yfirstandandi ár, að þetta ákvæði um framlag ríkissjóðs kæmi ekki til framkvæmda fyrr en á árinu 1958, og verður að taka tillit til þess í afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár.
Ég vænti, að allir hv. þdm. séu sammála um nauðsyn þess að efla félagsheimilasjóð, og vænti því, að till. okkar fái góðar undirtektir.