29.05.1957
Efri deild: 114. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)

116. mál, félagsheimili

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Það hlaut að því að reka, að ekki þyrfti lengi að bíða þess, að gerð yrði að engu sú búbót, sem fékkst á félagsheimilasjóði hér í hv. d. fyrir skemmstu.

Ég sé ekki betur en með því að knýja nú þetta mál fram, verði sveitir og kauptún útundan með byggingu félagsheimila. Afleiðingin hlýtur að verða sú. Brtt. hæstv. menntmrh. kann að vera til bóta, en ég fullyrði, að það er ekkert félagsheimili byggt í sveitum og kauptúnum öðruvísi en að nokkur félög standi þar að. Það er alls staðar svo; að þau sameina sig: kvenfélög, ungmennafélög o.s.frv. Þar er ekki hrúgað upp félagsheimili fyrir hvern aðila.

Ég leyfi mér, herra forseti, að flytja hér viðaukatill. skriflega, að aftan við þessa brtt. bætist ný málsgr., svo hljóðandi:

„Á meðan félagsheimilasjóður getur ekki fullnægt hlutverki sínu sakir fjárskorts, skulu félagsheimili í sveitum og kauptúnum sitja fyrir um styrk úr sjóðnum.“

Ég leyfi mér að afhenda forseta brtt.