15.02.1957
Sameinað þing: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2391 í B-deild Alþingistíðinda. (186)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. meiri hl. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv. hrasaði nú í seinni ræðu sinni nokkuð illilega af braut hinna hreinu lögskýringa og tók málið upp á pólitískum grundvelli um það, að samsetning Alþingis væri ekki í samræmi við þjóðarviljann og að Alþfl. hefði miklar sigurvonir, ef það yrði kosning um einn mann í Reykjavík.

Þarna er einmitt kominn kjarni málsins frá hendi þeirra sjálfstæðismanna. Þetta er það, sem hefur ráðið gerðum þeirra og lagaskýringum í málinu. Þeir telja, að nú standi þeir vel að vígi að fara út í kosningar um einn mann í Reykjavík, og þess vegna er þyrlað upp þessu moldviðri um svo sjálfsagða lausn sem hér hefur verið lögð til af meiri hl. kjörbréfanefndar.

Það er ekki margt, sem ég þarf að svara í ræðu hv. 6. þm. Reykv. En ég vil þó aðeins benda á, að sú setning, sem hann vísar til í seinni hluta 31. gr. stjórnarskrárinnar, á ekki við um þetta atriði, og hún kemur ekki í neinn bága við það, sem ég var búinn að halda hér fram áður. Þar stendur:

„Frambjóðendur þess flokks, sem landslista hefur í kjöri og nær jöfnunarþingsæti, taka sæti eftir þeirri röð, sem þeir eru í á listanum að lokinni kosningu.“

Þetta er landslisti, sem á þarna við. Það er ekki Reykjavíkurlisti. Það er landslistinn, sem þarna er verið að tala um. Og það breytir einmitt ekki þeirri staðreynd, að það, að þeir taka röð á landslistanum eftir kosninguna eins og þeir voru kosnir, eins og þeir eru á listanum að lokinni kosningu, gerir það að verkum, að þeir falla út af Reykjavíkurlistanum, þeir af þm. Reykjavíkurlistanna, sem ná kjöri sem uppbótarþingmenn. Og þá stendur eftir sú blákalda staðreynd, eftir skýringu sjálfstæðismannanna sjálfra, að listi, sem hefur aðeins fengið einn mann kjörinn í Reykjavík, á engan varamann eftir einmitt þeirra eigin skilningi.

Á landslista er frambjóðendum raðað — ja, mig minnir, að þeim sé raðað fyrir kosningarnar eftir stafrófsröð, en síðan breytist það eftir því, sem kosningaúrslitin gefa tilefni til, og þar nánar tilteknum reglum um það, hvernig þeir taka sæti sem uppbótarþingmenn hinna ýmsu flokka á þingi. En þetta er bara til þess að undirstrika það, að það er ekki sú röðun, sem á að ráða um uppbótarþingmennina, ekki sú röðun, hvar þeir eru í stafrófsröð, heldur hitt, hvernig atkv. hafa fallið í kosningunum. Þetta er sem sagt á engan hátt í ósamræmi við það, sem ég hef hér haldið fram.

Það, hvort Alþingi sé skipað í samræmi við þjóðarviljann, hefur vitanlega verið stöðugt dellumál á Íslandi. Það vita allir. Þetta hefur verið eitt af mestu deilumálum eiginlega við allar kosningar. Og ég býst við því, að það verði aldrei svo, að þingmannafjöldi verði algerlega í samræmi við atkvæðafjölda flokkanna. Og ákvæðið um 11 uppbótarþingmenn var einmitt hugsað til þess að leiðrétta það misræmi, sem þá var orðið, þegar þau lög voru sett og gerðu mikla bót á því, þó að það fyrirkomulag sé að mörgu leyti mörgum annmörkum bundið. En við verðum líka ekki einasta að taka tillit til þess, hvernig hlutföllin ættu að vera í samræmi við kjósendurna. Við höfum líka sett um þetta ákveðnar reglur. Og við vitum það ósköp vel, að jafnvel þótt settar væru í dag reglur um það, sem tryggðu, að þingmannafjöldi væri algerlega í samræmi við atkvæðatölur flokkanna, þá er ekki víst, að það haldist við næstu kosningar, það veit hver maður, — og sérstaklega í þeim miklu þjóðflutningum, sem átt hafa sér stað í okkar þjóðfélagi, þar sem verulegur hluti landsbúanna hefur á síðustu tveimur áratugum fært sig úr stað og hér í Reykjavik hefur vaxið upp stórborg og ýmsar stórborgir og þétt byggð hér á Suðvesturlandinn. Það mál er ekki til umræðu núna. Það er aðeins hitt, hvað eru fyrirmæli stjórnarskrár og kosningalaga um rétta þingskipun, eins og nú er. Öðru verður ekki breytt nema með sérstakri stjórnarskrárbreytingu.

Miðað við gildandi stjórnarskrá og gildandi kosningalög er þingmannafjöldinn, eins og hann er núna, áður en Haraldur Guðmundsson, hv. 4. þm. Reykv., víkur af þingi, þannig, að Alþfl. er ætluð átta þingsæti, og hann á rétt á því skv. kosningalögum og stjórnarskrá og á að halda þeim rétti. Hér er ekki verið að ræða um forföll. Hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, er enn þá þingmaður, hefur ekki sagt af sér þingmennsku, og hvað sem líður því starfi, sem í ráði er að hann taki við sem sendiherra erlendis, þá breytir það ekki því, að hann gæti verið í sjálfu sér þm. áfram. Það er engin lagaskylda að segja af sér, og hversu lengi hann gegnir því starfi og annað slíkt, er allt í óvissu, og það skiptir engu máli í þessu sambandi. Hér er aðeins verið að ræða um varaþingmanninn af lista Alþfl. í Reykjavík. Og þá koma fram þessi skýlausu ákvæði stjórnarskrárinnar um, að varamenn skuli vera jafnmargir og aðalmenn, sem er nánar skýrt í 117. gr. kosningalaganna, eins og hv. þm. Ak. hefur rækilega skýrt hér í ræðu sinni áðan. Það er ekkert um það að tala, hvort Haraldur Guðmundsson hefur lögleg forföll eða hvort Rannveig Þorsteinsdóttir hefur lögleg forföll. Haraldur Guðmundsson er ekki staddur á þingi núna, og Alþfl. á heimtingu á því að fá sinn varaþingmann inn. Rannveig Þorsteinsdóttir hefur sagt sig af listanum og kemur þess vegna ekki til tals, enda hefði þá sennilega kjörstjórnin, ef hún hefði verið á þeirri skoðun, sem hv. 6. þm. Reykv. vildi leggja í bókanir hennar, veitt henni kjörbréf, þrátt fyrir það að hún segði af sér. En það hefur hún ekki treyst sér til að gera, vegna þess að það á enga stoð í lögum.

Ég vil svo undirstrika það, að ég er ekki hér að neita því, að það sé æskilegt að halda sér sem mest við einmitt orðanna hljóðan. Ég er ekki að fordæma bókstafsskilning, ef hægt er að koma honum við. Og ég tel það einmitt vera bókstafsskilning þessarar marglesnu setningar hérna um, að jafnmargir varamenn skuli kosnir samtímis og á sama hátt, það er einmitt bókstafsskilningur og um leið skilningur á anda þessa ákvæðis með tilliti til stjórnskipunarinnar yfirleitt og kosningalaganna, að Alþfl. fái sinn varamann. Það er ekki neinn bókstafsskilningur, sem Sjálfstfl. berst fyrir í þessu máli. Það er bara útúrsnúningur og ekkert annað, — útúrsnúningur, sem hann gerir sér von um að geti gefið honum tækifæri til þess að koma fleyg inn í stjórnarsamstarfið í fyrsta lagi og í öðru lagi til þess að reyna að fá kosningu á einum manni hér í Reykjavík, sem allir vita og allir hljóta að viðurkenna að er í fullkomnu ósamræmi við bæði bókstaf og anda stjórnarskrár og kosningalaga.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þetta, en undirstrika þá till., sem ég hef borið hér fram.