12.11.1956
Neðri deild: 14. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)
35. mál, hnefaleikar
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég vildi aðeins láta þess getið við þessa 1. umr. málsins, að ég hef rætt þetta mál við forseta Í.S.Í en þau samtök lögðust gegn samþykkt slíks frv. á síðasta Alþingi, og áttu þau mótmæli eflaust nokkurn þátt í því, að frv. hlaut ekki afgreiðslu á því þingi.
Ég tel, að hér sé um mjög athyglisvert mál að ræða og hiklaust beri að keppa að því, að takmark þessa frv. verði að veruleika, þ.e., að hér verði ekki háð keppni eða sýningar á hnefaleik og spornað gegn því; að þessi íþrótt, ef íþrótt skyldi kalla, sé stunduð.
Forseti Í.S.Í. sagði mér, að ástæðan til mótmæla þeirra samtaka væri alls ekki sú, að Íþróttasambandið hefði í sjálfu sér tilhneigingu til þess að halda verndarhendi yfir þessari íþrótt, það væri síður en svo. Sannleikurinn væri sá, að iðkun hennar færi mjög þverrandi, — „sem betur fer“, sagði hann, — þannig að nú mætti heita, að mjög lítið kvæði að því, að menn legðu stund á hnefaleika. Það taldi hann tvímælalaust stefna í rétta átt. En orsök mótmælanna taldi hann vera þá, að það væri varhugavert fordæmi, að löggjafarsamkoman sjálf tæki að kveða á um það, hvaða íþróttagrein menn skyldu stunda og hvaða grein menn skyldu ekki stunda. Það, sem hann taldi vera réttu leiðina í þessum efnum, væri, að íþróttasamtökin sjálf tækju ákvörðun um það, að slík keppni eða sýning á leikjum færi ekki fram. Ég spurði hann, hvort samtökin mundu vera reiðubúin til þess að taka slíka ákvörðun, og því var hann að sjálfsögðu, eins og eðlilegt var, ekki reiðubúinn til þess að svara. En því vildi ég skjóta fram til þeirrar n., sem fær þetta til meðferðar, að ræða það við Í.S.Í. sem mótmælti samþykkt frv. í fyrra, hvort íþróttasamtökin sjálf vildu eða væru reiðubúin til þess að gera um það samþykkt, sem í fælist raunverulega það sama og felst í þessu frv. Ef svo væri, þá væri það e.t.v. æskilegri lausn á málinu, sem mér skilst að sé ekki verulegur ágreiningur um við samtökin, heldur en að þurfa að setja um það löggjöf. Ef íþróttasamtökin eru hins vegar ekki reiðubúin til þess að taka sjálf ákvörðun um það, að hnefaleikar skuli ekki sýndir opinberlega og torveldað að stunda þá, þá er það verkefni Alþingis að taka ákvörðun um, hvort svo langt skuli gengið að banna þá beinlínis.