06.05.1957
Sameinað þing: 54. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í B-deild Alþingistíðinda. (198)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (EmJ):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:
„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Ólafi Björnssyni, 9. landsk. þm.:
„Þar sem mér er ókleift að gegna þingstörfum til næstu mánaðamóta vegna utanferðar og síðar prófa við Háskóla Íslands, óska ég þess hér með, að varamaður minn, Jónas Rafnar hdl., Akureyri, taki í minn stað sæti á Alþingi frá og með 20. þ.m. og verði til þess gerðar nauðsynlegar ráðstafanir varðandi samþykkt kjörbréfs o.fl.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Kjörbréf þessa varamanns liggur hér einnig fyrir, og ég vildi leyfa mér að leggja til, að kjörbréfanefnd taki það til athugunar, fundarhlé yrði gefið í nokkrar mínútur og síðan yrði frá málinu gengið. — [Fundarhlé.]