28.01.1957
Neðri deild: 46. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (2070)

87. mál, fasteignaskattur

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Ég bjóst við, að þessu frv. yrði fylgt úr hlaði eitthvað hér í Nd., og beið þess vegna með það að kveðja mér hljóðs, og þar sem ég sé, að svo er ekki, vildi ég segja hér nokkur orð.

Þetta frv. hefur áður verið flutt, var flutt af fyrrv. ríkisstj. og lá þá hér fyrir Alþingi, en var stöðvað. Því fylgir samhljóða grg. og sú, sem fylgdi frv., þegar það lá fyrir Alþingi í fyrra. Það voru ýmsir, sem hreyfðu þá andmælum gegn þessu frv. og þá sérstaklega og fyrst og fremst þeim, að með þessu er verið að færa af starfsmönnum ríkisins talsverða vinnu yfir á oddvita og sveitarstjóra og bæjarstjórnir. Það er nú svo, að þessir aðilar, sem a.m.k. hvað oddvitana snertir starfa fyrir sáralitla þóknun, hafa ærið nóg á sinni könnu og þykir alls ekki á það bætandi, og í öðru lagi er það reynsla, að innheimta á gjöldum gengur miklum mun betur hjá sýslumönnum en hjá mönnum innansveitar, oddvitum eða gjaldkerum sveitanna. Það er því einnig þess vegna ástæða til þess að stinga hér fótum við og athuga, hvort þessi breyting sé réttmæt. Það getur ekki verið neitt stórkostlegt atriði fyrir sýslumenn eða þá, sem þessa innheimtu annast, að bæta við þremur liðum á þinggjaldsseðilinn, ef þeir fá þinggjöldin að öðru leyti útreiknuð hjá bókhaldsvélunum, því að það er vítanlega aðalverkið. Hitt er alveg hverfandi fyrir skrifstofurnar að bæta þessum þrem gjaldaliðum við, og getur aldrei oltið á neinu verulegu, en fyrir sveitarstjórnir er það mjög tilfinnanlegt, og allir oddvitar, sem ég hef átt tal við um þetta, og sveitarstjórnir eru þessu algerlega mótfallnar. Ég hef ekki talað við einn einasta mann, sem hefur talið þetta vera eðlilegt og mælt með því.

Ég legg þess vegna til og vil vænta þess, að nefndin taki þetta mjög til athugunar, áður en hún afgreiðir þetta mál, og láti það hljóta sömu örlög og á síðasta þingi.