03.05.1957
Efri deild: 93. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)

38. mál, selja Kópavogskaupstað land jarðanna Kópavogs og Digraness

Frsm. (Sigurvin Einarsson):

Herra forseti. Þetta mál hefur dvalið alllengi hjá hv. landbn., eða frá því 6. nóv., að málinu var vísað til n. Ástæðan fyrir þessu er sú, að nefndin sendi frv. til umsagnar jarðeignadeild ríkisins 15. nóv., en svar barst nefndinni ekki fyrr en 12. apríl, daginn sem þingi var frestað fyrir páska.

Efni frv. er það að heimila ríkisstj. að selja Kópavogskaupstað lönd jarðanna Digraness og Kópavogs, að undanskildum nýbýlum og því landi, sem heilbrmrn. hefur fengið vegna heilsuhæla í Kópavogi og til búrekstrar við þau.

Þá er bæjarstjórn Kópavogs einnig heimilað, samkvæmt 2. gr. frv., að taka eignarnámi erfðafesturéttindi í eignarlandi kaupstaðarins, ef nauðsyn krefur vegna skipulags. Á árunum fyrir stríð og í stríðsbyrjun skipti ríkið miklum hluta af landi þessara jarða niður í nýbýla- og ræktunarlönd og lét þau af hendi með erfðaleigusamningum, en á stríðsárunum tóku menn að byggja sér íbúðarhús á þessum löndum, svo að þarna myndaðist óðar meira eða minna samfelld byggð. 1947 er svo farið að skipuleggja þessa byggð sem þéttbýli.

Á síðustu 10–12 árunum hafa fólksflutningar til Kópavogs orðið örari en þekkzt hefur um nokkurn annan stað í landi hér. Mun fólksfjöldi í Kópavogi hafa nær því tífaldazt á þessu tímabili. Slíkum fólksflutningi fylgir að sjálfsögðu það, að skipuleggja þarf byggðina og sjá fyrir margs konar framkvæmdum, er svo ör bæjarmyndun krefst. Þetta verður ekki gert, nema bæjarstjórn kaupstaðarins fái full yfirráð þess lands, sem kaupstaðnum tilheyrir. Fjöldi kauptúna og kaupstaða í landinu hafa byggzt upp á landi ríkisins. Þegar svo viðkomandi bæjar- eða sveitarstjórn hefur óskað eftir að fá landið keypt, hefur að jafnaði þótt réttmætt, að hæstv. Alþingi heimilaði slíka sölu. Má nefna ýmis dæmi um þetta frá síðustu árum.

Í umsögn jarðeignadeildar ríkisins um frv. segir, að hæstv. Alþingi hafi eitt ákvörðunarrétt um það, hvort heimiluð verði sala nefndra jarða til Kópavogskaupstaðar, og sjái jarðeignadeildin ekki ástæðu til að taka afstöðu til þess. Hins vegar bendir hún á, að í lögum um sölu á landi ríkisins sé oft fram tekið, að námaréttindi, vatnsréttindi og jarðhitaréttindi séu undanskilin, en bendir þó á, að það sé sanngjarnt, að Kópavogskaupstaður eigi rétt til sand- og malarnáms til eigin þarfa og til jarðhita, ef um hann væri að ræða.

Hv. landbn. sá ekki ástæðu til að bæta slíkum ákvæðum inn í þetta frv., þar sem hæstv. ríkisstj. hefur það í hendi sér við væntanlega sölusamninga að undanskilja þessi réttindi, og jarðeignadeildin, sem á þetta bendir, mun væntanlega sjálf hafa þetta mál með höndum, þegar til sölusamninga kemur. Auk þess munu þessi náttúrugæði því miður vera af skornum skammti í Kópavogslandi. Hvað námur snertir er varla um sand- eða malartöku lengur að ræða, hvað þá meira. Vatn er þarna varla til, og nýtur kaupstaðurinn vatns úr Gvendarbrunnaleiðslum Reykjavíkur. Og um jarðhita er ekki að ræða.

Jarðeignadeild ríkisins gerir eina ákveðna till. um breytingu á þessu frv. Hún er sú, að náist ekki samkomulag um söluverð landsins, ákveði gerðardómur verðið í stað dómkvaddra manna, eins og segir í frv. Þetta hefur hv. landbn. fallizt á og flytur þá brtt. við frv. á þskj. 459, sem hér greinir. Landbn. leggur því einróma til, að frv. verði samþykkt með þessari breytingu.