16.05.1957
Neðri deild: 98. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2110 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)

83. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Það kom nú í ljós við fyrri hl. þessarar umr., að það voru ekki næsta margir hv. þm., sem virtust hafa áhuga fyrir þessu máli, og er það kannske nokkuð eðlilegt, meðfram fyrir það, að það eru tiltölulega fáir, sem hafa sett sig inn í þetta flókna mál eða hafa á því þekkingu vegna reynslunnar, og eins hitt, að menn vilja þá e.t.v. treysta á þá afgreiðslu, sem þetta vandasama frv. hefur fengið annars staðar frá.

Einu mótmælin, sem komu gegn mínum brtt. á þskj. 525, voru frá hv. 2. þm. Reykv. (BÓ), sem er einn af höfundum þessa frv. og var í mþn., en þau mótmæli snertu aðeins eina af mínum brtt., sem er brtt. við 19. gr. frv. og auðvitað er mikið deiluatriði. Samkvæmt frv. er til þess ætlazt, að það sé bannað að leggja net nema helminginn af hverri viku, því að 84 stundir eru auðvitað nákvæmlega helmingur af hverri viku, — það sé alls staðar bannað að leggja netin á þeim tíma, en samtímis megi leyfa stangarveiði alla daga og það m.a. fram í alla árósa.

Nú eru það mörg smærri atriði, sem felast í mínum brtt., og vildi ég mega vænta, að hv. þdm. athuguðu, hvað þeir eru að gera, þegar þeir greiða atkvæði um það, því að sumt af því hefur talsverða þýðingu, þó að smátt virðist í sjálfu sér, bæði um orðskýringar og annað. En með tilliti til þess, að nú er komin fram ein till. frá hv. 1. þm. Árn. (ÁÞ) og þm. Mýr. (HS) um að gera hér millistig með því að friða vötnin fyrir stangarveiði einn dag í viku, þ.e. mánudaginn, til viðbótar við það, sem í frv. er, þá vil ég segja það, að ég er sannfærður um, að það yrði meiri friður um þetta mál, ef það verður hafður sameiginlegur tími og jafnlangur tími, sem árnar eru friðaðar fyrir netum og stangarveiði. Það er náttúrlega töluvert álitamál um, hvað sá tími eigi að vera langur, en að hann sé jafnlangur fyrir hvort tveggja, það allt ég að sé heppilegt og að það sé sami tíminn.

Eins og ég vék að hér við fyrri hluta þessarar umr., gæti ég vel trúað því, þó að ég hafi ekki lagt það til í þessari till., að bezt væri, að friðunartíminn væri færður alveg til og hann væri settur á miðja vikuna, vegna þess að bæði stangveiðimönnum og bændum er það hentugra að hafa leyfi til veiða um helgar.

Eins og hv. þm. Árn. vék að, voru þær upplýsingar, sem 2. þm. Reykv. gaf við 1. umr. þessa máls, að laxarnir hefðu smogið gegnum net og verið svo veiddir á stöng, sönnun þess, að stangveiðin er ekki siður hættuleg og kannske hættulegri fyrir fiskstofninn en netin. Og ég verð að segja það, að það skiptir miklu meira máli, hvernig netin eru lögð og hvað leyft er í því efni, heldur en hvort netaveiði er leyfð einni nóttinni skemur eða lengur.

Hins vegar vil ég taka það fram, að í þessu frv. og í þessum deilum, sem hér eru í þingi um þetta frv., er lítið vikið að því, sem ég tel miklu meira virði í þessu máli en þær deilur, sem eru um netaveiði og stangarveiði, og það er það, sem allir ættu að geta verið sammála um, að auka klak til aukningar fiskstofninum, því að það ætti að geta komið öllum jafnt að gagni.

Enn fremur er annað atriði í þessu, sem sumir hafa gert sér grein fyrir, en sannarlega ekki allir, og það er það, hvílíkur reginháski fiskstofninum stafar af svartbaknum. Það er áreiðanlegt, að hann tínir upp í þúsundatali fiskaseiðin á leirum og hingað og þangað við árnar og vötnin, fyrir utan þann háska, sem nú stafar af minkunum.

Eftir samkomulagi við meiri hl. hv. landbn. ætla ég að taka aftur til 3. umr. eina brtt., þ.e. b-lið 7. brtt., sem er brtt. við 16. gr., og eru líkur til þess, að það verði reynt samkomulag um það atriði í n. fyrir 3. umr.

Að öðru leyti held ég mér við þær brtt., sem hér liggja fyrir, og það verða þá atkvæði að skera úr um það, eins og gefur að skilja, hvort þær ná samþykki eða ekki. En eins og fram er tekið í mínu nál., varðar það því, hvort ég sé mér fært að fylgja þessu frv. út úr deildinni ellegar ekki.