28.05.1957
Neðri deild: 112. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2153 í B-deild Alþingistíðinda. (2325)

182. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Ed., og felst í því breyting á 3. gr. laganna um stofnlánadeild sjávarútvegsins. Í þessari gr. er ákvæði, sem sett var inn í lögin árið 1951, þess efnis, að þegar svo standi á, að setja þurfi nýja aflvél í vélbát, sem lán hvílir á í stofnlánadeild sjávarútvegsins, skuli stjórn stofnlánadeildarinnar heimilt að veita veðleyfi, til þess að veðsetja megi skipið ásamt hinni nýju vél með 1. veðrétti fyrir nýju láni til vélakaupanna, sem nemi allt að 2/3 hlutum af verði vélarinnar.

Hér er lagt til, að heimildin verði víkkuð þannig, að heimilt sé að veita slíkt veðleyfi, þegar um er að ræða endurbætur á skipi, og að lánið megi þá nema allt að 2/3 virðingarverðs endurbótanna og vélar, ef um vélaskipti er að ræða. Í þessu er breytingin fólgin, að jafnframt því sem veita má veðleyfi, þegar um er að ræða að setja nýja vél í skip, þá megi jafnframt veita veðleyfi, ef um er að ræða aðrar endurbætur á skipi.

Sjútvn. hefur athugað þetta frv., og voru nefndarmenn sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt.