28.05.1957
Neðri deild: 112. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2156 í B-deild Alþingistíðinda. (2327)
182. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Ég tók eftir því, að hv. frsm. lagði sérstaklega áherzlu á það, þegar svo stæði á, að um endurnýjun á vélakosti skipanna væri að ræða. Það getur verið, að hann hafi minnzt líka á hitt, sem í frv. er, að hér er einnig um allar viðgerðir á skipunum að ræða. Þó að endurnýjun véla í bátaflotanum sé oft erfið fyrir þá, sem þær breytingar þurfa að gera, getur verið enn þá erfiðara og dýrara að láta fara fram þá viðgerð á skipunum, sem nauðsynleg kann að vera. Þetta er því ekki neitt smáatriði, neitt smáfjárhagsatriði, sem hér getur verið um að ræða. Að sjálfsögðu eru þessar breytingar að fjármunum til æði misjafnar, en slíkar geta viðgerðir verið, að þær kosti stórfé. Undir þeim kringumstæðum gerir frv. ráð fyrir því, að veðréttur stofnlánadeildarinnar víki fyrir af þessum kostnaði. Ég verð að benda á, að það getur verið varhugavert að setja slíka heimild í lög, ef mönnum er annt um, að fjárhagsgrundvöllur stofnlánadeildarinnar haldist heilbrigður. Ef um miklar og dýrar breytingar er að ræða, getur veð stofnlánadeildarinnar orðið lítils virði, því þó að miklar breytingar fari fram á einu skipi, verður veðréttur stofnlánadeildarinnar ekkert betri en hann var, þegar lánið var veitt.
Ég verð að telja, að mjög sé varhugavert að gera slíkar breytingar á lögum stofnunar eins og stofnlánadeildarinnar frá ári til árs, — breytingar, sem ég vil kalla kákbreytingar. Og með tíðum slíkum breytingum er hægt að gera fjárhagsgrundvöll þessarar stofnunar algerlega óraunhæfan. Það er ekki nægilegt að gera slíkar breytingar með þeim góða ásetningi, að verið sé að hjálpa mönnum, sem mjög eru þurfandi fyrir slíka hjálp. Það er út af fyrir sig gott og fagurt. En hin hliðin á þessu máli er sú stofnun, sem hér er um að ræða og þinginu ber skylda til að sjá um, að haldi áfram að byggjast á heilbrigðum fjárhagsgrundvelli.
Ég get ekki séð af þeim skjölum, sem hér liggja fyrir, að málið hafi verið sent Landsbankanum til umsagnar. Að sjálfsögðu var það ekki nema venjuleg háttvísi að gera slíkt, að senda málið þeim banka, sem lagt hefur fram féð í stofnlánadeildina og stjórnar henni, að hann sé spurður álits um slíkar framkvæmdir sem þessa. En svo virðist sem hvorki hæstv. ráðh., sem að frv. stendur, né þeirri n. eða þeim nefndum, sem fjallað hafa um frv. í báðum d., hafi komið til hugar að leita umsagnar Landsbankans um þessa breytingu á stofnlánadeildinni.
Það er í raun og veru ekki nema sjálfsögð kurteisisskylda gagnvart bankanum að gera það, en þar að auki er það mjög óhyggilegt að gera slíkar breytingar á svona stofnun, eins og hér er gert, án þess að málið sé rannsakað betur en sýnilegt er að hefur verið gert í þessu tilfelli. Málið hefur ekkert verið rannsakað. Það hefur flutzt áfram á góðvild manna í garð þeirra, sem breytingarnar þurfa að gera og fjármunanna til þess þurfa að fá. Það er út af fyrir sig skiljanlegt og ekkert við því að segja, en það er aðeins önnur hliðin á málinu.
Það vill nú oft verða svo í hv. Alþ., að slík mál sem þessi, þó að um sé talsvert mikið fjárhagsmál að ræða, eru látin ganga án mikillar þrautar í gegnum þingið og án mikillar athugunar. Þetta er þó eitt af þeim málum, sem sjálfsagt var að gefa gaum og athuga niður í kjölinn. Það hefur ekki verið gert. Hver árangurinn verður, þegar til framkvæmdanna kemur, á framtíðin ettir að leiða í ljós.