28.05.1957
Neðri deild: 112. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (2329)

182. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Björn Ólafsson:

Hv. frsm. viðurkenndi það að vísu, að það hefði ekki verið leitað umsagnar Landsbankans um frv., þó að slíkt ætti að gera, og vildi telja nefndunum það til afsökunar, að svo mjög væri liðið á þingið, að ekki væri tími til þess.

Það er alveg rétt, að liðið er á þingið. En ef hæstv. ráðh., sem frv. flutti, var annt um að fá þessa breyt. gegnum þingið, var vandalítið fyrir hann að leggja frv. svo snemma inn í þingið, að það gæti fengið þinglega afgreiðslu. Með þessu móti fær það ekki þinglega afgreiðslu. Að vísu má segja, að það sé ekki ástæða til að ásaka hv. n. þessarar d. eins og Ed., sem bar, þegar hún fékk frv. fyrst til meðferðar, að leita þeirrar umsagnar, sem eðlileg og venjuleg er.

Það er alveg rétt, að smábreytingar hafa verið gerðar á stofnlánadeildinni. Þær breytingar, ef ég man rétt, hafa aðallega verið í því fólgnar að færa aftur afborgun eins til tveggja ára, aðallega togaranna, aftur fyrir lánstímann, til þess að greiða fyrir fyrirtækjum, sem hafa verið í fjárþröng. Ég held, að þetta séu aðalbreytingarnar, sem gerðar hafa verið, en þessi breyt., sem nú á að gera hér að lögum, er a.m.k. að verulegu leyti nýmæli.

Ég geri ráð fyrir því, að það vaki fyrir hv. meiri hl. að samþ. þetta frv., þó að það hafi ekki fengið þinglega meðferð. Mér finnst þó full ástæða til að minna á þennan ágalla, sem hefur verið á meðferð málsins í þinginu.