11.02.1957
Sameinað þing: 28. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (2356)

108. mál, kjörbréf varaþingmanns

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Ræður þeirra hv. 1. þm. Reykv. og 2. þm. Eyf. voru að ýmsu leyti svipaðar og um sama efni og raunverulega var seinni ræðan endurtekning á þeirri fyrri. Það er nú komið út í þá sálma, að langar ræður eru haldnar um brottför Haralds Guðmundssonar, og það sýnir samræmið í þessu öllu saman, þegar verið er að ræða um stjórnarskrá, að setja á langar ræður um það, að hann sé sendur sem útlagi út í lönd. Leit hv. 1. þm. Reykv. svo á, að Jakob Möller væri sendur sem útlagi, leit hv. þm. svo á, að Gísli Sveinsson væri sendur sem útlagi, eða leit hann máske svo á, þegar hann skipaði Sigurð Nordal, að manni skildist Sigurði Nordal til heiðurs, sendiherra í Danmörku, að Sigurður væri sendur sem útlagi, eini embættismaðurinn á Íslandi, sem hafði verið ákveðið að tæki sérstök heiðurslaun við háskólann, til þess að hann gæti fengið aðstöðu til þess að njóta sinna ágætu hæfileika við rannsóknir og ritstörf? Nú heitir þetta að vera sendur sem útlagi, og um þetta er meginmál þessara ræðna, sem hér eru haldnar, þegar verið er að ræða um það, hvort stjórnarskráin hafi verið brotin eða ekki.

Ég get bent í stuttu máli á það, sem þetta mál raunverulega snýst um, þ.e. 31. gr. stjórnarskrárinnar. Því er haldið fram af þessum hv. þm., að það eigi að kjósa jafnmarga varamenn samtímis og á sama hátt og aðalmennina. Ef það komist einn maður að hjá Alþfl., svo að maður taki það dæmi, þá er kosinn samtímis og á sama hátt einn maður til vara, þ.e. Gylfi Þ. Gíslason, og ekki hægt að breyta því með lögum á neinn hátt, vegna þess að þetta eru stjórnarskrárákvæði. Þetta segja þeir. En svo athuga þeir ekki, að jafnsnemma viðurkenna þeir um ákvæði 117. gr., sem ákveður það, að ef fyrsti varamaður, kosinn samtímis og á sama hátt, sá eini löglegi eftir þeirra skýringu, verður uppbótarþm., þá á að beygja sig fyrir því lagaákvæði, að hann verði uppbótarþm. og þriðji maður listans komi inn, en ómögulega lengra. Ef þriðji maður listans er forfallaður á sama hátt og fyrsti eða segir af sér, neitar að taka sæti, eins og í þessu tilfelli, þá er stjórnarskrárbrot, að sá fjórði komi til, aðeins sá þriðji.

Allir sjá, að annaðhvort er kosinn einn varamaður, og það er Gylfi Þ. Gíslason, eða það á að taka við næsti varamaður, þegar hinn forfallast, alveg eins og ákveðið er með fyrsta varamann. Um leið og þeir fallast á, að þriðji maður listans megi taka sæti í hans stað, eru þeir komnir ofan af öllu þessu, þar sem þeir halda því fram, að hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða. Annars er dálítið fróðlegt að sjá, hvernig þeir velta þessu öllu saman fyrir sér og fara úr einum stað í annan í rökum.

Það, sem hér á að ske, er það, að Eggert Þorsteinsson tekur sæti Haralds Guðmundssonar. Það er það, sem á að ske, en af því að það hafi ekki verið alveg víst fyrir Reykvíkinga, að þeir væru að kjósa Eggert varamann, þá á samkv. stjórnarskránni ekki að vera hægt, það á að vera ólýðræðislegt, að hann taki sæti. Ég hef vísað í 128. gr., þar sem ég sýndi fram á, að flokkunum er fengið svo mikið vald, að ef ekki eru nægilega margir menn á lista flokks, aðalmenn og varamenn, þá á kjörstjórn að gefa þeim tíma til þess að setja nýja menn á listann, sem eru þá samkvæmt því kosnir og ber að úrskurða kosna, m.ö.o. menn, sem kjósendur hafa aldrei nokkurn tíma haft hugmynd um að væru í framboði.

Þessu hafa sjálfstæðismennirnir aldrei fundið að. En þegar bent er á það, segja þeir, að það sé náttúrlega sízt til fyrirmyndar. Ég er ekkert að halda því fram, hvort það sé til fyrirmyndar eða ekki til fyrirmyndar, en það er staðreynd, eins og ég las upp, að þessi eru ákvæði 128. gr. kosningalaganna.

Svo halda menn, að það sé eitthvert brot á lögum að úrskurða, að næsti varamaður, sem hefur verið fjórði maður á lista flokks við framboð í Reykjavík, taki sæti næst á eftir, nákvæmlega eftir sömu reglu og 117. gr. ákveður, ef fyrsti varamaður forfallast.

Eins er það, að það er sagt, að nú sé ég í einhverjum vafa um það, hvort ég ætli að setja lög. Ég sagði það vitanlega strax í minni frumræðu, að ég áliti, að þetta væri lögskýringaratriði fyrir Alþingi og þá lögskýringu ætti Alþingi að inna af höndum, þar sem yfirkjörstjórn hefur beðið um þá lögskýringu beinlínis. Hún hefur vísað því til Alþingis og beðið um álit þess. Þess vegna er Alþingi skylt að afgr. þetta mál. En haldið þið nú, að þeir menn, sem biðja um þessa lögskýringu, — að vísu efast ég ekki um það, að þeir geri það, sem þeir álíti að sé rétt, en formaður kjörstjórnar er sannarlega ekki flokksmaður Alþfl., — en þeir segja: Við erum í vafa. Formlegt kjörbréf treystum við okkur ekki að gefa út. Við biðjum um úrskurð Alþingis. — Þetta álít ég að Alþingi eigi að skýra, eins og því er skylt samkvæmt 46. gr. stjórnarskrárinnar. En vegna þess að deilt hefur verið um atriðið og til þess að ekki verði úrskurðað á annan veg siðar og allir flokkar búi við þennan rétt hér eftir, þá tel ég rétt að setja um það lög í samræmi við lögskýringuna.

Nú minnast hv. þm. þess, hvernig hv. 1. þm. Reykv. (BBen) talaði hér s.l. föstudag, — mig minnir, að það væri þá, sem till. lá hér fyrir, — hvað hann hefur birt í Morgunblaðinu og hvað hann segir nú. Það var nefnilega alls ekki 31. gr. stjórnarskrárinnar, sem hann var að tala um að stæði í vegi fyrir því, að lög væru sett og eins og hann sagði látin gilda aftur fyrir sig. Efnið í ræðunni var þetta: Það á með lögum, sem hann talaði ekkert um í því sambandi hvort stönguðust á við 31. gr. stjórnarskrárinnar, — það á með lögum að setja ákvæði um að búa til nýja þingmenn, og samkvæmt þeim nýju lögum eiga kosningar að hafa farið fram 1956. — Það var þetta, sem hann fann að. Það var þetta, sem hann skrifaði um í Morgunblaðið.

En nú bendi ég honum á það og hann meðgengur, að flokksbróðir hans hafi 1942 sett lög á Alþingi um varamenn i bæjarstjórn og þau hafi verið látin ná aftur fyrir sig, nákvæmlega á sama hátt og hann heldur fram að ég sé að gera og sé vítavert.

Ég er ekki að gera það sama, því að ég álít, að lausnin á máli Eggerts sé lögskýringaratriði, og lögin, sem nú verða sett, eru aðeins staðfesting á því, sem ég álít að sé lög, en vil hafa skýrt. En það, sem hann hefur gert og vítt mig sérstaklega fyrir, að setja lög og láta þau ná aftur fyrir sig, það hefur flokksbróðir hans gert og sennilega, að ég segi ekki áreiðanlega, í samráði við borgarstjórann í Reykjavík, hv. núverandi 1. þm. Reykv. Lögin voru sett 15. maí, kosning 15. marz, og búnir til hvorki meira né minna en — ekki einn varamaður, sem er nú svo íhaldssamt hjá okkur, að það eigi aldrei nema einn að vera í gangi, heldur var lögfest, að ef það er einn maður kosinn af lista, þá eiga allir hinir 29, ef þeir eru á listanum, að vera varamenn þessa eina manns, eftir því sem það er framkvæmt.

Nú segir hann að vísu og ber fyrir sig það, sem ég ber fyrir mig, — að ég álít réttilega, en hann ranglega, — að þetta hafi verið orðin venja með varamenn. Nú skal ég ekkert segja um það, hvort sú venja hefur verið rétt eða röng. Það getur vel verið, að það hefði mátt grípa til fleiri varamanna en þetta eftir lögunum. Það kemur ekki til mála, að ég taki án athugunar gilda lögskýringu bæjarstjórnar í þessu efni, en hann áleit, að þetta hefði verið framkvæmt. Nú skal ég lesa þetta, með leyfi hæstv. forseta. Grg. er þannig:

„Þeirri reglu hefur verið fylgt, að framboðslisti, sem hlotið hefur bæjarfulltrúa eða hreppsnefndarmenn, skuli hafa rétt til jafnmargra varamanna. Þegar framboðslisti hefur aðeins fengið kosinn einn mann eða tvo menn, þá kemur það fyrir, að varamenn eru ekki til fyrir hendi til þess að taka sæti í bæjarstjórn eða hreppsnefnd í stað forfallaðs aðalmanns, og getur þá svo farið, að bæjarstjórn eða hreppsnefnd verði óstarfhæf.“

Við búum ekki til neinn nýjan varamann hér. Það er lögskýringaratriði, og maðurinn er kosinn. En hér er alveg vafalaust, eftir því sem þeir segja í grg. og það er flutt eftir beiðni þáverandi félmrh., Jakobs Möllers, að þessir varamenn voru ekki til, fyrr en þeir voru löggiltir um vorið, þeir sem höfðu verið í framboði um veturinn.

Það var þetta, sem hv. þm. fann að við frv. mitt, en ekki, að það stangaðist á við 31. gr. stjórnarskrárinnar, þó að hann grípi til þess núna, þegar hann er búinn að sjá framan í þessar staðreyndir.

Þá gerði hv. 2. þm. Eyf. (MJ) það að umtalsefni, að einhver hefði sagt það í Tímanum, að afstaða Sjálfstfl. væri auðvitað við það miðuð, að hann væri í stjórnarandstöðu; þetta væri grálegur dómur og ekki líklegt, að menn bæru mikla virðingu fyrir Alþingi, ef menn tækju að trúa slíkum staðhæfingum.

Það mætti nú satt að segja af þeim, sem er kunnugri þingsögunni en ég, nefna eitthvað af dæmum um þetta og þau ekki svo fá. Mig rámar í þau ýmis, en ég ætla bara að nefna eitt, sem er mér minnisstæðast, og það er þingrofið 1931. Þá er því haldið fram með öllum þeim ósköpum, sem hægt var að stofna til hér á Alþingi, og þið ungu þm. hefðuð átt að vera hérna og sjá til þingmannanna, að þingrofið sé stjórnarskrárbrot. Það var farið heim í hús, — ég ætla ekki að nefna þau sérstaklega, mölvaðar rúður, haldnir hópfundir hér, talað hér af svölunum um stjórnarskrárbrot. Ég var lögreglustjóri í Reykjavík þá, og einn maður, sem ekki vildi rétta upp höndina með því, að það væri stjórnarskrárbrot, æruverðugur prestur, var með gleraugu. Þau voru mölvuð, rifin af honum kápan og honum kastað í götuna. Og aldrei hefur verið framið annað eins ódæði, eftir því sem sjálfstæðismenn sögðu. En það er skemmst af að segja um þetta óskaplegasta stjórnarskrárbrot, sem nokkurn tíma hafði verið framið í sögu Íslands, — það var fenginn sérstakur maður til að skrifa um það og gefa út fræðilegt álit um, að þetta væri hræðilegt stjórnarskrárbrot, og fjöldi manna trúði þessu í svip, — að engum lifandi manni, sem þekkir nokkurn hlut til stjórnskipunar, dettur í hug að halda þessu fram núna. Allir vita, að þetta var bóla, þetta var ekkert annað en skröksaga, sem var fundin upp til að æsa, og það var gengið svona langt til að framfylgja þessari skröksögu, fenginn fræðimaður til þess að skrifa um það og fylgt eftir hér í bænum með þeim hætti, sem ég ætla ekki að lýsa frekar og er sennilega í minni ýmissa.

En nú hafa æruverðugir sjálfstæðisprófessorar orðið að kenna það við Háskóla Íslands, að þetta hafi verið allt saman tóm vitleysa. Það er ekkert skemmtilegt að heyra það, ég skil það: tóm vitleysa. Þetta, sem Sjálfstfl. hélt fram sem einn maður hér á Alþingi að væri stjórnarskrárbrot, hafa sjálfstæðisprófessorar síðan við Háskóla Íslands kennt nemendum sínum að hafi verið tóm skröksaga, það hefði ekki verið nokkur fótur fyrir því, það, sem gert var, hefði verið í samræmi við stjórnarskrána.

Svo geta þeir ráðið því, sem vilja, hvort maður með tilliti til þessa og ýmislegs annars telur, að afstaða Sjálfstfl. mótist að einhverju leyti eftir því, hvort hann er í stjórnarandstöðu eða ríkisstj., eftir að hafa þennan lærdóm af honum og svo marga aðra, sem væri ástæða til að nefna, en tæki of langan tíma, þar sem lögskýringar hafa farið eftir því, hvar hann hefur verið í aðstöðu á hverjum tíma, nákvæmlega eins og hann kemur hér á Alþingi og segir: Það má ekki setja lög, sem ná aftur fyrir sig, — en 1942 hefur hann gert það sama, og meira að segja hafa menn þá verið svo sammála um það, að ég sé ekki, að það hafi verið nokkur maður, sem hafi greitt atkvæði gegn því, að lögin væru látin gilda aftur fyrir sig. Nú má það ekki.