13.02.1957
Sameinað þing: 30. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (2367)
26. mál, leirverksmiðja í Dalasýslu o. fl
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hv. allshn. mælir með því, að till. þessi verði samþykkt með lítils háttar breytingu og viðauka. Hnígur viðaukinn í þá átt að gera till. til muna víðtækari en áður. Er ekkert við því að segja, að efni þetta verði rannsakað sem mest og bezt, og raunar æskilegt og sjálfsagt, en hætt er við, að svo víðtæk rannsókn verði umfangsmikil og tímafrek, jafnvel að málið verði á þennan hátt stungið svefnþorni í bráð og lengd.
Ég vil því leyfa mér að spyrjast fyrir um eftirfarandi: Setjum svo, að umrædd rannsókn dragist mjög á langinn hjá því opinbera, eins og stundum vill verða, en hins vegar séu til áhugamenn reiðubúnir að hefjast handa í þessu efni, að athuguðu máli í Búðardal. Er ríkisvaldið þá reiðubúið til að láta þeim í té einhverja aðstoð, svo sem athafnasvæði og hráefni eftir þörfum, endurgjaldslaust, en eins og kunnugt er á ríkið jörðina Fjós í Laxárdal og þar með Búðardal? Þetta væri gott að vita á þessu stigi málsins. Vinsemd og skilningur af hálfu ríkisvaldsins í slíkum málum á að geta örvað einstaklinga til framtaks.