01.03.1957
Sameinað þing: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í D-deild Alþingistíðinda. (2373)
130. mál, lán fyrir Flugfélag Íslands h/ftil flugvélakaupa
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Flugfélag Íslands hefur undanfarið verið að leitast fyrir um að eignast nýjar flugvélar, og hefur ríkisstj. nokkuð fylgzt með þeim málum. Eftir mikið starf að þessu á Flugfélagið nú kost á að festa kaup á tveimur fjögurra hreyfla flugvélum til millilandaflugs af gerðinni Viekers Viscount svokallaðri. Það er hægt að fá þessar vélar núna strax, en yfirleitt er tveggja ára afgreiðslufrestur a.m.k. á slíkum vélum, ef ekki stendur sérstaklega á. Það er talið, að þessar flugvélar henti mjög vel þeim verkefnum, sem Flugfélag Íslands ætlar þeim að sinna, og þá sér í lagi að annast flugsamgöngur á milli Íslands og Evrópu.
Það er hægt að koma þessum viðskiptum á, ef auðið er að gera samningana strax. Og málið hefur tekið þá stefnu núna alveg nýlega, að til þess að hægt sé að ná þessum viðskiptum og koma þeim í kring, þarf að vera hægt að gefa ákveðið svar um ríkisábyrgðina á morgun. Gæti orðið til þess, að Flugfélagið missti af kaupunum, ef slíkt væri ekki auðið.
Af þessum ástæðum leggur ríkisstj. til, að henni verði heimilað að ábyrgjast fyrir Flugfélagið 2/3 hluta af kaupverði þessara flugvéla með fylgifé, eða allt að 33 millj. ísl. króna eða jafnvirði þeirra í erlendri mynt. Og vegna þess, hve sérstaklega stendur á um þessar samningagerðir allar saman, sem þó hafa staðið yfir nokkuð lengi, vill ríkisstj. fara þess á leit við hv. Alþ., að þessi þáltill. verði afgreidd í dag. Mundum við alls ekki fara fram á þetta, ef ekki stæði þannig á, að það hefur gefizt tóm til þess, áður en þessi þáltill. var lögð fram, að kynna öllum þingflokkunum málið. Er því kunnugt orðið i öllum þingflokkunum, hvernig á málinu stendur, og kemur því engum neitt á óvart í þessu. Enn fremur gerði ég í gær sérstakar ráðstafanir til þess, að hv. fjárveitingarnefndarmenn hefðu aðstöðu til þess að kynnast málinu sérstaklega.
Með skírskotun til þess, hvernig á stendur, og með sérstöku tilliti til þess, að þessi undirbúningur hefur verið hafður um málsmeðferðina, vildi ég leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann sæi sér fært að afgreiða málið til fullnustu í dag. Og eftir undirtektum, sem þetta mál hefur fengið hjá þingflokkum, virðist mér, að þess megi fullkomlega vænta, að hv. alþm. séu yfirleitt reiðubúnir til þess að ljá því lið. Það kemur þá fram, ef það er ekki réttur skilningur, en ég hygg hann sé réttur.
Þá mundi ég vilja leggja til, að þessu máli yrði vísað til hv. fjvn. að lokinni þessari umr., því að þótt nefndarmenn hafi nú þegar kynnt sér málið sérstaklega, finnst mér rétt, að því sé formlega til nefndarinnar vísað og álit hennar fengið.