01.03.1957
Sameinað þing: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (2376)
130. mál, lán fyrir Flugfélag Íslands h/ftil flugvélakaupa
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það var út af því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði. Ég ætlaði að taka það fram, að mér kom það dálítið á óvart, að hann bjóst við því, að þessi till. væri um eitthvað annað en hún er, en það er nú skýring fengin á því, þar sem ekki hefur náðst til hans, þegar þetta mál var athugað í Sjálfstfl.
Út af því, sem hann spurði varðandi Loftleiðir, er þess að geta, að Loftleiðir starfa að því, eins og menn vita og hefur verið tilkynnt af þeirra hendi opinberlega, að kaupa tvær miklar flugvélar og hafa farið fram á fyrirgreiðslu í því sambandi. En það mál liggur ekki þannig fyrir í dag, að það hafi þótt ástæða til þess að leggja það hér fyrir ásamt þessu máli. Það mál verður lagt fyrir sérstaklega, þegar það er tilbúið, og liggur ekkert í því um það, að ríkisstj. hafi nokkra minnstu löngun til þess að láta annaðhvort þessara félaga sitja á hakanum. Það er einvörðungu þannig vaxið, að athugun á því stóra máli er ekki lokið.