13.03.1957
Sameinað þing: 45. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (2389)

124. mál, sameign fjölbýlishúsa

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að færa hv. allshn. beztu þakkir fyrir ágæta afgreiðslu þessa máls. Vænti ég sömu undirtekta hjá hv. alþm. öllum og vona, að þeim sé eins vel ljóst og nefndarmönnum, að hér er á ferðinni nauðsynjamál, sem í raun og veru hefði þurft að vera búið að taka afstöðu til, og af þeim ástæðum augljóst, að nauðsyn er á að gera það hið allra fyrsta. Ég ítreka sem sagt þakkir mínar til allshn. um ágæta afgreiðslu málsins.