13.03.1957
Sameinað þing: 45. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (2396)

47. mál, samtök til aðstoðar öryrkjum

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Mér þykir vænt um að sjá á nál. á þskj. 321, að hæstv. allshn. mælir með till. minni á þskj. 52 með mjög smávægilegri breytingu, sem mér skilst að sé aðallega í því fólgin, að hæstv. ríkisstj. taki þetta mál ekki beint til þess að beita sér fyrir framgangi þess, heldur er það ofur lítið vægara á þessu stigi málsins, að athugaður sé möguleiki á því, að tiltekin samtök öryrkja komi á sambandi sín á milli. Mér sýnist því, að ég geti alveg fallizt á þessa breytingu og að hún sé ekki mjög veigamikil.

Samband íslenzkra berklasjúklinga hefur mælt mjög eindregið með þessari till. og segir í niðurlagi síns bréfs, eins og sést á þskj. 321, að sambandsstjórn SÍBS er enn í dag eindregið þeirrar skoðunar, að samband öryrkjafélaga undir ötulli og hagsýnni forustu mundi verða til mikilla hagsbóta fyrir skjólstæðinga sína og horfa því til þjóðarheilla.

Blindrafélagið tekur í svipaðan streng, en mér sýnist augljóst, að stjórn Styrktarfélags fatlaðra og lamaðra hafi tekið þetta mál eitthvað ofur lítið öfugt við þá hugsun, sem lá á bak við mína till. Stjórn þess tekur nokkuð hart til orða í niðurlagi síns bréfs, en það var a.m.k. engan veginn hugmynd mín með till., að það ætti að „safna öryrkjum saman á hæli til geymslu“, eins og segir í niðurlagi þess bréfs.

Ég tek alveg undir það, sem hv. frsm. sagði áðan, að mín fyrsta og aðalhugmynd var að koma einhverri hreyfingu á þetta mál, fá þessi ýmsu félög til þess að sameinast um stærri átök málinu til meiri framgangs, og ég fagna því mjög, að hæstv. allshn. hefur séð sér fært að mæla með því, jafnvel þó að þessi lítillega breyting hafi verið gerð.